Leita í fréttum mbl.is

Biskupan brást við

afsiðunaráróðrinum gegn skólum og kirkju. Hún virðist átta sig á því blessunin að 62. grein stjórnarskrárinnar er  í fullu gildi og sömuleiðis ákvæðið í grunnskólalögunum sem mælir fyrir um gagnkvæmar skyldur þessara stofnana.

Það er komið meira en nóg af að leffla stöðugt fyrir þessu minnihlutafólki eins og mér þegar yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar, stjórnarskráin og landslög  eru annarsvegar. Okkur er heldur ekki eins leitt og við kannski látum. 

Það er ánægjulegt að Biskupan bregst við og tekur af skarið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Hún virðist átta sig á því blessunin að 64. grein stjórnarskrárinnar er  í fullu gildi 

64. gr. [Enginn má neins í missa af borgaralegum og þjóðlegum réttindum fyrir sakir trúarbragða sinna, né heldur má nokkur fyrir þá sök skorast undan almennri þegnskyldu.
 Öllum er frjálst að standa utan trúfélaga. Enginn er skyldur til að inna af hendi persónuleg gjöld til trúfélags sem hann á ekki aðild að.
 Nú er maður utan trúfélaga og greiðir hann þá til Háskóla Íslands gjöld þau sem honum hefði ella borið að greiða til trúfélags síns. Breyta má þessu með lögum.]1)
   1)L. 97/1995, 2. gr. 

Matthías Ásgeirsson, 26.12.2014 kl. 17:20

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þarna varð mér á í messunni Matthías minn, það er 62. greinin sem hér um ræðir.Hún hljóðar svo:

62. gr. Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda.
 Breyta má þessu með lögum.

Það er bara svona sem á við hana. Það er hin greinin  sem á við okkur heiðingjana.

Halldór Jónsson, 26.12.2014 kl. 17:32

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Já tími til kominn að Frú Agnes spyrni við fótum og krefjist þess að farið verði að lögum.

Sömuleiðis hvað varðar sóknargjöldin, þá eru þau eeign hvers trúfélags um sig - ekki ríkissjóðs sem tók að sér að eigin ósk að innheimta það af sóknarbörnunum i stað þess að trúfélögin innheimti þau sjálf.

Flugfreyjan og jarðfræðineminn litu ranglega á -eða af illgirni - svo á að skera bæri niður í s´´oknargjöldum eins og trúfélög landsins séu ríkisastofnanir. Þessi gköld innheimtir ríkið ðog ber að skila til trú- og lífsskoðunarfélaga óskertum. Allt amnnað er þjófnaður. Þeir sem stela úr verslunum hefur verið stungið inn. Eru þau óþokkahjú á meðal annarra þjófa og glæpamanna á Litla Hrauni ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.12.2014 kl. 20:36

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

P.S:

Það kom ekki fram að sóknargjöldin innheimtu þau óþokkahjú af hverjum, og einum að fullu - en skuiluð einungis um 56-58% af því til eigenda þeirra - trú- og lífsskoðunarfélögum þessa lands.

Fyrir vikið ramba mörg þeirra á barmi gjaldþrots -eða eru löngu tlknilega gjaldþrota en fengið velvild lánardrottna sonna.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.12.2014 kl. 20:39

5 identicon

Og hvað með núverandi stjórnarherra, þá Sigmund og Bjarna, hafa þeir sýnt einhvern vilja til að skila sóknargjöldunum eða eru þeir ekki alveg sáttir við aukatekjurnar?

Ég er líka nokkuð viss um að þjóðkirkjan hefur engan áhuga á að breyta fyrirkomulaginu á innheimtu sóknargjalda. Um leið og gjöldin væru ekki ósýnilegur skattur heldur eithvað sem við sjáum og eigum möguleika á að sleppa að greiða þá fyrst kemst þjóðkirkjan af því hversu mörg okkar eru kristin.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 26.12.2014 kl. 21:59

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Elfar.

Bjarni hefur lýst því að það eigi að leiðrétta þjófnað óþokkahjúanna. Þjófnaður er ekki leyfður í íslenskum lögum - ekki frekar en í Boðorðunum 10. Því eiga þjófar sóknarfjaldanna að skula ránsfengnnum.

Þjóðkirkjan óskaði ekki eftir þessu fyrirkomulagi - það var Jón Helgasin ráðherra sem óskaði bréflega eftir viðræðum um að setja þetta í þennan farveg sem það hefur verið síðan 1987. Fram að því innheimti gjaldkeri hverrar sóknar sóknargjöldin

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.12.2014 kl. 22:08

7 identicon

Predikari.

Það að gefa út yfirlýsingar er auðvelt. Ég sé samt enga raunverulega breytingu í fjárlögum næsta árs.

Hver sókn gat einnig látið innheimtumann sveitarfélagsins sjá um sóknargjöldin fyrir sig og það er rétt að ríkið bað um að breyta þessu til þess að einfalda staðgreiðslukerfið.

En þótt að ríkið kom þessu í núverandi fyrirkomulag þá aftur segi ég að þjóðkirkjan hefur líklegast engan áhuga á að breyta því til baka.

Ef ríkið mundi viðurkenna að þetta væru félagsgjöld sem það væri að innheimta fyrir trúfélög þá opnast lagalegur grundvöllur fyrir því að vera utan trúfélags og borga ekkert vegna stjórnarskrárákvæða um félagafrelsi, sértæka skatta og mismunun vegna trúarbragða.

Það væri semsagt búið að gefa öllum 15.000 króna launaábót á ári fyrir það að vera ekki í trúfélagi. Hversu margir helduru að mundu hætta þá í þjóðkirkjuni? Fólk sem var sama þangað til að það kom ástæða til að hætta, öryrkjar, ellilífeyrisþegar og aðrir láglauna hópar.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 27.12.2014 kl. 00:30

8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Auðvitað á halda í gömlu siðina sem hafa haldið islenzka þjóðfélaginu svona nokkurn veginn frá lög og siðleysi.

Ég er ekki trúaður maður, en eg get séð fyrir mér hvernig Lífið væri á Íslandi ef að Þjóðkirkjan væri ekki fyrir hendi.

það þarf ekki nema að horfa til landa sem eru að sleikja afturendan á siðum sem hafa ekker með þeirra siði að gera. 

Ég er með það á hreinu að ef ég hefði ekki verið uppalinn við islenzka og kristilega siði, þá væri hugnarhattur minn sennilega eins og ég kynntist t.d. í Sádí-Arabíu.

Vonandi kemur Biskupan þessum árásum á þjóðkirkjuna fyrir kattarnef, enda er Þjóðkirkjan sökkull íslenskrar menningu.

Með kveðju frá Houston

Jóhann Kristinsson, 27.12.2014 kl. 03:25

9 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Sæll Halldór, nú ertu kominn út í nýyrðasmíði, og spurningin er hvernig við eigum að túlka þetta: "Biskupan" er nýyrði sem þú gefur biskupi landsins og kallar líka biskupinn "blæessunin." Þessar nafngiftir fyrir biskupinn okkar lýsa einhfaldlega kvenfyrirlitingu af hendi höfudar texta. Þ.e. þínum.

Halldór, ég held að þú hafir ekki ætlað þér neitt illt, en svona í hita leiksins, vildir þú skella ýmsum nafngiftum á biskup Íslands. 

Ég spyr: ef biskup Íslands hefði verið karlkyns, hvernig hefðiru orðað "biskupan" og hvaða orð hefðir þú notað fyrir "blessunin." ?

Ég hef reyndar sjálf mínar skoðanir á afstöðu "BISKUPS" en vildi koma ofangreindu á framfæri áður en ég færi að skrifa meira. Bestu kveðjur, Inga.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 27.12.2014 kl. 04:55

10 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

"Já tími til kominn að Frú Agnes spyrni við fótum og krefjist þess að farið verði að lögum."

Predikarinn sanni, ertu að segja okkur að upphæð framlags ríkisins í formi sóknargjalda hafi ekki verið samkvæmt lögum síðastliðin ár? 

"Það kom ekki fram að sóknargjöldin innheimtu þau óþokkahjú af hverjum, og einum að fullu - en skuiluð einungis um 56-58% af því til eigenda þeirra - trú- og lífsskoðunarfélögum þessa lands."

Þetta getur bara ekki verið rétt, þar sem að það er engin sérstök upphæð innheimt af fólki sem sóknargjöld. Ríkið ákveður bara hve hátt sóknargjöldin eru sem framlög ríkisins. Þeas það er engin föst upphæð sem er innheimt af fólki. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 27.12.2014 kl. 08:31

11 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ég áttaði mig á því að þú hafðir ruglast á 62. og 64. grein stjórnarskrár. En ég mæli með því að þú og skoðanabræður þínir lesið þá 64. vandlega. Hún skiptir nefnilega líka máli þó þið virðist yfirleitt halda annað.

Matthías Ásgeirsson, 27.12.2014 kl. 13:07

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Ingibjörg, hjá mér hefði það hljóðað í kk eintölu bskupinn blessaður eða blessunin sú. Þér finnst ég vera með kvenfyrirlitningu en það er sko ekki, ég elska þær allar og virði. Öll kvenfyrirlitning er mér færri.Enda eru þær okkur köllunum oft sleipari og örugglega erum við trúgjarnari og latari  en þær ljónynjurnar því það eru þær yfirleitt í andanum undir yfirborðinu eins og hjá sjálfum ljónunum.

Halldór Jónsson, 27.12.2014 kl. 19:27

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Matthías,

Björn Bjarnason segir að í pólitík vegi maður með þeim vopnum sem maður hefur. Ég nota 62. gr. af því að hún hentar mér og hún blífur fram yfir 64.gr. sem er bara framlenging á úrskurði Ljósvetningagoðans þar sem hann sá og úrskurðaði um að okkur væri nauðsyn á einum sið.

Við höfum einn sið sem yfirgnæfandi meirihluti styður og 62,gr. staðfestir.Hann er því hinn opinberi siður og því hlytur annar siður a víkja og vera hafður til hliðar þar sem hann er ekki bannaður.  En opinberlega á hann hvergi að vera skv. úrskurði Þorgeirs heldur vera svona frekar á laun af tillitssemi. En hana virðast Múslímar eiga erfitt með að tileinka sér.

Halldór Jónsson, 27.12.2014 kl. 19:33

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Þó þeir krefjist ávallt tilltssemi af öðrum.

Halldór Jónsson, 27.12.2014 kl. 19:34

15 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Sæll Halldór, og gott að heyra hjá þér að ekki sé um neina kvenfvyrirlitningu að ræða. En minnir að hér um árið var reynt að kvenkena kvenkyns ráðherra, og kalla þær ráðstýrur, eða eitthvað svoleiðis, sem gekk ekki eftir.

Það er almenningur í landinu sem stýrir orðræunni. Það verður bara að koma í ljós hvort almenningur taki upp "biskupan" til að vitna í okkar ágæta kvenkyns biskup.

Halldór, þú ert nú ekkert latur að skrifa blogg, en kannski latari við aðra hluti heima, t.d. að elda mat, þó að ég viti ekkert um það. En hver er annars þinn uppáhaldsmatur (jólin ekki talin með)?

Þú skrifar að þið karlarnir séuð latari og trúgjarnari en konur. Já kannsi varðandi ákveðin verkefni. En ef þú ert of trúgjarn þá verður þú að passa þig á að verða ekki meðvirkur í einhverju sem konur eru að bralla. Og hvað þá ef þær eru sleipar. Láttu engann plata þig upp úr skónum, til að gera eitthvað, bara af því að það er kona, eða þannig.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 28.12.2014 kl. 22:17

16 Smámynd: Skeggi Skaftason

Halldór segir:

Við höfum einn sið sem yfirgnæfandi meirihluti styður ... Hann er því hinn opinberi siður og því hlytur annar siður a víkja og vera hafður til hliðar

Þetta segja líka kommúnistar í Kína. Þeir skilja þörfina á einsleitri hugsun, einum "sið". Samfélögin  funkera best ef allir eru sem líkastir. Frelsi einstaklingsins og frelsi hugsana og hugmynda er klisja. Íslenskir og kínverskir íhaldsmenn skilja gildi sameiginlegs siðar. Hitt er bara krata-fjölmenningarkjaftæði. Einn siður blívur!

Skeggi Skaftason, 28.12.2014 kl. 22:33

17 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Segir sósíalista fyrrum komma kratinn dr. Össur / Skeggi.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 29.12.2014 kl. 04:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband