Leita í fréttum mbl.is

Regluverk EES eyðileggur

ferðamannaiðnað Íslendinga nú þegar hann er að ná hæstu hæðum í aðsókn skv spá Landsbankans.

Landið okkar er þegar komið á endimörk hvað örtröð ferðamanna varðar. Regluverk EES bannar okkur að gera nauðsynlegar ráðstafanir öðruvísi en að framkvæmdin verði í skötulíki eins og Náttúrupassinn.

Við eigum enn eitt árið að búa við klósettleysi og skort á viðunandi aðstöðu. Við virðumst ekki geta skattlagt ferðamennina af neinni skynsemi. Við virðumst ekki sjá nauðsyn þess að skapa aðstæður til að afla þeirra tekna sem til þarf. Þó er lausnin kannski augljós.

Ef við leggjum fullan virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna, rútubílana, og aðra þjónustu tengda ferðamönnum, þá er málið auðvelt ef skilyrt væri að svipuð upphæð rynni til ferðamannastaðanna til viðhalds. Ég skal vera í úthlutunarnefndinni sem verktaki ef ég fæ ekki að bjóða í störf nýrra seðlabankastjóra sem nú er farið að tala um að stofna fyrir fastráðna og verkfallaglaða ríkisstarfsmenn.

Við eigum að segja okkur úr þessu EES sem gerir okkur meiri bölvun en bót hvert sem litið er.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Viltu vinsamlegast nefna þau atriði í regluverki EES sem koma í veg fyrir að við getum eytt sem svarar 1% af gjaldeyristekjum af ferðaþjónustunni í verndun ferðamannastaðanna. Ef þetta er svona hér, hvers vegna er þetta ekkert vandamál í neinu öðru landi, hvorki í ESB, EES löndum né í öðrum löndum?

Ómar Ragnarsson, 24.3.2015 kl. 13:34

2 identicon

 Sæll Halldór

Ég hef um árabil rekið fyrirtæki sem sérhæfir sig í smíði salernis-og þjónustuhúsa fyrir taldsvæði og ferðamannastaði.

Og skemmst er frá því að segja að eftirspurn eftir framleiðslunni er engin. Ég afgreiddi síðustu pöntunina í september á síðasta ári og nú er svo komið að ég hugleiði að loka búllunni og snúa mér að öðru.

Þetta segir allt sem segja þarf um ástandið og mig grunar að þú þurfir að bíða lengi eftir að það breytist til batnaðar. Ég er orðinn leiður á að bíða og er því eins og ég sagði áður, að íhuga mín starfslok í slernishúsaframleiðslunni.

 

 

 

 

 

 

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 24.3.2015 kl. 15:37

3 Smámynd: Jón Bjarni

Hvað segiru Halldór... heldur þú að það myndi verða okkur til góðs ef við segðum okkur útúr evrópska efnahagssvæðinu?

Hverjir væru helstu kostirnir við þá úrsögn.. tollar og vörugjöld á útflutning, höft á för fólks og þjónustu kannski?

Hvað eigum við að gera við alla íslendingina sem vinna í Evrópu og myndu missa atvinnuleyfið.. eða nemendurna sem stunda nám frítt eða á verulegum afslætti víðsvegar um álfuna..

Þvílíka bullið

Jón Bjarni, 24.3.2015 kl. 18:20

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þess má geta að í Bandaríkjunum borga allir fyrir náttúrupassan. Til dæmis borga "heimamenn" í Wyoming eða Montana, sem eiga heima í 30 kílómetra fjarlægð frá Yellowstone, sama gjald og ferðamenn frá Maine eða Florida,s em eiga heima í 4000 kílómetra fjarlægð. 

Ómar Ragnarsson, 24.3.2015 kl. 19:52

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Regluverkð ýr til Náttúrupassann Ómar.

Kári, þú ert í menninarframleiðslu. Hræðileg tilhugsun ef þú verður knúinn tilað hætta.

Jón Bjarni

Þetta gekk allt ágætlega fyrir EES. Ég var þá við nám í Þýskalandi.Ókostirnir eru tvöföldun á stjórnunarkostnaði rafmagnsveitna svo eitthvað sé nefnt. Að öðru leyti er þitt kratabull ekki líklegt til að greina neitt af viti

Ómar, þetta er stórmerkilegt sem þú segir. Ég þekki þetta ekki.

Halldór Jónsson, 25.3.2015 kl. 03:52

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég keypti sjálfur náttúrupassa í einu að aðgönguhlíðum þeirra um það bil 20 þjóðgarða og friðaðra svæða, sem við hjónin fórum í í Bandaríkjunum og það urðu ALLIR annað hvort að kaupa passa eða sýna hann. Vísa í blogg mitt um þetta. 

Ómar Ragnarsson, 25.3.2015 kl. 11:49

7 Smámynd: Jón Bjarni

Og hefur ekkert breyst síðan þú varst við nám í Þýskalandi Halldór.. ?  

Segðu mér hvað þú heldur að yrði um útflutning okkar til svæðisins ef við skyndilega verðum fyrir utan efnahagssvæðið?

Hvað verður um íslendingana sem búa í Evrópu í skjóli fjórfrelisins.

Hvað ferður um öll íslensku fyrirtækin sem starfa utan landsins í skjóli sama frelsis?

Jón Bjarni, 25.3.2015 kl. 18:46

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Fyrirtækin komast eins að. Það var búð að aðlaga tollskrárnar, útaf stóð einhver tollur á maríneraðrisíld.

Halldór Jónsson, 25.3.2015 kl. 20:47

9 Smámynd: Halldór Jónsson

En það er styttra til Evrópu en Ameríku og þessvegna hafa fiskviðskiptin flustst þangað og fyrirtæki eins og Samherji eru búin að komasér fyrir beggja vegna hafsins og hafa allt eins og þau vlja. Ég hef heyrt að Samherji eigi svona helming af öllum kvóta Íslendinga og svo mestan kvóta Bretlands og Þýskalands. Það eru þessir hagsmunir sem ráða  öllu . Það er enginn að amast við okkur ef við viljum koma í nám eða stofna fyrirtæki, hvorki  í Evrópu eða USA. Þessvegna er þetta EES með öllu óþarft og til bölvunar ef nokkuð er.Sjáið bara sóunina sem fólst í uppskiptingu raforkuðnaðarins í framleiðslu og sölu, tvöfalt búrokratí. Ríkisútvarpið ohf, ÁTVR, tollaþvinganir gagnvart Bandaríkjunum eins og Kostur fær að reyna, persónuverndin sem eyðilagði gagnagrunninn hans Kára og kemur í veg fyrir að hann kalli inn konur til lækninga sem eru að fá erfðatengt krabbamein. Sjáið allt krateríið sem ríður hér húsum allstaðar bara við pappírsframleiðslu og við að efla kjarabaráttu  opinberra starfmanna. Ónýtt grunnskólakerfi sem er að setja landið aftufr á Afríkustandard með ólæsi og óreikni stjórnuu ekki af yfirvöldum heldur kennurum og samtökum þeirra..  Schengen og hælisleitendur ætla að fara langt með að fylla landið af lýð sem enginn kærir sig um sem enn eykur á vanda skólanna.  En nóg af Evrókrötum sem vaða uppi  og heimta allt að sænskum siðum. Mér finnst þjóðfélagið allt annað en á einhverrri réttri siglingu  enda virðist dugmesta fólkið yfirgefa landið til austurs eða vesturs  og þriðjaheimslýður kemur í skarðið. Við sitjum uppi með þjóðfélag sem ekki  getur séð um öryrkja, einstæðar mæður né viðurkennt að geta ekki rekið heilbrigðiskerfið  fyrir fólk á vinnualdri. Gamlir mega éta það sem úti frýs end var þaim nær að hugsa ekki fyrir elliárum sínum sjálfir eins og Skallagrímur og Egill í stað þess að láta kratana stela af sér lífeyrinum þannig að allir hafa það skítt sem halda að þeir eigi eitthvað inni.

Halldór Jónsson, 25.3.2015 kl. 21:04

10 Smámynd: Jón Bjarni

Já, það er náttúrulega ekkert nema hryllingur sem hefur komið í gegnum EES, má þar nefna óværu eins og launþegavernd, reglur um samkeppni, neytendavernd og fleira sem var varla til staðar í íslenskri löggjöf áður.

Svo er náttúrulega nóga vinnu að hafa fyrir þær þúsundir íslendinga sem vinna og nema í skjóli EES.. 

Það er ekki nema rúmlega 80% af okkar útflutningi sem fer til ESB landa, það er nú varla svo mikið mál að finna bara nýja markaði fyrir þær vörur þegar þær hætta að vera samkeppnishæfar vegna tolla og annars kostnaðar. Svo ef við losnum einhvern tíma við höftin þá er það nú ekki mikið vesen þó að gjöld verði á alla fjármagnsflutninga héðan og til Evrópu.. 

Að halda það í alvöru að árið 2015 geti Ísland, örríki í Norður Atlandshafi sem er með allt meira og minna niðrum sig, staðið eitt utan sambands við önnur ríki er veruleikafirra.

Við höfum enn ekki náð því að standa á eigin fótum - fengu einhverjir meira en við í Marshall aðstoð.. það voru byggðir fyrir okkur flugvellir, vegir, það var lagður fyrir okkur ljósleiðari hringinn í kringum landið.. Og þetta var allt gert fyrir þjóð sem er ríkari en flest önnur af náttúruelgum auðlindum, ódýrri orku, vatni, hita, náttúru og fiski í sjónum.. 

Hér sitjum við svo.. 70 árum eftir fullveldi.. inni í gjaldeyrishöftum, getum ekki séð um öryrkja og gamalmenni.. og samt þarf maður að láta segja sér það að við séum svo frábær að okkur sé hollast að gera þetta bara ein

Fullkomin steypa

Jón Bjarni, 25.3.2015 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband