Leita í fréttum mbl.is

Trúvillingadómstóllinn

starfar upp á kraft á Íslandi. Á sakabekk sitja 3/4 þjóðarinnar ásamt þjóðkirkjunni, Kristindómnum, allar trúarkenningar og siðaboðskapur,Jesús Kristur, María og gott ef ekki Drottinn sjálfur.

Á dómarbekknum sitja vandlætingarfullir fulltrúar Vintri Grænna, Siðmenntar og Pírata. Þeir eru umboðsmenn Fríkirkjunnar, Ásatrúarmanna. Múslíma, Báháa, Búddista  og hvað þeir heita allir  þessir frjálsu sértrúarhópar.Þeir krefjast jafnréttis og trúfrelsis fyrir þessa hópa.

Sakborningum er gefið að sök að trúa jafnvel á Guð og Biflíuna, prédika um kærleika og góða breytni, halda afsiðunarmessur um jól fyrir börn og unglinga sem þeir nái sér hugsanlega aldrei af án Rítalíngjafa. Sakborningar verði að gera sér ljóst 64. grein Stjórnarskárinnar gildi ekki og sé bara í plati á Íslandi. Sama gildi um ákvæðið um hlutverk skólanna vegna þess að dómararnir hafi ákvðið að trúfrelsi á Íslandi banni þessum 75 % þjóðarinnar að vera með kjaft.

Þeir verði því sekir fundir og skulu því hýddir til hlýðni af hinni algildu visku dómaranna. Þeir skuli steinþegja og ekki efast um óskeikulleika þeirra páfa. Sakborningar skuli sjá til þess líka að kirkjur þeirra séu læstar og engum undir lögaldri hleypt þangað inn.  Þeir skuli vinsamlega hafa dómarana í heiðri og ekki æmta né skræmta opinberlega.

Er enginn búinn að fá nóg af þessum sífelldu réttarhöldum trúvillingadómstólsins og þessum sífellda bannsöng yfir þjóðkirkjunni og öllu sem henni fylgir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi.

Það er spurning hvaða hóp af þeim sem þú telur upp ég tilheyri. Líklega ekki neinum; ég tilheyri nefnilega hvorki þessum 1/4 né hinum 3/4. Þess vegna læt ég mér allar þessar umræður í léttu rúmi liggja, en hef kannski bara dálítið gaman af þeim og er ekki laust við að ég brosi stundum. - Mikið er annars gott að vera frjáls og með ómengaðan hug.

Með góðri kveðju,

Ágúst H Bjarnason, 20.12.2014 kl. 18:03

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég á greinilega ekki upp á pallborðið hjá þér og skoðansystkinum þínum. Hef nefnilega verið í fríkirkjusöfnuði frá fæðingu og er fyrst að uppgötva það nú, að fríkirkjan, sem telur sig vera nákvæmlega eins evangelisk lútersk og Þjóðkirjan, er sett á bekk með "heiðingjum." 

Ómar Ragnarsson, 20.12.2014 kl. 18:33

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvaða stjórnmálaflokkur/trúarhópur gæti talist algerlega HVÍTU-megin á skákborði lífsins?

Jón Þórhallsson, 20.12.2014 kl. 19:26

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll frændi. Ætli okkar trúarskoðanir fari ekki dsálítið saman og víst læt ég mér í léttu rúmi liggja á hvað fólk er að trúa.

Éger hinsvegar að hvetja til að þjóðkirkjan láti þetta andspyrnulið kúga sig án þess að taka til löglegra varna og skrúfa niður í bullinu. Þjóðkirkjan á sinn rétt og er studd af 75 % þjóðarinnar þó að við hvorugur séum endilega í þeim hópi. Ég myndi segja að Ómar væri í þeim hópi þar sem hann er í samskonar kristinni kirkju þó hún sé einkaframtakskirkja og hann borgi hana sjálfur sem mér finnst ágætt.

En það er ekki sama um rétt múslímatil ríkisstryktrar innrætingar eða áhrifa á menntakerfið. Ríkið hefur bara þessa þjóðkirkju en ekki rússneska, Bahaí, mosku  eða annað

Halldór Jónsson, 20.12.2014 kl. 19:34

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Bæði gamla og nýja Testamenntið fordæma hjónabönd fólks af sama kyni.

-----------------------------------

Fríkirkjan í rvk leggur blessun sína yfir kynvilluna og er þá í raun komin svörtu-megin á skákborð lífsins.

Er það ekki?

Jón Þórhallsson, 20.12.2014 kl. 20:04

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Mér gengur nú alls ekki vel að skilja þennan pistil Halldór. Ég held það sé enginn dómstóll til staðar. í það fyrsta eru þessir 3/4 landsmanna sem ég skil sem skráðir meðlimir þjóðkirkjunnar ansi misleitur hópur og alls ekki allir kristnir. Þar eru lika innanborðs andatrúarmenn sem trúa á drauga og önnur yfirnáttúruleg fyrirbæri, margir blanda þjóðtrú á Álfa og huldumenn inn í fræðin og síðan eru jafnvel til einstaklingar sem trúa því að mannfólkið hafi komið utan úr geimnum og fari þangað sennilega aftur að þessari vist lokinni. Og síðan eru þarna trúleysingar sem hafa ekki haft nennu fyrir því að skrá sig úr kirkjunni við 18 ára aldur eða eftir það.Það hefur komið fram við könnun í Noregi að rétt rúmlega 40% telja sig trúa á æðri máttarvöld. Ég held að hlutfallið sé ósköp svipað hérna. Eigum við ekki bara að tala varlega og dæma ekki aðra og saka þá um eitthvað sem hæglega gæti hitt mann sjálfan?

Jósef Smári Ásmundsson, 20.12.2014 kl. 21:07

7 Smámynd: Þorkell Guðnason

Þegar þú mærir þjóðkirkjuna mættir þú að skaðlausu tileinka þér sympatíu fyrir fríkirkjum landsins og þeirra sauðum. Þar hefur mér ekki tekist að merkja mun á framreiðslu boðskapar eða mataræði.  Boltatrúfélögin með sína ríkis- og sveitarfélagareknu innrætingu, mættir þú hins vegar - og mér að meinalausu - setja í hóp kúgunaraflanna.

Þorkell Guðnason, 20.12.2014 kl. 21:44

8 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Sæll og blessaður Halldór, ég virði þínar skoðanir á trúmálum og eins og þær eru að gerjast hér á landi í dag. Ég sjálf er efasemdamaður hvað varar trúmál, ég er jafnvel trúleysingi, og hef hugleitt að segja mig úr þjóðkirkjunni. Þvi mér þykir það vera hræsni að tilheyra kirkju án þess að trúa til fulls.

Í raun væri ég miklu sáttari við að nefskattur minn rynni til Háskólans en kirkjujnnar.

En hvað varðar boð kirkjunnar til grunnskólanemenda, þá finnst mér það boð vera gott, vegna þess að kirkjan er ekkií neinu trúboði í þessu tilfelll, sem ég þekki til. En það væri bara gott fyrir grunnskóla að bjóða uppá val: hluti nemenda gætu farið í heimsókn í sóknarkurkjuna sína, og öðrum byðist kostur á menningarlegu verkefni i grunnskólanum síðum á sama tíma.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 20.12.2014 kl. 22:27

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæl öll og takk fyrir.

Þið kannski misskiljið mig eitthvað. Éger ekki að taka afstöðu í trúmálum, hvað sé gott eða verra. Ég er að banda á stjórnarskrána og gildandi lög um ríkistrúna. Ég er að reyna að segja að fólk sem ekki unir þeim skuli þá breyta þeim vilji það löghlýðið vera. Vantrúarfólkið breyti þá 64. grain osfrv.

Það er megininntakið í mínum skrifi, ekki hvað eigi að vera svona eða hinsegnin.

Halldór Jónsson, 20.12.2014 kl. 22:51

10 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Það fer enginn eftir þessari blessaðri Stjórnarskrá Halldór. Sama í hvaða knérun er barið, náttúrupassi, þjóðkirkjan, rafræn skilríki og ég veit ekki hvar bullið endar eiginlega.

Sindri Karl Sigurðsson, 20.12.2014 kl. 23:44

11 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það skiptir engu máli fyrir skólana þó þjóðkirkjan komi fyrir í stjórnarskrá.

Eða segir stjórnarskrá eitthvað um það?  Nei.

Skóli og kirkja eiga að vera aðskilin.  Annars væri það þjóðkirkjuskóli o.s.frv.

Það er eiginlega óskiljanlegt afhverju núna allt í einu er talið svo mikilvægt að stússast með börn á vegum skólanna einu sinni á ári í kirkju og hlýða á hugvekju prests, þó framkvæmdin sé eitthvað misjöfn eftir því sem sagnir herma.

Eg ólst upp á 8. áratugnum og aldrei nokkurntíman man eg eftir að talað væri um að fara í kirkjuferð á vegum skólans.

Hinsvegar var vissulega fag sem kallaðist Bibliusögur í 1-2 ár.  Og þá var kennslan aðallega um að muna utanbókar ákv. atriði eins og þá var títt, álíka og íslandssaga, spurningar á prófi td.:  Hvað hétu synir Nóa?  Þetta þótti mikilvægt að börn vissu þá.

Seinna var svo eitthvað sem hét kristinfræði og presturinn kenndi það minnir mig, en þá var hann bara eins og hver annar kennari og gott ef hann kenndi ekki eitthvað fleira, stærðfræði og sona.  

Jú jú, eftir á að hyggja voru þetta hálf furðuleg fræði því aðalkennslan fólst í að muna ákveðin atriði utanbókar og látið var eins og allt væri sögulegar staðreyndir.

En það var samt ekki beinn trúarboðskapur.  Ekki beint.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.12.2014 kl. 00:27

12 Smámynd: Jón Þórhallsson

Fólk getur haft 100% fulla KRISTNA trú án þess að mæta í kirkju. 

=Verið með sama hugarfari og KRISTUR. (Filippibréfið 2.5)

(Það getur verið ágætt að það séu til kirkjur í hinum ýmsu nær-samfélögum til að minna á Kristin boskap en það mætti nota þær meira til að spyrja einhverra spurninga tengt lifsgátunni svo að einhver andleg þróun geti orðið).

Jón Þórhallsson, 21.12.2014 kl. 10:37

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er lífseigt kommabullið um að skóli og kirkja eigi að vera aðskilin. 

"

 

Ég tilfæri hér fésbókarfærslu þar sem sagt er frá skörulegri bloggfærsla Sifjar Cortes: 

 

62. gr. stjórnarskrárinnar kveður á um að styðja skal og vernda íslensku þjóðkirkjuna og þar sem um er að ræða heimsókn í stofnun sem stjórnarskrárgjafinn felur ríkinu að styðja og vernda, ekki bara í fjárhagslegum efnum, heldur einnig í menningarlegum tilgangi þá er það hvorki brot á lögum né mannréttindum.

 

 

 

Einnig eru 2.gr. grunnskólalaga síðan 2008, þeim sem skólar og kennarar vinna eftir: „Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi.“"

Ómar, kynntu þér málin áður en þú alhæfir um hvernig þú viljir hafa það. Lögin segja allt annað en þessir uppivöðsluhópar segja

 

Jón, ég hef ekki svör við spurningum um lífsgátuna.

Fyrir marga  er hún mest að borga gíróseðla og geta ekki staðið í skilum við bankann

Halldór Jónsson, 21.12.2014 kl. 19:00

14 Smámynd: Kommentarinn

Þessi rökvilla um að allir sem skráðir eru í þjóðkirkjuna séu kristnir og styðji ennfremur trúboð í skólum er mjög þreytt. Ég er skráður í þjóðkirkjuna en er ekki trúaður og vil ekki fá þetta nálægt skyldunámi. 

Félag sem flestir eru skráðir í við fæðingu fær fullt af meðlimum sem myndi aldrei skrá sig í það annars.

Það getur vel verið að "þögli meirihlutinn" sé meirihluti en hann er töluvert minni en þessi 75%. Ennfremur telur þessi hópur helst gamalmenni svo hann fer minnkandi.

Kommentarinn, 21.12.2014 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband