Leita í fréttum mbl.is

Númer að aftan

eru á bílunum hér á Florida og víst í öllum ríkjunum.

Ef 350 milljóna þjóð, sem á meira en þúsund sinnum meira af flestu en við, kemst af með bara eitt bílnúmer að aftan á hverjum bíl, af hverju þurfum við að hafa númer aftan og framan? Ég meina rökstutt svar sem er öðruvísi en aaþíbara og Eerópustilskibun.

Kosta númer ekki peninga? Af hverju þurfum við að hafa þetta dýrara en Ameríkaninn? Hvort lítur maður meira aftan á bíl en framan á til að sjá númerið? Hversu oft yfirleitt?

Er ekki nóg að hafa númer að aftan? Þá getur maður til dæmis leigt framendann undir auglýsingar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já helst flettiauglýsingar, sem stjórnast af eðlishvöt sölumannsins,eiganda bílsins.- 

Helga Kristjánsdóttir, 2.3.2015 kl. 22:29

2 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Hvað er þá framaná bílunum þarna í sælunni í Flóróda? Ég hefði haldið að það veitti ekki af að hafa númer bæði að framan og aftan þarna í glæparíkinu.

Helmingur bíla keyrir á móti umferð, og lögreglan líka, þannig að mikilvægt er að hafa bílnúmeraplötur framan á bílum.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 3.3.2015 kl. 00:23

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Velkominn í sæluna Halldór.

Að lesa athugsemd Ingibjargar, þá dettur mér í hug orð móður minnar þegar eg tilkynnti að ég væri hættur i Kennaraskolanum og væri að fara í skóla í USA. "Í guðsbænum ekki fara þangað í glæpaliðinn"

Hún hafði sínar hugmyndir frá þáttum eins og The Untouchables og Perry Mason frá Kanasjónvarpinu.

Ég kom til USA pennyless og hef komið mér vel fyrir fjárhagslega sem að ég hefði aldrei getað á Íslandi á löglegan hátt.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 3.3.2015 kl. 03:49

4 Smámynd: Kristinn Pétursson

Flettiskilti framan á vatnskassanum cool

Kristinn Pétursson, 3.3.2015 kl. 07:43

5 Smámynd: Már Elíson

Jóhann Kristinsson - Svaraðu Ingibjörgu efnislega og eins og maður í stað þess að vera með útúrsnúning og koma með eitthvað gamalt ergelsi. - Mjög vel sett fram hjá henni og henni (og fleirum) er spurn. - Af hverju er þetta morðóða byssuland ekki með númer framan á bílum þar sem ekki veitti nú af ? - Og þá öfugt...Afhverju þurfa öll önnur siðmenntuð lönd að hafa númer á bílum aftan og framan ?

Már Elíson, 3.3.2015 kl. 11:52

6 Smámynd: Steinarr Kr.

Af hverju kalla menn Bandaríkin morðótt byssuland.  Ef tölur eru skoðaðar eru Bandaríkin langt frá því að vera hæst á lista yfir lönd þar sem mikið er framið af morðum.  Það eru einnig fleiri byssur miðað við höfðatölu á Íslandi en í Bandaríkjunum.

Eruð þið Már og Ingibjörg kannski heimsk og hafið aldrei komið til Bandaríkjanna?

Steinarr Kr. , 3.3.2015 kl. 12:48

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Már ég sé ekkert efnislegt við athugasemd Ingibjargar. Það sem ég sé eru USA hatursklysjur og ekkert annað.

Til hvers að eyða fjármunum í bílnúmer að framan ef það hefur litið sem ekkert gagn?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 3.3.2015 kl. 13:20

8 Smámynd: Jón Bjarni

hraðamyndavélar ásamt þessum sem taka myndir þegar menn keyra yfir á rauðu ljósi myndu illa virka ef ekki væri fyrir númeraplötur að framan .. svo væri lítið mál að stelast í gegnum hvalfjörðinn ef ekki væri hægt að ná mynd af bílnúmeri

Jón Bjarni, 3.3.2015 kl. 13:33

9 Smámynd: Steinarr Kr.

Hraðamyndavélar virka ágætlega í Bandaríkjunum, þar eru númeraplöturnar yfirleitt minni en hér á landi.  Það er líka hægt að taka myndir aftanfrá.

Steinarr Kr. , 3.3.2015 kl. 13:58

10 Smámynd: Már Elíson

Ágæti Steinarr, - Ég ætla að byrja á því versta : Að maður eins orðljótur og greinilega illa fyrirkallaður skuli bera nafn Steins Steinarr þjóðskálds og góðmennis(að hluta). - Hið góða er að hæla og mæra okkur Ingibjörgu sem virðumst skv. þínum haus ekki hafa komið til USA. Vil ekki nota dóna-orðið þitt en þú stígur vart í toppstykkið með þessum orðum. - Eðlilega skv. því kom ekkert við því afhverju núm.plötur eru á báðum endum um yfirleitt allan heim nema í morðóða byssulandinu, hvorki frá þér né hinum heilaþvegna USA-búa, Jóhanni - Það er kominn tími til að þú, Steinarr, áttir þig á því hver sé munurinn á að EIGA morðtól eða EIGA það og nota í sífellu til að myrða...Íslendingar, aðrir en þú/þið, vita greinilega muninn.

Annað í þessum skrifum ykkar er ekki svaravert vegna greinilegrar skekkju í toppstykki ykkar. - En, ég þekki menn sem geta lagað það (Quote).

Már Elíson, 3.3.2015 kl. 14:44

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hallast að því að bíll sem kemur framan að þér og gerir eitthvað sem þér ekki likar sé kominn framhjá þér þegar þú vilt kæra hann. Þá sérðu afturnúmerið en ekki framnúmerið. Ég er viss um að Kaninn  er löngu orðinn svo klár á þessu að hann sá tilgangsleysið í framnúmerinu fyrir langalöngu.

Eiginlega furðulegt hvað fólk hefur mikla fordóma gagnvart Bandaríkjunum. 

Ekki er hann  Már að tala um ISIS sem lagar toppstykkin á sinn sérstaka hátt?

Halldór Jónsson, 3.3.2015 kl. 19:47

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Már, mér finnst þú mjög ósanngjarn í garð Steinarrs. Það er ekki hann sem er orðljótur.

Halldór Jónsson, 3.3.2015 kl. 19:50

13 Smámynd: Steinarr Kr.

Bara svo þú áttir þig á Már, þá notaði ég orðið heimskur í upprunalegri merkingu, það virðist eiga vel um þig og Ingibjörgu, þið virðist ekki sigld.

Annars er ég ekki skýrður eftir skáldinu.

Þarf heldur ekki að vera með svona leiðindafullyrðingar eins og þú, heldur hef bara bent á staðreyndir.

Steinarr Kr. , 3.3.2015 kl. 20:33

14 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Sæll Jónann Krist, gott að heyra að þér gengur vel í BNA. En ég skil mömmu þína vel að hafa tapað þér þangað. Þó að það sé ekki daglegt brauð hjá þér, að byssumaður liggi í leyni við næsta götuhorn, eða að þú mætir gikk á McDonalds, þá er glæpatíðni hærri í BNA en á Íslandi.

Líklega hef ég lesið of mikið af sönnum glæpasögum sem gerast í BNA, til að vera á verði gagnvart landinu sem slíku. En ég fer ekki ofan af því að mér finnst samt skrítið að það þurfi ekki að hafa númeraplötur að framan.

Engin móðir er sátt við að sjá á eftir syni sínum til þessa lands. Eða útlanda yfirleitt. En það er önnur saga. Ef þér gengur vel og líður vel þarna, þá er það gott mál. 

Ég sjálf yfirgaf klakann á sínum tíma, og ég þykist vita að mamma var ekki sátt, þó að hún hafi ekki sagt neitt. En ég kom fljótlega til baka. En það var út af stríðsástandi.

Og gangi þér allt í haginn í BNA en farðu bara varlega!

Ingibjörg Magnúsdóttir, 6.3.2015 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3417960

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband