Leita í fréttum mbl.is

Ofstopi Dags B

í Borgarstjórn Reykjavíkur er með endemum,

Út er komið deiliskipulag um Reykjavíkurflugvöll. Þar gátu til dæmis eigendur fasteignar að Þorragötu 21 lesið að heimilt væri að rífa það hús. Aldrei höfðu þeir heyrt neitt um þau áform fyrr en við þennan lestur. En húsið er félagsheimili einkaflugmanna og reist með leyfi réttra yfirvalda.

Sömuleiðis má lesa að að eigendur 66 fastegna skuli sæta því að fjarlæga eignir sínar og að byggðar verði íbúðir á svæðinu. Lögmaður Borgarinnar Magnús Ó. Erlingsson hafði áður tjáð þessum bloggara bréflega að honum bæri að fjarlæga eign sína á svæðinu bótalaust þegar Borginni hentaði.

Nú mega allir aðrir fasteignaeigendur  lesa að Fluggarðar skuli rifnir eftir rúmt ár. Einka-og kennsluflug skuli fara burt án þess að sagt sé hvurt. Bara burt!  Ný nefnd er tekin til starfa við það sem engum hefur áður tekist  að finna nýtt flugvallarstæði innan borgarlandsins. Nema auðvitað Birni Kristinssyni prófessor, sem sýndi fram á vinna mætti gríðarlega mikið nýtt land á ódýran hátt. En það féll ekki í kram brunnklukkufræðinga Samfylkingarinnar.  

Það má segja að það sé valinn maður í hverju rúmi hjá Reykjavíkurborg. Enda slær læknirinn Dagur B. taktinn með ýmsum Borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, fyrrverandi og núverandi í því að 60 þúsund undirskriftir með tilvist Reykjavíkurflugvallar, ályktanir íbúafunda og  stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar skuli að engu hafðar. Völlurinn skuli burt hvað sem tautar. Enda innanríkisráðherrann nýbúinn að kyssa  Gnarrinn uppá lokun A-V brautar að forsætisráðherra áhorfandi og árétta fyrri svikagjörning Ögmundar Jónassonar við Gnarrinn um sama efni.

Verði ekki stjórnarskipti í Reykjavík að vori komanda er úti um Reykjavíkurflugvöll. Það er því ástæða til að hvetja alla til að kynna sér hið nýja ofstopafulla deiliskipulag  Dags B. Eggeertssonar sem er líklega alveg búinn að gleyma þeim Hippokratesareiði sem hann eiinhverntíman sór.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Var það ekki Hanna Birna sem gerði þennan samning og réttlætti með að borgarstjórnarkosningarnar "mættu alls ekki snúast um þetta"? Svo var aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar skipuð í forsæti nefndar til að sætta öll sjónarmið. "Sem fyrrverandi sveitarstjórnarmaður vil ég alls ekki að alþingi taki fram fyrir hendur sveitastjórnarmanna í skipulagsmálum"

Sigurður Þórðarson, 17.12.2013 kl. 14:40

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þegar ég heyrði fyrst um áform Rvk.að flytja fludvöllinn burt,var það að mig minnir er Ingibjörg Sólrún ofl. stefndu á það árið 2016. Ég hafði þá ekki neitt spekulerað fyrir mína parta hvað tapaðist og hvað áunnist við þann gjörning. Ég skil þig Halldór sem átt þarna eign,að mega sæta því að hún sé fjarlægð bótalaust. Það er nú ávallt svo að það má ekki hrófla við jarðvegi þar sem mannvirkjum er ætlað að rísa,sem auka munu atvinnu og þjóðarhag,en eignum almennings,sem hafa lagt fé og vinnu í tómstundir sínar má ryðja burtu og tilkinna eins og hernámslið sé á ferðinni. Sigurður þórðarson þau eru e.t.v. ágæt þín prinsip,en viltu að stjórnarmenn hvort sem er í bæjum eða landsstjórn komi svona fram við borgara þessa lands,?

Helga Kristjánsdóttir, 17.12.2013 kl. 23:01

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hanna Birna laumu Samfó kerlingin og þoergerður kúlulánadrottning, sami óæðri endinn á þeim báðum.

Hugsið ykkur sjálfstæðismenn voru næstum því búnir að krýna Hönnu Birnu drottningu sjálfstæðisflokksins.

Sem betur fer er hún farin að sýna sitt rétta andlit í ráðherrastólnum og vonandi vakna sjálfstæðismenn úr "Hönnu Birnu Dáinu" áður en flokkurinn fer til hel......

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 18.12.2013 kl. 04:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband