Leita í fréttum mbl.is

Hví erut þér svá lathentir?

spurði Gizur Þprvaldsson vígamenn sína er honum þótti eigi nógu skjótt unnið á Kolbeini grön á Espihóli og brá sjálfur sverðinu Brynjubít sem hann hefur tekið af Sturlu dauðum á Örlygsstöðum.

Fylgdarmennirnir tóku þá til höndum og hjó Prest-Jóan fyrsta höggið í höfuð Kolbeini sem var á grænum kyrtli. Kolbeinn féll eigi við það og tók til mannanna drjúgum og kippti fast , er maðurinn var öflugur.. Svo koma að Kolbeinn grön lét þar líf sitt vopnlaus fyrir mörgum mönnum  og varð all hraustlega við sitt líflát. Þeir neituðu honum áður um prestfund því þeim þótti fangs von að frekum úlfi ef nokkuð undanbragð yrði sem segir sína sögu um manninn.

En Kolbeinn hafði tekið þátt í að myrða alla fjölskyldu Gizurar í eldinum á Flugumýri. Þykir okkur Haukdælum enda að Kolbeinn grön hafi hlotið sæmandi endurgjöld þarna í snjónum á Espihóli. En vissulega hljótum við að virða mjög hans miklu hreysti þarna og áður. Og hafa ákveðna samúð með honum því vissulega höfðu Sturlungar á beisku bitið af hálfu Gizurar.

 

Gizur kvað eftir brennuna:

 

"Enn mank böl þats brunnu

bauga Hlín ok mínir,

skaði kennir mér minni

minn, þrír synir inni.

Glaður munat Göndlar röðla

gnýskerðandi verða,

brjótr lifir sjá við sútir

sverðs, nema hefndir verði."

 

Það hafa verið dimmar nætur hjá Gizuri veturinn þann. Og vissulega svigna feiknstafir í vísunni sem urðu að veruleika þennan dag á Espihóli. Honum þótti hafa verið lítill slægur í þeim fimm sem hann hafði látið daginn áður drepa á undan Kolbeini í sama leiðangri í norðlenskum hávetri og kulda.Og sjálfsagt þótti honum lítið til þess koma að láta drepa Þorvald Sveinsson þarna í túninu rétt á eftir vígi Kolbeins.

En því rifjast þetta orðatiltæki Gizurar upp að margur maðurinn er óþolinmóður þessa dagana um að ríkisstjórnin taki til höndum. Mönnum finnst hægar ganga undan henni en menn vildu.

Menn tala um að þeim finnist stjórnin lathent við að sópa út allskyns vinstraliði sem síðasta ríkisstjórn tróð í hin og þessi embætti svona að því virðist til þess eins að storka viðtakandi stjórn. Lathent við að drífa í allskyns málum sem eru löngu tímabær. Formaður Sjálfstæðisflokksins situr til dæmis uppi með lykilstarfsmann í ráðuneyti sínu sem er varaþingmaður eins stjórnarandstöðuflokksins. Í alls kyns stjórnum ríkisins situr mishæft og sumt beinlínis skaðlegt fólk sem núverandi ríkisstjórn getur engan veginn ekki treyst til heilinda og standa í vegi fyrir nauðsynlegum endurbótum. 

Af hverju er ríkisstjórnin svo lathent við að bregða sínum Brynjubít, reka svona fólk út og setja þar inn fólk sem hún og almenningur getur treyst? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Seðlabankinn? Eða ertu að meina innanríkisráðherra sem var að ráða fyrrum kollega sinn úr stóli borgarstjóra fyrir skemmstu?

Sigurður Þórðarson, 29.12.2013 kl. 22:21

2 identicon

Ahh, gömlu góðu daganir þegar flokks skirteinið var eina leiðin til að fá vinnu.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 30.12.2013 kl. 00:28

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þessi pistill sýnir skýrt þá miklu spillingu sem var í Sjálfstæðisflokknum þegar Halldór var það áhrifamaður og er sennilega að mestu enn til staðar. Að vilja reka fólk úr starfi fyrir það eitt að hafa ekki rétt flokksskýrteini sýnri svo gegsýrða spillingu að það hálfa væri nóg.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur sjáflur veri mjög ötull við það að koma fólki úr sínum röðum í alls konar stöður þrátt fyrir að hæfara og oft mun hæfara fólk sæktist efir þeim. Í því efni voru oft gerðir samningar við samstarfslokkana ef ráðherran sem réði því var úr hans röðum. Versta dæmið og það dýrkeyptasta fyrir þjóðina um slíkt er ráðning Davíðs Oddsonar í embætti bankastjóra Seðlabankans. Það er leitum að skýrara dæmi um ráðningu gjörsamlega óhæfs manns í mikilvægt embætti sem reyndist þjóðinni mjög dýrkeypt. Einnig eru nokkur nýleg dæmi um skipanir í dómarastöður frá seinasta valdatíma Sjálfstæðiðsflokksins. Engin talar þó um að reka alla þá sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur með þeim hætti ráðið í stöður og tekið faram yfir hæfara fólk.

Sigurður M Grétarsson, 30.12.2013 kl. 19:26

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Sigurður, ég átta mig ekki á hvað þú ert að meina, hef ekki tekið eftir því nafni.

Elfar, það voru flokksskírteinin sem settu þetta fólk inn sem ég er að tala um . Nú er ekki eftirspurn eftir slíkum sírteinum.

Jáhá, Sigurður . Það e spilling ef Sjlallarnir ráða pólitískt en hvað heitir hitt?

Finnst þér Már vera hæfari en Davíð? Ég er ekki endilega á þeirri skoðun.Auðvitað eru mun fleiri hæfir í Sjálfstæðisflokknum en kommaflokkunum. Bara strax af þeirri staðreynd að þar er meira úrval þó öllum vangaveltum um meðalgreindarvísitölu sé sleppt.

Halldór Jónsson, 30.12.2013 kl. 19:46

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Já nafni Már er hæfari en Davíð. Davíð var gersamlega óhæfur í þetta embætti og setti Seðlabankan í raun á hausinn með því að tapa hátt í 300 milljörðum með klúðri.

Að sjálfsögðu er það spilling þegar menn eru ráðnir út á flokksskýrteini þó hæfari menn sækist eftir starfinu. Í því efni hafa ráðherrar Sálfstæðisflokksins ekki verið eftirbátar ráðherra annarra flokka. Þeir voru orðnir mjög forhertir í lok langs ríkisstjóarnarsamstarfs á sínum tíma og báru ákveðnar ráðningar í dómaraembætti þess glögg merki ásamt feiri dæmum.

En það hefur hingað til ekki verið uppi sú krafa að þeim væru reknir þegar aðrir flokkar kæmust í stjórn. Ena þyrfti þá að sýna fram á að viðkomandi hefði verið tekin fram fyrir hæfari menn út á flokksskýrteini og að það stæðu hæfari menn til boða í viðkomandi embætti í dag. En pólitískar hreinsanir eins og þú nefnir þarna eru ekkert annað en spilling að verstu sort.

Sigurður M Grétarsson, 31.12.2013 kl. 00:04

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Steinunn Valdís Óskarsdóttir er nýráðinn sérfræðingur innanríkisráðuneytisins í neytendamálum.  Skv. upplýsingum ráðuneytisins heyrir það undir hana hvort innanríkisráðuneytið kærir Eggert Kristjánsson hf. fyrir rangar skýrslugjafir fyrir Neytendastofu. Eitt fyrsta verkefni hennar var að móttaka fyrirspurn frá mér um það mál. Hún hefur ekki enn svarað því bréfi og því hefur hún væntanlega ekki komist til annarra verka.

Sigurður Þórðarson, 1.1.2014 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband