Leita í fréttum mbl.is

"Blessað stríðið"

sögðu ýmsir á Íslandi á sinni tið.

Þetta má hugleiða á þessum tímum sem við nú lifum. Saudi-fjölskyldan er einbeitt í því að klekkja á Iran, Írak,Yemen og Sýrlandi um leið og þeir gera skyldu sína sem Whabítar og Súnni Múslímar sem eiga að gera sjítum allt til miska. Aumingja Pútín fær hinsvegar verulega á snúðinn um leið og Norðmenn og fleiri olíukallar fá við þessar aðgerðir Saudanna.

En Saudarnir og Nojarinn þola þetta mun betur en hinir. Kaninn verður bara að draga úr frakking tímabundið og hlýtur bara að gleðjast yfir þessu öllu þar sem þetta getur seinkað kjarnorkuvígbúnaði klerkanna. En hugsjón þeirra er að sprengja Ísraela út af kortinu sem er ekki vel séð í Washington.

En það er nú ekki endilega víst að Saudarnr geti þetta til lengdar, þar sem ungir menn í Saudi-Arabíu flykkjast til að berjast í Sýrlandi með ÍSIS þrátt fyrir fengelsishótanir yfirvalda. Valdaöryggi konungsgfjölskyldunnar er því ekki endilega stöðugt til lengri tíma svo að það er langt frá því að dautt sé í kveiknum í púðurtunnuni þarna austur frá.

Vonandi tekst að slökkva í Úkraínuvitleysunni hans Krúsjevs. Úkraína gæti manni fundist vera betur komin rússnesk en það sem þar á gengur.Og Pútín virðist staðráðinn í að láta til sín taka í stórveldismálum Rússa eins og fyrri keisarar gerðu og hlutu nafnbætur fyrir. 

En hvað sem þessu líður dásamar okkar fátæka fólk það að bensínið hefur snarlækkað og getur þannig blessað stríðið eins og gert var á fyrri tíð.

Þegar horft er til Mið-Austurlanda þá geta menn syrgt hann Saddam sáluga verkfræðing. Hann var sá maður sem gerði eitthvað jákvætt fyrir þjóð sína í Írak og hlaut verðlaun Sameinuðu Þjóðanna fyrir framfarir í heilbrigðismálum. Síðan hann leið hafa aðrar traktéringar verið meira í boði þar um slóðir .

Og hann Saddam gat sem Súnni haldið lokinu á fanatíkerum Sjíta og Al Queda sem eru grunnurinn núna að hinum nýju liðsveitum ISIS. Hann hefði nú kunnað að fást við slík vandamál karlinn sá.

En nú er það Kaninn eins og venjulega sem einum er treystandi fyrir því að gera skítverkin á eigin uppvakningum sem eru að gera allt vitlaust. Hann  er nú  búinn að drepa 6000 liðsmenn kalífatsins. Þeir pilla þá niður einn og einn í þreifandi myrkri úr drónum sem stýrt er frá langt í burtu eins og til sýnis er á netinu. Hrikaleg tækni. En hvað skal gera? 

Svo halda okkar vinstri-spekingar að friðsamleg sambúð við Múslímaheiminn sé á næsta leyti! Jón Loftsson í Odda skildi það alveg að manndráp kalla á meiri manndráp og það vitum við Íslendingar síðan fyrir margt löngu. En það þýðir ekki endilega það að við munum líða múslímum að salla okkar fólk hér niður án þess að verða alvöru vondir.

 

Saddam var rægður saklaus af leyniþjónustumönnum og eru þeir því ábyrgir fyrir því sem á eftir kom ásamt viljugum þjóðum sem létu ginnast. Margt væri öðruvísi á þessum slóðum ef þetta hefði ekki orðið. En nú hefur Obama bara uppskorið auknar áhyggjur af klerkunum í Íran sem Saddam hefði áreiðanlega hjálpað honum með hefði hann verið áfram við völd.

Eva Joliy er enn kominn til hjálpar að spara okkar ríkiskassa útgjöld sem kommarnir skrækja eftir að setja  í huldumann án spurninga.

En það  er enn á ný "blessað stríðið" sem gerir nú meira fyrir einstæðar mæður og öryrkja og almenn lífskjör á Íslandi um þssar mundir heldur en uppsafnaður kærleikur stjórnlyndisins hefur gert. Þó að tíföldun raunverulegra ríkisútgjalda á hvern íslenskan haus sé þó nokkuð afrek frá stofnun lýðveldisins í "blessuðu stríðinu" 1944 eins og forsætisráðherra benti á, þá má spyrja hvað hafi breyst hjá hinum hrjáðu?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Fíflaskapurinn við lok Persaflóastríðsins voru að klára ekki stríðið og sækja Saddam.  Hefði það verið gert þá hefði ekkert Írakstríð þurft. Og margt verið ljósara.  En hver stoppaði það?   

Hrólfur Þ Hraundal, 15.2.2015 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband