Leita í fréttum mbl.is

"Fögur er hlíðin

:svo að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg ríða heim aftur og fara hvergi.“ 

Svá mælti Gunnar á Hlíðarenda þegar hann datt af baki. sekur maðurinn, á leið til skips í útlegð að réttum landslögum. Kolskeggur bróðir hans bað hann heilsa móður þeirra og sagðist aldrei myndu Ísland sjá aftur því hann myndi spyrja Gunnar látinn og ætti þá ekki erindi hingað út aftur.

Sjálfstæðisflokkurinn græddi ekki mikið á flottheitum  Þorgerðar Katrínar  þegar hún var menntamálaráðherra og fór með fríðu föruneyti á kostnað skattgreiðenda til  Kína. ekki einu sinni heldur tvisvar. Nú er Þorgerður á bak og burt en Illugi Gunnarsson, tengdasonur bjargvættinnar frá Flateyri. kominn í staðinn.

"Svona gera menn ekki"  sagði einn ágætur flokksmaður og hafði rétt fyrir sér í öðru tilviki. Sjálfstæðismenn eiga að ganga á undan öðrum pólitíkusum með góðu fordæmi í því að umgangast skattfé af virðingu. Ráðgerð ferð menntamálaráðherrans Illuga Gunnarssonar til Rússlands á Olympíuleikana er algerlega tilgangslaus hégómi og sóun á skattfé almenningas að tilhæfulausu. Pólitískur tilgangur er enginn fremur en ferðir Þorgerðar Katrínar til Kína á sinni tíð. Eða hafa menn séð breytingar í mannréttindamálum austur þar?

Það er alveg feykinóg að Eygló Harðardóttir Framsóknarráðherra fari og auglýsi sinn flokk með því. Almenningur verður varla uppnæmur fyrir því eftir fordæmi Framsóknarmanna frá fyrri tíð.  

En það gegnir öðru máli með Sjálfstæðisflokkinn. Hann á að hafa hærri standard en svo að hann láti kjósendur sína horfa upp á svona vitleysu.

Þessi orð mín hafa ekkert að gera með hommeríið í gamla Sovét eða truntuskap gamla KGB-mannsins í garð samkynhneigðra. Rússland er harðstjórnarríki eins og Kína sem við eigum ekki að hossa né heiðra. Eygló getur alveg séð um þau mál án afskipta Illuga. Hún gæti þessvegna haft með sér Jón Gnarr í stað Kolskeggs.

Okkar manni veitir ekki af því að vera heima og vinna vinnuna sína eins og allt er í méli hjá okkur í málefnum skólanna. Nota peninga okkar í eitthvað þarflegra en að skemmta sjálfum sér á kostnað almennings. Þjóðin hefur ekkert gagn af svona skemmtiferð Illuga sem hún á að borga. Hún hjálpar samkynhneigðum í Rússlandi ekki hið minnsta.

Fögur er hlíðin Illugi. Farðu hvergi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Þ Ingólfsson

Ertu að meina að skattgreiðendur þessa lands eigi að borga ferðina fyrir hann? Nei takk, Hann á að sjálfsögðu að greiða hverja einustu krónu úr eigin vasa, sem og aðrir alþingismenn. Svo eiga menn að nota fríin sín til að fara í svona skemmtiferðir. Annað er skandall !

Stefán Þ Ingólfsson, 23.1.2014 kl. 21:40

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þröngsýni!! Það hefur ávallt tíðkast að ráðherrar norðurlanda sameinist um að sækja heimsmót eins og þetta,þótt frétzt hafi að sá finnski fari ekki núna. Þessi vettvangur er upplagður í skoðanaskipti utanríkisráðherra,sem leiða þá e.t.v. til samstöðu norðurlanda gegn mannréttindabrotum gestaríkisins. Þetta getur aldrei verið skemmtiferð þar sem órói er og hótun um hryðjuverk vofir yfir.

Helga Kristjánsdóttir, 24.1.2014 kl. 00:53

3 Smámynd: Stefán Þ Ingólfsson

Hann getur farið, en ekki á minn kostnað.

Stefán Þ Ingólfsson, 24.1.2014 kl. 10:06

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú sleppur ekki við það Stefán.

Helga, þú kemur mér dálítið á óvart. Sérðu til dæmis eitthvern árangur af ferðum Þorgerðar Katrínar til Kína hér um árið? Hefur Kína batnað? Ef þetta er rétt, er ekki upplagt að hann fari hann líka til Norður Kóreu og ræði þar endurbætur á hundahaldi?

Halldór Jónsson, 24.1.2014 kl. 10:19

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvaða rök eru þetta ! Fara til Norður Kóreu,? Eru einhverjir heimsleikar þar,? Minnir að Katrín hafi farið til stuðnings landsliðinu,sem er góðra gjalda vert,en ég minnist ekki að hún hafi farið 2-svar. . Ég hitti hana þegar til stóð að hún færi aftur og spurði hana um það,nei sagði hún,það er svo dýrt,en hafi hún farið greiddi hún það þá ekki sjálf,? Hvaða árangri skila mótmæli gegn mannréttindabrotum Rússa,með tuðinu hérna heima? - Vísa aftur til þess sem ég sagði hér fyrr,utanríkisráðherra á að mæta á stórmót þar sem Íslendingar keppa.

Helga Kristjánsdóttir, 24.1.2014 kl. 13:55

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já ég kom á óvart,en átti að þegja,svona púkalega geðill. Fyrirgefðu Halldór.

Helga Kristjánsdóttir, 25.1.2014 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband