Leita í fréttum mbl.is

Þjóðin hefur valið verðbólgu

og fær hana líklega óþvegna í andlitið núna.

Kennarar eru í verkfalli með nemendur í gíslingu. Ríkið á að leysa hnútinn segja foreldrarnir. skiljanlega. Nemendurnir líka því þeir hugsa um sig. Bráðum verður gefið eftir og "samið"  

ISAVIA- fólki er á leiðinni í "aðgerðir".BHM er búið með þolinmæðina. Samningar á almennum vinnumarkaði um 3.5 % eru náttúrlega  einhverjar tölur sem enginn tekur mark á lengur.Og alls ekki menntaða fólkið.

Í landinu er ríkisstjórn og Alþingi sem eru því miður ekki líkleg til þess  í mínum huga að taka á þessu máli.  Ég get alveg séð fyrir mér ræður Össurar, Árna Páls og Steingríms J. og málþóf  ef einhver vill taka á þeim málum sem einhverju skipta fyrir framtíð krónunnar og efnahags þjóðarinnar. Sjá ekki allir núna hversu gersamlega vonlaust er að annar gjaldmiðill verði tekinn upp á Íslandi? Hann yrði samstundist ónýttur með verkföllum.

Sem fyrr ráða þeir sem tiltölulega best hafa kjörin ferðinni á því sem við köllum vinnumarkað. En er ekki markaður þar sem einokun ríkir.  Ótal sérfélög heimta samninga við sig óháð öllu öðru. Slíkt þjóðfélag stenst ekki til lengdar fremur en í Sýrlandi eða Sómalíu.

Ef ég réði þá myndi ég gera eftirfarandi:

1.Fjölgað verði í bekkjum í öllum skólum og raðað eftir námsgetu.  

2. Laun kennara verða í hlutfalli við  fjölda í bekk.

3. Laun kennara verða tengd námsárangri í reikningi og lestri. 

4.Verkfallsréttur opinberra starfsmanna verði mjög skertur eða aflagður í fyrra horf.

5. Allir núverandi launaflokkar verða frystir.

6. Launahækkun verði hvergi meiri en um hefur verið samiðá almennum vinnumarkaði.

7. Einkavæðing skólakerfisins verði sett í forgang.

8. Námslán verði efld og tengd árangri. 

9. Opinber skrá sé gefin út um tekjur allra landsmanna.

Ég ræð hinsvegar engu nema hugsunum mínum. Þær segja mér að skammt sé í verðbólgusamninga sem nema tugum prósenta samfara háværu tali um  ónýtan gjaldmiðil, upptöku evru og áframhaldandi aðildarviðræður vi Evrópusambandið. Að enn einu sinni hafi hin heimskra manna ráð verr gefist sem oft áður.

Húsnæðislánin stórhækka.

Verðbólgan étur upp allan ávinning kjarasamninganna á örfáum mánuðum.

Lánaleiðréttingin mikla stendur eftir sem eitthvað sem engu breytti.

En verðbólgutímar eru líka spennandi  því þeir knýja menn til að hugsa. "Kom þú sæll þá þú vilt" sagði séra Hallgrímur og vissi að það er ekki hægt að deila við dómarann mikla. Íslandi verður ekki bjargað úr þessu með þjóðarsátt. Stjórnkerfið landsins er of veikt. Stjórnmálamennirnir eru of veikir.

Þjóðin hefur valið verðbólgu og fær hana. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi

Verkfræðingar og tæknifræðingar hafa nýlega samið um og skrifað undir mjög hóflega samninga. Ekki beinlínis verðbólguhvetjandi:

"Kjarasamningur Kjarafélags TFÍ og Kjaradeildar VFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga - FRV sem var undirritaður í lok febrúar var samþykktur á félagsfundi félaganna tveggja 6. mars síðastliðinn.


  • 1. febrúar 2014 hækka laun um 2,8%.

  • 1. júlí 2014 hækka laun um 0,85%.

  • Gildistími samnings er til 28. febrúar 2015".

www.vfi.is

Ágúst H Bjarnason, 26.3.2014 kl. 16:00

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Gerir þú ráð fyrir að það verði mikil ánægja með þessa samninga þegar aðrir knýja fram 30% frændi sæll?

Halldór Jónsson, 26.3.2014 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband