Leita í fréttum mbl.is

23.maður á lista Sjálfstæðisflokksins

til borgarstjórnarkosninga á laugardaginn kemur, Kristinn Karl Brynjarsson, lætur ekki deigan síga í baráttu sinni. Hann skrifar í dag svo:(bloggari feitletrar að vild)

"Þétting byggðar í Reykjavík mætir andstöðu, mismikilli þó, í öllum hverfum borgarinnar nema í Úlfarsárdal. Þar beinlínis hrópar fólk á þéttingu byggðar. Enda er það hverfi óklárað og stór svæði innan hverfisins óbyggð. Óklárað hverfi þýðir það, að fyrirheit um sjálfsagða þjónustu í hverfinu við skipulagningu þess munu aldrei ná fram að ganga á meðan hverfið er óklárað. Það má því vel halda því fram að fólk sem kaus að reisa sér heimili í hverfinu hafi verið svikið um ákveðin búsetugæði sem sjálfsögð þykja í öllum öðrum hverfum borgarinnar.

 

Núverandi borgarstjórnarmeirihluti, væntanlega vegna þess hversu mikla áherslu hann leggur á íbúalýðræði og samráð, vill þó eins og kunnugt er bara þétta byggð í rótgrónum hverfum og helst þar sem andstaða við slíkt er hvað mest. Líkt og hverfaskipulagið fyrir Vesturbæinn ber hvað gleggst vitni um. En frægt var með endemum þegar meirihlutinn hrökklaðist til baka með samþykktar skipulagstillögur sínar úr umhverfis- og skipulagsráði er þær komu til afgreiðslu í borgarráði.

 

Tillögurnar fara þó ekki í pappírstætarann þó þeim hafi verið hafnað í borgarráði. Heldur munu þær koma fram aftur að loknum kosningum í vor haldi núverandi flokkar meirihluta í borgarstjórn. Tillögunum var bara frestað vegna þess hversu umdeildar þær voru í aðdraganda kosninga.

 

Núverandi borgarstjórnarmeirihluti talar beinlínis gegn því að Úlfarsárdalurinn verði kláraður með þeim hætti að sómi verði af. Rökin fyrir slíku eru þau, að það þurfi að minnka bílaumferð inn í vestari hluta borgarinnar. Það eru þó allar líkur á því að bílaumferð inn í vestari hluta borgarinnar kemur vart til þess að minnka þó ekki verði meira byggt í Úlfarsárdal. Það er nefnilega eftirspurn eftir íbúðum í úthverfum. Ef Reykjavíkurborg býður ekki upp á þann möguleika að búa í úthverfi, þá rísa bara þau úthverfi sem eftirspurn er eftir í öðrum sveitarfélögum.

 

Það mun þó verða svo að þeir einstaklingar sem neyðast til vegna skorts á húsnæði að velja til búsetu úthverfi í öðru sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu en Reykjavík munu velflestir vinna í Reykjavík. Þeir halda uppi þeirri umferð inn í vestari hluta borgarinnar er núverandi borgarstjórnarmeirihluti telur sig geta spornað við með því að þröngva þéttari byggð í grónum hverfum borgarinnar upp á þá sem þar búa nú þegar.

 

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er hlynntur þéttingu byggðar á réttum forsendum. Flokkurinn telur hins vegar að endurskoða þurfi mörg áform um þéttingu byggðar og vinna þau velflest betur. Við þéttingu byggðar í grónum hverfum borgarinnar verður að huga að búsetugæðum þeirra sem nú þegar búa í þessum hverfum.

 

Eins mun flokkurinn gæta þess að jafn dýrmæt útivistarsvæði og Laugardalurinn verði ekki þéttingaráformum að bráð, komist hann til valda í borginni. Þéttum byggð í sátt og samlyndi við borgarbúa og klárum ókláruð hverfi. Eini raunhæfa leiðin til að tryggja að svo verði er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningunum 31. maí næstkomandi. "

Það er með ólíkindum að Reykvíkingar skuli ætla að loka augunum fyrir öllu sem aflaga hefur farið í Borginni og endurkjósa núverandi meirihluta. Undirskriftir 70 þúsund manns til varnar Reykjavíkurflugvelli skulu að engu hafðar og flugvöllurinn skal sleginn af með Aðalskipulaginu. Rögnunefndin var aðeins  blekkingarspil Dags B. og S.Björns tlil að forðast umræður fyrir kosningarnar. Eftir viku fer niðurrifsstarfsemin á gang á fullum krafti.

Þrátt fyrir hetjulega baráttu 23. manns á lista lítur ekki út fyrir annað en að meirihlutinn haldi völdum, sé að marka skoðanakannanir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband