Leita í fréttum mbl.is

Björt framtíð?

er spurningamerki sem margir Sjáflstæðismenn velta fyrir sér þessa dagan. Stafar pólitísk ógn af þessu nýja stjórnmálafli? Höfðar þetta fólk til kjósenda í meira mæli en áður hefur þekkst? Mun þessi flokkur ná úrslitaáhrifum í sveitarstjórnum í vor? Dugir einföld arfleiðsluskrá Jóns Gnarrs til þess að þetta nýja afl sópi til sín borgarfulltrúum í Reykjavík í vor? Munu þeir koma mönnum að í Kópavogi? Það er spurning sem ég velti fyrir mér því að þá er komin einhver ný tíð í pólitík sem ég ekki skil. Ég er orðinn úreltur. Á ekki heima í nútímanum. 

Allt væri þetta auðveldara ef menn vissu eitthvað um þau mál sem þessi flokkur ætlar að hafa í fyrirrúmi. Er hann eitthvað eins og uglan sem situr á kvistinum og þegir?  Allir halda að uglan  sé gáfuð af því að hún er leyndardómsfull og þegir.  Veit nokkur  hvað hún veit eða hvað hún er að hugsa?

Flokksforinginn Guðmundur Steingrímsson hefur þó sagt þetta okkur til skilningsauka:

"Við erum öll víðsýnt fólk, fylgjandi þessum lýðræðisumbótum sem er verið að tala um eins og stjórnlagaráði.  Ekkert okkar er á vegum sérhagsmuna, við erum að hugsa um almannahagsmuni og heiðarleika í pólitík og viljum stunda hann og viljum líka tala öðruvísi í pólitík. Þetta er friðarins fólk, fólk sem hefur mannúð og frið í hávegum, alþjóðlega sinnað held ég að megi segja og margt hvert Evrópusinnað."

Það er ekki auðvelt fyrir mig að festa hendur á formanninum eða spyrja um það hvað skilji hann frá Samfylkingunni?  Er hann eins og uglan á kvistinum? Eða Goðmundur á Glæsivöllum?  Feiknstafir svigna í hans hlý?  Veit einhver hvað kemur næst?  Er hann firna gáfaður eins og uglan? Er ekki óttinn við hið óþekkta verstur? 

Eru þetta hin nýju stjórnmál?  Ekkert verður gefið upp fyrr en eftir kosningar. Höfum við séð þetta áður?

Verður það fyrst eftir kosningar sem kíkt verður í pakkann? Jafnvel eitthvað af góðgæti frá ESB?

Verður framtíðin þá björt? 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband