Leita í fréttum mbl.is

C.I.A.

er skammstöfun á þeirri merku bandarísku stofnun, Central Intelligence Agency.Óhemju víðfeðm stofnun meira að segja með opinbera jafnréttisáætlanir sem gefa hverri íslenskri slíkri ekki eftir.

Kommar, kvislingar og fimmtuherdeildir á Vesturlöndum rakka þessa stofnun niður með öllum ráðum og reyna að koma þeim stimpli á að þetta séu morðvargar kapítalismans sem hafi það að markmiði að skemma allt gott fólk eins og Birgittu Píratakaptein og áhöfn hennar.

Það er jafnan tilefni meiriháttar fagnaðar hjá anarkistum, kommum og kvislingum ef einhverjum eins og Assange, Manning og Snowden tekst að stela einhverju frá þessari stofnun og birta í DV og álíka pappírum heimsins svo hægt sé að níða Bandaríkin með því.En stofnunin heldur ótrauð áfram sem betur fer fyrir okkur öll og stendur af sér slíkar árásir.

Nafn stofnunarinn þýðir eiginlega fremur miðlægur gagnagrunnur eða einskonar þekkingarbrunnur þorpsins okkar heldur en njósnastofnun. Stofnunin safnar þekkingu um óvini okkar svo að við getum varast þá. Það sem við vitum getur ekki skaðað okkur en það sem við vitum ekki getur orðið okkur að aldurtila.WWW.CIA.gov leiðir fólk til skilnings á starfseminni og þeim möguleikum sem í henni felast. Þeir meira að segja auglýsa eftir hæfu fólki til leynilegra starfa. Bandaríkin eru stoltir af CIA og mega vera það.

Við Vesturlandabúar eigum þessari stofnun margt að þakka fyrir að standa vörð um okkar vestrænu gildi og safna upplýsingum um þær hættur sem að okkur geta steðjað. Henni hafa verið kennd mistök sem leiddu til Íraksstríðsins við hann Saddam Hússein. En sá kall var alls ekki alvondur og hafði margt gott gert þjóð sinni á fyrri tíð og fengið verðlaun Sþ fyrir. En þeir Arabar sem landið byggja láta ekki auðveldlega að stjórn eins og fregnir herma. Aðeins svona kall eins og Saddam getur stjórnað slíkri múslímahjörð sem annars rífur hvorn annan og aðra á hol Nú síðast í þeirri viðleitni að stofna kalífaríki á rústum hinna gömlu ríkja. Sem eru eiginlega ekki ríki heldur blýantsteikningar Balfours og breska heimsveldisins.

Miðað við það sem við tók í Írak er ekki ólíklegt að menn muni síðar heiðra minningu Saddams verkfræðings og óska þess að hann væri kominn aftur til að koma lagi á hlutina. En Bush-arnir  á Forsetastóli höfðu síðasta orðið í því máli og engar sögur fara af því hvort þeir hafi einhvern tímann iðrast einhvers. 

Ekki er auðvelt að spá um framvindu mála í þessum heimshluta. Afgahnistan kemst undir stjórn Talibana innan tíðar og einræðisstjórnir verða ríkjandi allstaðar í múslímaríkjunum í Mið-Austurlöndum nema hugsanlega Tyrklandi sem þó stendur alltaf tæpt. Það er miskilningur að halda það að þessu fólki henti lýðræði hvað þá eitthvað beint lýðræði að hætti okkar Stjórnlagaráðs. Það er svo mörgum öldum á eftir okkur í þroska.

Hvernig sem það nú fer allt saman, þá fylgist CIA sem betur fer með öllu sem þeir geta. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snowden fékk ekki upplýsingarnar hjá CIA. CIA starfar við að finna mannlegar upplýsinga auðlindir innan óvinaríkja (það er njósnara og aðra sem til eru í að svíkja land).

NSA eða "National Security Agency" er stofnunin sem hann starfaði hjá. Sérsvið þeirra er SIGINT eða signal inteligence. Það eru þeir sem safna þessum hafsjó af gögnum saman og reyna finna eithvað út úr þeim, með takmörkuðum árangri til þessa.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 24.11.2014 kl. 15:32

2 identicon

Í sambandi við síðustu setninguna þína Halldór

"Hvernig sem það nú fer allt saman, þá fylgist CIA sem betur fer með öllu sem þeir geta"

Hversvegna er það eithvað sem er gott? Helduru að þeir muni nokkurn tíman hætta "source" ef það er bara til að vara okkur við?

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 24.11.2014 kl. 15:34

3 Smámynd: Kristmann Magnússon

Tek undir með Elfari og ekki hef ég nú orðið var við það að Bandaríkjamenn séu yfir sig hrifnir af persónunjósnum NSA um þá sjálfa -  Þetta er nú hálfgerð STASI stofnun - segja þeir ! ! 

Kristmann Magnússon, 24.11.2014 kl. 16:51

4 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór

Þetta þótti mér undarleg færsla frá þér og langar mig því að bauna á þig tveimur krassandi samsæriskenningum:

1) Gætir þú trúað því að Jacob Leon Rubenstein hafi verið starfsmaður CIA?

2) Getur þú látið það hvarfla að þér að fyrrverandi dómsmálaráðherra Íslands hafi þegið laun frá sömu stofnun fyrir að veita upplýsingar um landa sína og hafi í því starfi haft til ráðstöfunar eigin skrifstofuaðstöðu í Bandaríska sendiráðinu við Laufásveg?

Jónatan Karlsson, 24.11.2014 kl. 17:33

5 Smámynd: Hörður Halldórsson

Sem grúskara finnst mér gaman að skoða síðuna þeirra "The  World Factbook " ...... Tilvitnun "The World Factbook provides information on the history, people, government, economy, geography, communications, transportation, military, and transnational issues for 267 world entities. Our Reference tab includes: maps of the major world regions, as well as Flags of the World, a Physical Map of the World, a Political Map of the World, a World Oceans map, and a Standard Time Zones of the World map"....Tilvitnun endar.https://www.cia.gov/library/publications/the-world-factbook/graphics/banner_ext2.png

Hörður Halldórsson, 24.11.2014 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband