Leita í fréttum mbl.is

Lífseigur er misskilningurinn

um samningaviðræður Íslendinga við ESB. Margir málsmetandi menn virðast leggja á það trúnað að í aðildaviðræðum þeim sem við áttum í felist einhver sérstakur samningur sem tekur til sérhagsmuna Íslands til engri tíma. Hugsanlega er sá skilningur uppi með þessum aðilum, að varanlegar undanþágur til handa Íslendingum verði veittar frá stjórnarskrá ESB svo sem í hermálum, sjávarútvegs-og landbúnaðarmalum.  Þetta  er sú eina hugsanlega skýring á því að einstaka flokksmaður hefur yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn sinn vegna andstöðu meirihluta hans við að halda úti aðildarviðræðum sem þeir kalla samingaviðræður.

Grunnstefna ESB gagnvart aðildarviðræðum hljóðar svo: 

 »Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidate's adoption, implementation and application of EU rules, some 90,000 pages of them. And these rules are not negotiable.« 

 Jón Bjarnason og Atli Gíslason lýsa þeim klofningi í þingflokki VG sem varð til þess að aðildarsinnarnir innan VG þvinguðu fram stuðning flokksins við aðildarumsóknina.

Þrátt fyrir opinbera andstöðu við inngöngu í ESB upplýsa þeir því í grein í Morgunblaðinu í dag  að innan flokksins voru þeir sem voru í andstöðu við yfirlýsta stefnu flokksins.

Það þarf ef til ekki ekki að leita lengi að forystumanni þessarar fimmtuherdeildar innan flokksins. En það skiptir svo sem litlu að þylja upp nöfn. Hitt ber nýrra til að forysta stjórnmálaflokks gerti komist upp með slíka afstöðu til grundvallarstefnu hans sem hann býður kjósendum.

Verður lægra komist í íslenskri stjórnmálasögu? Svona álíka og að Sjálfstæðisflokkurinn  myndi greiða atkvæði með afnámi lýðveldisins á Alþingi?

Vigdís Hauksdóttir hefur boðað þingsályktunartilllögu sinnar um afturköllun aðildarumsóknarinnar til ESB. Vonandi verður þessa ekki langt að bíða. Það verður fróðlegt að fylgjast með atkvæði Steingríms J. Sigfússonar um þá tillögu.

Hann er lífseigur miskilningurinn um eðli viðræðnanna sem dreift er vísvitandi eins og ryki í augu velmeinandi  fólks, sem vill klára aðildarviðræðurnar eins og það er kallað og fullyrt er ítrekað að "þjóðin" vilji gera. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona eitt sem vantar í þessa röksemdarfærslu. Ef það eins og sagt er hér að ofan að það sé ekkert um að semja og viðræðurnar séu bara um hvernig við göngum í ESB. Af hverju ekki að klára þær og leggja þá kolómögulegan samning fyrir þjóðinna eftir að henni hefur verið kynntur hann og afleiðingar hans. Hann hlýtur þá að verða kolfeldur!  Og enn spyr ég mig af hverju eru Finnar, Svíar og Danir enn hangandi í svona ömurlegu samstarfi? Væri hag þeim ekki miklu fremur borgið í Norrænu efnahagsbandalagi með okkur, Noregi, Færeyjum og Grænlandi? Eða telja þeir að hagmunum þeirra sé betur borgið að geta selt fullunnar vörur og þjónustu án tolla til um 7 til 800 milljóna manna og um leið notið samvinnu við þær þjóðir án hindrana. Sé ekki betur en að þjóðarframleiðsla þessara þjóða sem var fyrir um 30 árum svipuð og okkar minnir mig hafi hækkað þannig að í dag eru hún milli 50 og 60 þúsund dollarar á mann á meðan að okkar um 30 þúsund rúm.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.1.2014 kl. 14:19

2 Smámynd: Þorkell Guðnason

Aðlögunarferlið var stöðvað og verður - sem betur fer - ekki hafið að nýju án undangengins þjóðaratkvæðis.

Það er öllum ljóst sem það vilja sjá og eitthvað skilja, að regluverk Evrópusambandsins er ekki umsemjanlegt og engar varanlegar undanþágur frá því í boði fyrir Ísland.

...að klára samningaviðræður og leggja samning fyrir

þjóðina, er einfaldlega rökleysa.

Ef aðlögunarferli væri haldið áfram, lyki innlimun með

því að samningur lægi fyrir. Þá fyrst gæfist þjóðinni kostur á atkvæðagreiðslu - um orðinn hlut!

Þorkell Guðnason, 25.1.2014 kl. 16:23

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór.

Hvers vegna er þessi áratuga/aldagamli misskilningur svona langlífseigur?

Er þetta ekki umhugsunarvert heilabrota-dæmi, sem vel-gefnir ráðamenn til margra áratuga, eru hreinlega skyldugir til að útskýra fyrir okkur van-gefnum?

Það fríar engan einstakling sinni ábyrgð, að vera í svokallaðri stjórnarandstöðu (á einhverra ára fresti), né að vera valdadrottnandi og ábyrgðarlaus ferðalangur, á ókeypis (skattþræla-greiddum) alþjóðabanka-diplóma-passa.

Ég vona að þú segir satt í svari þínu, Halldór. Ekki mín vegna, né þín vegna. Heldur allra vegna.

Því annars er ekki til neins að tjá sig.

Gott samfélag byggist á réttlæti fyrir ALLA samfélagsþegna.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.1.2014 kl. 18:30

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Magnús Helgi

Þú skýrir eiginlega um hvað málið snýst þegar þú talar um útflutning þessara landa til ESB án tolla. Netop Magnús Helgi. ESB er tollabandalag. Gegn hverjum? Hverjir hagnast á tollmúrum? Hvort viltu fremur verslunarfrelsi við alla eða bara suma sem eru girtit úti með tollum.

Hversu skyldir eru tollar stjórnlyndi? Hversu skyldir eru tollar frjálshyggju? Hversu skyldur er alþjóðlegur kratisminn almennu stjórnlyndi? Hvað er að því að vera frjáls?

Halldór Jónsson, 25.1.2014 kl. 18:51

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Varðandi þjóðarframleiðslu í dollurum ræðst það af genginu. Fyrir hrun var frjálst gengi á dollar. Nú er það ekki lengur efir fjögurra ára valdasetu vinstri manna. Ísland er orðið fangelsi í úlfakerppu vegna tiltekta glæpamanna sem náðu valdi á bönkunum og hafa rétt okkur reikninginn sem þjóð. Við getum ekki greitt þann reikning.

Halldór Jónsson, 25.1.2014 kl. 18:55

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Anna Sigríður,

Á Íslandi hefur aldrei viðgengist réttlæti fyrir alla. Það hefur alltaf verið og er misjafnt eftir því hver á í hlut. Stórbændur fyrr á öldum, stórlaxar með pólitíska vini núna. Sjáðu Finn Ingólfsson og Óla í Samskip. Hvort voru þeir svona snjallri öðrum mönnum eða voru á réttum stað á réttum tíma. Eða Halldór Ásgrímmson og Guðmundur Bjarnason svo einhverjir séu nefndir sem virðast um margt farsælli en margir aðrir,

Halldór Jónsson, 25.1.2014 kl. 19:01

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Takk fyrir svarið.

Þetta er þá ó-umdeilanlega áratuga og aldagamall sí-endurtekinn vefur blekkinga þeirra stórbænda/útgerða, sem fengu einhverra hluta vegna að breyta sér í banka? Og það án þess að Ríkisfjölmiðillinn (gamla gufan frá 1930), gerði nokkurn hlut til að stoppa, fræða né breyta þessari stjórnsýslu-brenglun, frá þinghúsinu með dönsku kórónuna, við Austurvöll í Reykjavík á Íslandi?

Er ekki frekar langsótt að kenna einhverjum stjórnmálaflokkum, til eða frá einhverju tímabili, um Dóms og Kirkjumála-stjórnsýslu-siðferðisbrenglunina á Íslandi og víðar, upp í gegnum tíðina, sem kom frá falskristni-miðstýringunni úr Rómarveldis-Páfagarði?

Ég, þú, og allir aðrir, eiga rétt á að fá svör við svona mikilvægum siðferðis-spurningum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.1.2014 kl. 20:44

8 Smámynd: Ágúst Marinósson

"ég hefði nú haldið að sjálfstæðið gengi fyrir" Mér dettur einlægt Bjartur í Sumarhúsum í hug þegar ég les svona pistla.

Ágúst Marinósson, 25.1.2014 kl. 22:04

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það endar á því að maður fer að svara þessum ruglinnleggjum þínum í trúmálum, ASG.

En Ágúst, ég held þú sért sjálfur fastur í 20. aldar klisjum. Bjartur í Sumarhúsum hefur ekkert með það að gera, hvort við látum fallerast af stórveldi sem beitir lymsku sinni (auk peningaausturs) til að komast yfir smáríki með öðrum aðferðum en gömlu hernaðartaktíkinni hjá þessum tíu aflóga nýlenduveldum sem þarna ráða öllu sem þau vilja ráða.

Jón Valur Jensson, 26.1.2014 kl. 04:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband