Leita í fréttum mbl.is

Fólk er fífl

sagði athafna-og markaðsmaðurinn. Þessi orð urðu fleyg og af ýmsum ástæðum.

Nú standa fyrir dyrum kosningar til bæjarstjórna. Skiljanlega horfa menn til Reykjavíkur þar sem uppi  er sú sérkennilega staða að þeir sem ábyrgðina bera á öllu því sem aflaga hefur farið og blasir við flestum, njóta mests trausts til að laga það.

Húsnæðisskortur er mikill í Borginni. Stefna vinstri flokka er að sem flestir verði leiguliðar í opinberu húsnæði. Þar á leigan að verða viðráðanleg og sanngjörn. Dagur B. er búinn að gefa það út að hann ætli að byggja allt að 3000 íbúðir á kjörtímabilunu, sem uppfylla þessi skilyrði. Allar skoðanakannanir sýna að til þessa verður hann kjörinn.

Ég hitti iðnaðarmann sem stendur uppi með fullbúin raðhús sem hann þarf að selja, Þau kosta hann 330 þúsund krónur á fermetrann þar sem þau standa án þess að hann telji sig græða neitt á þessu.

Ef þetta er byggt á yfirdrætti  þá er vaxtakostnaðurinn einn rúm 3  þúsund á fermetrann á mánuði.Þá sést að leiguverðið er 300 þúsund á mánuði fyrir 100 fermetra bara vegna vaxtanna áður en farið er að borga af eða greiða kostnað. Þó að borgin niðurgreiði hálfa vextina þá er löng leið að ódýrri húsaleigu 

Fólk trúir því sem sagt að Dagur B.  geti byggt ódýrar, fengið ódýrari peninga osfrv.en venjulegir iðnaðarmenn. Þessu trúir fólk og greiðir þessu atkvæði. 

Er ástæða fyrir þessum fleygu orðum athafnamannsins? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Verðum við ekki að treysta því, Halldór, að læknar hafi svolítið meira vit á byggina- og leigugeiranum en iðnaðarmenn....?

Ómar Bjarki Smárason, 25.5.2014 kl. 18:39

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta verður allt smíðað úr bylgjupappa og göldrum. Þetta reddast allt þannig einhvernvegin.

Trúðu því.

Ásgrímur Hartmannsson, 25.5.2014 kl. 19:05

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Netop gamleven Ómar Bjarki

að sjálfsögðu dregur Dagur B. kanínur úr hatti fyrir kosningar. En hvernig varð með ísbjörninn í Húsdýragraðinn sem þeir Gnarr lofuðu. Menn voru tilbúnir aðslá því uppí létt grín. Sumum fyrirgefst meira en öðrum sem eru alvörugefnari í pólitík en þessir drengir. Það hjálpar ef fólk skyldi eftir allt vera bara fífl eins og malarinn sagði.

Ásgrímur,

manstu eftir honum Pótemkín sem málaði bara hús á striga til að sýna drottningunni hvað hann hefði verið duglegur við uppbygginguna. Það er endalasut hægt að notfæra sér fíflin ef maður er nógu sniðugur.

Halldór Jónsson, 25.5.2014 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband