Leita í fréttum mbl.is

Víglundur Þorsteinsson

vekur þjóðarathygli fyrir skorinort bréf sitt til Forseta Alþingis í dag.

Víglundur hefur lengi haldið því fram, að fyrirtæki hans hafi verið sett á sérstakan dauðalista við þann gjörning Steingríms J. Sigfússonar, að gefa endurreistu viðskiptabankana Arion og Íslandsbanka til hrægammasjóðana á kostnað innlendra viðskiptamanna og heimilanna í landinu.

Allur þessi gjörningur Steingríms er að því að manni virðist gersamlega löglaus stjórnvaldsaðgerð tekin án samþykkis Alþingis. Sé þetta rétt hljóta viðkomandi stjórnvöld sem og vitorðsmenn og stuðningsmenn(abettors) í opinberri stjórnsýslu  að dragast til ábyrgðar að lögum hefði maður haldið.

En maður heldur svo margt án þess að skilja að í hugum margra er íslensk réttvísi aðeins verkfæri sem ráðamenn beita að eigin geðþótta hverju sinni. Það er erfit fyrir mann sem berst einn gegn slíku kerfi eins og Víglundur Þorsteinsson hefur gert, að horfast í augu við það hvernig kerfinu er beitt gegn lítilmagnanum. Hvernig kerfi getur komist upp með það að týna 13. fundagerðinni og segja bara sorrí Stíína. þetta kemur þér eða okkur ekkert við.  Þannig er því miður reynsla margra almennra borgara  af óvígu apparati embættismannanna sem Humpfrey ráðuneytisstjóri í þáttunum Já ráðherra er svo dæmigerður fyrir.

Þeir eru sjálfsagt til sem eru ekki eru félagar í aðdáendaklúbbi Víglundar Þorsteinssonar eftir áratuga baráttu við hann í viðskiptalífinu. Enda maðurinn bæði vopnfimur og djarfur. En þarna finnst mér að minnsta kosti  sögð saga sem skiptir alþjóð máli. Ef eitthvað er þá til sem heitir alþjóð utan vinstri flokkanna þegar ég hugsa út í það.

Vinstri menn hafa yfirleitt talið sig vera eigendur réttlætisins og hefndarinnar allr götur síðan í frönsku stjórnarbyltingunni. Þau öfl hefur Víglundur Þorsteinsson aldrei haft í sérstökum hávegum í gegn um tíðina.

 Þess galt hann líka óspart fyrir hjá þeim þegar þeir fengu aðstöðu til . 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þarna vann Víglundur hinn skapummikli prik loksins.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 24.1.2014 kl. 21:09

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Víglundur er maður sókndjarfur og vígfimur. Svo getur hann verið bráðskemmtilegur líka og velhugsandi.

Halldór Jónsson, 25.1.2014 kl. 12:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418199

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband