Leita í fréttum mbl.is

Nýmæli

eru það þegar Egill Eiríksson bóndi frá Seljavöllum og fulltrúi í stjórn Auðhumlu leggur til að forstjóri Mjólkursamsölunnar verði rekinn fyrir að hafa skaðað álit fyrirtækisins með framferði sínu gagnvart Mjólku. Alveg óháð því að Ásmundur Stefánsson hafi upplýst um bankaviðskipti þess sem brotið var á og St. Guðni gefið út syndaaflausn.

Hingað til hafa fyrirtæki verið dæmd í sektir en forstjórarnir rifið kjaft eins og ekkert hafi í skorist. Þó að varla hafi aðrir en þeir  fyrirskipað hina glæpsamlegu hegðun,  því nokkuð ljóst er fyrir venjulegu fólki að fyrirtæki taka ekki upp á verðsamráði af sjálfu sér fremur en byssur skjóti sjálfar og fremji morð. Þetta vita Bandaríkjamenn  og snúa sér umsvifalaust að forsvarsmönnum fyrirtækja og gikkhaldara  þegar slíkt gerist.

Á Íslandi hækka menn í tign, verða bankastjórar, þingmenn osfrv. Fyrirtækin eru dæmd í sektir sem almenningur til að mynda veit nokkuð hver muni borga með einum eða öðrum hætti svo notuð séu örugg orðatiltæki.

Það eru nýmæli að einhver ráðamaður telur að orðstír einkasölufyrirtækis skipti neytendur máli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Halldór.

Aldrei hef ég skilið þegar samkeppnisstofnun er að sekta fyrirtæki fyrir brot á samkeppnislögum. Ekkert fyrirtæki brýtur lög, einungis þeir sem þeim stjórna. Því væri eðlilegra að sekta stjórnendur þessara fyrirtækja. Sekt á sjálft fyrirtækið er samstundis veitt út í verðlagið og þeir sem brotið var á greiða hana. Erfiðara er fyrir stjórnendur fyrirtækja að færa persónulegar sektir inn í reksturinn.

Þetta sáum við best þegar olífélögin voru sektuð. Ekki bitnuðu þær sektir neitt á fyrirtækjunum sjálfum og enn síður stjórnendum þeirra. Þeir sem keyptu eldsneytið af þessum fyrirtækjum þurftu hins vegar að punga út.

Varðandi þá sekt sem Mjólkursamsalan fékk á sig, þá er það mál enn óútkljáð. Þar fer tvennum sögum hvort Samkeppniseftirlitið felldi sinn úrskurð samkvæmt lögum. Meðan það er óútkljáð ættu menn kannski að bíða með að dæma. Hitt er svo annað mál að menn geta haft ýmsar skoðanir á því hvort lagaumhverfi Mjólkursamsölunnar sé réttlátt. Samkeppnisstofnun hefur hins vegar ekki vald til að breyta lögum, einungis Alþingi hefur slíkt vald.

Kannski væri nær fyrir Samkeppnisstofnun að skoða "samkeppnina" á þeim enda matvöruframleiðslunnar sem næst liggur neytendum, þ.e. smásöluversluninni. Kannski gætu stofnunin fundið eihhvað þar til að sekta og verið réttu megin við lögin um leið.

Gunnar Heiðarsson, 2.10.2014 kl. 05:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þakk þér fyrir þessar skarplegu athugasemdir að vanda. Það er rétt að vera ekki að dæma Einar sérstaklega meðan ekki liggur fyrir hvort allt var rétt upplagt. En í heild erum við á sama máli, lögpersónur geta ekki að eigin frumkvæði aðhafst eitt eða neitt frekar en peningaseðill á borði.Allir vilja ná honum til sín en hann gengur ekki af sjálfsdáðum.

Halldór Jónsson, 2.10.2014 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 3418206

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband