Leita í fréttum mbl.is

Einkabíllinn

 

bilastaedi-oskir er sá fararskjóti sem nútímamaðurinn hefur valið sér. Þessi litlii reykspúandi  málm-og plastkassi á fjórum gúmmíhjólum er uppspretta lífsgæða fjölskyldanna.

Ég man eftir því hvað við hjónin urðum sæl þegar hún amma mín heitin, hún Sigríður Jónsdóttir Ólafssonar ritsjóra "lánaði" okkur þrjúhundruðþúsund (hálfsárs laun) fyrir fyrsta bílnum okkar. Tveggjadyra 13 ára Bjúikk. Við bjuggum í kjallara inn í Skipasundi, hennar fólk var á Selfossi en mitt niður á Snorrabraut og þar í mýrinni umhverfis.

Það var reynt að fara í strætó,  labba og hjóla en þetta var ekkert líf. Bjúkkinn breytti öllu og lífið fór á stjá. Mynd af honum og númerið prýðir heimilið hjá okkur ennþá.

Við borguðum henni aldrei því hún gaf okkur seinna eftir skuldina því hún sagðist sjálf ekki vera að fara neitt annað en til himnaríkis sem hún þó ekki gerði fyrr en löngu síðar. Hún var stórkostleg manneskja hún Sigríður amma mín. Hún var langveik og var lengi á spítölum en kvartaði aldrei og var alltaf í góðu skapi og glettin. Þar sagði hún sjúkrahúsprestinum sem spurði hana hvort hann ætti ekki að biðja fyrir henni. "Æ þakka yður kærlega fyrir Magnús minn en ég er viss um að hann Drottinn muni alveg sjá fyrir mér þó að þér séuð ekki að rella í honum." Þannig var hún amma mín, utan kirkju eins og það hét, þótti undurvænt um hann séra Jakob frænda sinn og var það gagnkvæmt. Hún sagði mér að hún vissi að til væri annað líf og þegar ég efaðist lofaði hún að gera mér viðvart ef hún gæti ef svo reyndist vera.

Nú er komin einhver ný tegund af stjórnmálamönnum, að vísu nokkuð bundin við Reykjavík, sem segir okkur að við hjónin höfum miksskilið allt þarna um 1963 þegar við fengum Bjúkkann. Við hefðum átt að höndla hamingjuna án hans.

Ég bísaði þessu línuriti hjá honum Ívari Pálssyni. Það sýnir svo ekki verður um villst nútímamaðurinn vill hafa fleiri en eitt bílastæði við hverja íbúð. Gefur það enga vísbendingu um hvað fólkið vill í borgarskipulagi?  Samt skipuleggja menn heilu hverfin án þess að teljandi bílastæði eigi að fylgja? 

Maður undrast byggingar Háskólans í nágrenni Flugvallarins í Vatnsmýrinni. Á þessu dýra svæði eru heilu hektararnir lagðir undir ofanjarðar bílastæði. Gönguleiðir í öllum veðrum í hinar ýmsu byggingar eru ofanjarðar. Ég spurði í einfeldni minni á einum kynningarfundi hvort arkitektar hefðu velt því fyrir sér að nota jarðvegsdýpið sem þarna er til að búa til parkhús og hafa síðan túnnela og torg undir byggingunum þar sem vagnar gengju milli þeirra þannig að fólk kæmist þurrum fótum og fljótt  á milli hinna ýmsu Háskóladeilda? Þeir horfðu á mig eins og þeir hefðu séð draug og þar með endaði sá fundur.

Maður horfir líka á Háskólann í Reykjavík þar sem bílastæðin þenja sig yfir stærri flöt en húsin. Þarna er líklega ekki verið að spá í lóðarverðið né heldur það að trufla flugvöllinn sem minnst.

Mér finnst að bíllinn sé máttarstoð efnahagslífsins og því sé siðferðislega rangt að leggja skatta á hann og eldsneytið eins og þetta sé lúxus. Þeir stjórnmálamenn sem það gera ættu ekki að tala um það fyrir kosningar hvað þeim þykir vænt um einstæðar mæður, aldraða og öryrkja. Mannsins lífsgæði eru svo nátengd því að komast á milli þeirra staða sem hann kýs.

Einkabíllinn er og verður lengi enn heimilisarinn fjölskyldunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Góð grein Halldór, og hverju orði sannari. - Ég undraðist einmitt mjög þekar Kauptún (IKEA-svæðið) var byggt. Þvílíkt landflæmi fyrir bíla í staðinn fyrir að byggja þetta niður og upp í færri fermetrum. - Á Spáni þar sem ég þekki sem best til, eru bílastæði að mestu leyti neðanjarðar og ef ekki, þá er tekið tillit til veðurfars, þ.e. sólar í þessu tilviki. Undantekningalaust eru þök á bílastæðum við sórverslanir og aðrar byggingar sem gæti verið von á mörgu fólki. - Sama Á AÐ GILDA á Íslandi, það er veðrið sem við erum að berjast við og bílastæði EIGA að vera varin ef einhver glóra er í hausnum á verkfræðingum landsins. - Eins með bensínstöðvar. eða sjálfsafgreiðslustöðvarnar...Þvílík heimska. - Undantekningalaust stendur maður og norpar, með NORÐAN eða NA beint á sig að drepast úr kulda og vosbúð. - Þvílík heimska. - Þetta minnir á verslunarhúsin við Suðurlandsbraut..Öll á móti norðri og ekkert bíslag, heldur dyrnar beint uppí vindinn ! - Þökin á bílskúrum í Norðumýri og Hlíðunum...Öll flöt. - Þökin á einbýlishúsunum í Árbæjarhverfi neðra...Öll flöt. - Hvað, og hvar lærðu verðfræðingar Íslands, hins kalda, snjóuga og regnvota, Halldór ?

Már Elíson, 30.11.2014 kl. 10:24

2 Smámynd: Halldór Jónsson

 satt segirðu Már, ég er sammála því að við tökum of lítið tillit til aðstæðna í mörgum okkar byggingum

Halldór Jónsson, 30.11.2014 kl. 12:00

3 Smámynd: Þorkell Guðnason

Tek undir hvert orð og eðal Buick skil ég að hafi snert sálu þína varanlega.  Um leið undrast ég að einn hornsteinn okkar samskipta skuli vera notuð lítil "hrísgrjónaskál" Mitsubishi Colt frá 1987. "Ég var sannarlega ekki svikinn af þeim bíl" sagði Dóri aftur og aftur - þegar ég vænti frekar blóðugra skamma.  Ég vissi reyndar vel að bíllinn var rock solid og viðskiptin alveg konkrít okkar á milli. En, mér hlýnaði um hjartarætur, því það var annað hljóð í strokknum westra um svipað leyti: Risa skilti með mynd af Nixon forseta og áletruninni "Would you buy a used car from this man?" voru þar út um allt og vísuðu til óheiðarleika sjálfs forseta bandaríkjanna í Watergatemálinu.

Þorkell Guðnason, 1.12.2014 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband