Leita í fréttum mbl.is

Óhugnaður

sest að manni við lauslegan lestur meira en hundrað greina frumvarps um útlendinga sem íslenskir þingmenn hafa samið og auðvitað koma að meirihluta af verulega vinstri kantinum í stjórnmálum og svo úr röðum stjórnleysingja.

Frumvarpsdrögin eru að þessu gefnu samin af "þverpólitískri þingmannanefnd "um  útlendingamál.

 Nefndina leiðir Óttarr Proppé alþingismaður en auk hans sitja í henni alþingismennirnir Birgitta Jónsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir og Össur Skarphéðinsson.

Ásamt þeim sat í nefndinni fulltrúi félags- og húsnæðismálaráðherra, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.

 Með nefndinni hafa starfað Erna Kristín Blöndal og Íris Björg Kristjánsdóttir, sérfræðingar í innanríkisráðuneytinu, Sigurbjörg Rut Hoffritz, lögfræðingur hjá Útlendingastofnun, auk sérfræðinga velferðarráðuneytisins, Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnunar.

Frumvarpið er að finna á www.innanrikisraduneyti.is og er óskað eftir athugasemdum við það. Sem vert er að hvetja til að gera.

Eftir lauslega yfirferð finnst mér við blasa að frumvarpið hnigi allt að því að gera hælisleitendum hærra undir höfði og takmarka rétt íslenskra yfirvalda, svo ekki sé minnst á rétt íslensku þjóðarinnar til andmæla,  til að taka á þessum málum af festu og fullveldi.

Þarna úir og grúir að skálkaskjólum fyrir hverskyns landhlaupara sem hingað koma og færir mönnum heim sanninn um hversu EES samningurinn er hættur að duga Íslendingum sem eyþjóð svo maður tali ekki um og Schengen aðildina.

 

Maður spyr sig hvert venjulegur Íslendingur getur leitað pólitísk í næstu kosningum til að verja sjálfan sig, fjölskyldu sína, íslenska íslenska þjóð og menningu þegar hinir kjörnu fulltrúar setja saman slíkt valdaframsal í hendur útlendinga. Koma menn auga á þá stjórnmálaflokka sem eru líklegir til að taka upp innflytjendamál með íslenska hagsmuni efst á blaði?

Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að kynna sér þetta frumvarp svo stóralvarlegt sem það er. Þarna er nauðsynlegt að berja ákveðið í borðið og láta ekki valta yfir sig með illa grunduðum rökleysum.

Verða Íslendingar ekki að hafa fullar heimildir til að snúa við skilríkjalausum útlendingum, láta læknisskoða hælisleitendur og geyma einstaklinga í sérstökum búðum meðan nauðsynlegar rannsóknir fara fram?

Er það vilji þjóðarinnar að þessum lýð sé dælt inn órannsakað og eftirlitslaust til dvalar meðal almennings?

Og svo heyrði ég á Útvarpi Sögu að Tony Omos sé kominn til landsins. Er ekki ástæða til að óska baráttufólkinu til hamingju með það sem því hugnast best?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór - sem oftar og jafnan, líka:: sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Með tilliti til þess: að þú settir inn þessa merku færzlu, í Hádeginu í dag - og einhverjir 27 búnir að lækja (líka/lækar, eða hvern fjandann á að kalla þetta fyrirbrigði Fésisbókar), en, ........ ENGINN EINASTI, virðist hafa þorað að setja inn almenna athugasemd, fyrr en með minni, sýnir okkur hvað bezt, á hvaða Mél- Ráfu brautum þorri þingmanna (utan Ásmundar Friðrikssonar), virðast ráfa, nú um stundir.

''Flóttamenn'' svokallaðir: er nýjasta innrásar bylgja þeirra Múhameðsku, inn í nágranna lönd okkar / sem og:: jafnvel hingað, óvopnaðir að vísu: en ekki síður skeinu hættur lýður, en þeir - hinna fyrri alda, fornvinur góður.

Óttar Proppé: og fylgjarar hans - yrðu gerðir LANDRÆKIR, í öllum almennilegum samfélögum, fyrir þetta gjörræði, sem þau hyggjast sýna okkur - sem komandi kynslóðum, þessa marg volaða lands:: þér, að segja, Verkfr. góður !

Svo - ekki sé nú minnst: á afætu flóru hinna ýmsu ráðuneyta, sem Óttari fylgja, í tilbeiðzlukenndri blindni, aukinheldur.

Með beztgu kveðjum - sem endranær, af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.8.2015 kl. 20:51

2 identicon

Sæll Halldór. Þetta er náttúrlega orðið algjört rugl og

við eigum að koma okkur sem fyrst úr Schengen.

Læt fylgja hér komment sem ég setti inná einn sem

var að fjalla um svipuð mál....


"Já, en Alþingi ætlar að flytja inn 25 múslimska homma og 25

múslimska einstaklinga sem þurfa á sjúkrahjálp og umönnun

að halda. Þá geta þeir bent umheiminum á hversu góðir þeir séu og

segja, sko, sjáið,

„Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. • Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“



Og svo er brosað og teknar myndir og allir hrósa hver öðrum

hversu góðir þeir séu og slengt svo fram að það ætti næst

að tvöfalda ef ekki þrefalda innflutning á svona fólki til

þess eins að sýna hversu rosalega góð við erum. Skál.

Skítt með fólkið sem byggir landið og hefur byggt upp

alla þá þjónustu sem þetta innflutta fólk á að fá svo

bara ókeypis á sama tíma og aldraðir og öryrkar hafa ekki í

sig og á. Þetta er náttúrlega ekkert í lagi.

En svona er Ísland í dag. Skömm þessarar vonlausu

stjórnmálastéttar pakks er mikil.

Við leysum ekki einu sinni okkar eigin

vandamál, heldur þarf að flytja þau inn líka.

Á meðan þessi glórulausa sýndarmennska viðgengst, þá er langt

í það að Ísland geti orðið sem það var fyrr á árum.

Okkur vantar stjórnmálamenn sem tala Íslensku og standa við sitt,

en ekki þetta froðupakk sem við höfum í dag.

Nýjan flokk sem fyrst, sem berst fyrir hag almennings

í landinu númer 1-2 og 3.

Komid nóg af thessu bulli.

M.b.kv.


Sigurdur Hjaltested (IP-tala skráð) 26.8.2015 kl. 23:39

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér, Halldór, þína dyggu varðstöðu fyrir þjóðarhag gagnvart þessu óþurftarmáli "rétttrúaðra" pólitíkusa og býrókrata. Við verðum að vinna vel að yfirferð frumvarpsins og fara vel í saumana á öllum göllum þess, meinlokum og kostnaðarsömum heimildum sem þar eru gefnar.

Þetta er okkar land, þjóðarinnar, ekki pólitíkusa.

Jón Valur Jensson, 27.8.2015 kl. 00:16

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sælir drengir! Ég væri löngu búin að setja inn athugasemd Óskar minn Helgi,en afkomendur á öllum aldri hafa verið hér,aðallega að hjálpa með ýmislegt auk raftækja og húsgagna sem mig vantaði og þau létu í té.Smá afmæli mitt í dag(26.)setti daginn í tölvunni í uppnám.En það fauk virkilega í mig,er viðskiptaþvinganir Rússa urðu að veruleika. Þá kom þessi "glaðningur" sem hér er til umræðu,en ég hef verið á Fcebook,vegna allra kveðjanna sem er vani að senda. Þar skiptist ég á skoðunum og sýnist margir alveg hoppandi eftir þennan gjörning.Það er eins og þessi framsóknar fantur hafi snúið þingheimi,vonandi ekki öllum.Við erum nægilega mörg til virkilega að láta til okkar taka.Við þurfum ekki að vera sammála um nokkuð annað en að krefjast  úrsögn úr Shengen og EES. Rétt eins og um Icesave á sínum tíma.En rétt þegar við höfðum unnið þann slag hélt Esb,herdeildin áfram að tæta og trylla og gera þingmenn hrædda um stöðu sína. Þessvegna hafna ég þeim(nema þeir gangi til liðs við okkur,vonandi erum við sammála).Það er ekki hægt að vinna þennan slag,með nokkurn þeirra innanborðs eftir að hafa opinberað aumingjaganginn. Ég kveð með eld í æðum og bíð góða nótt. Það þarf ekki stórkapital ef eða PR. við skipulag mótmæla sem bragð er af.MB.KV.

Helga Kristjánsdóttir, 27.8.2015 kl. 02:56

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Leiðist að skrifa ekki "bíð"með uppsiloni sem þýðir allt annað en með því einfalda.   Býð góða nótt.

Helga Kristjánsdóttir, 27.8.2015 kl. 03:50

6 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

kæra Helga,sov þú rótt, og ´rg þakka þér gott blogg sem fyr

Bloggvinar kveðja.

kridtjan9

Kristján P. Gudmundsson, 27.8.2015 kl. 04:35

7 identicon

Komið þið sæl - sem fyrr !

Nafna mín Kristjánsdóttir !

Heillakveðjur til þín: og þinna, í tilefni afmælisins.

Óþurftarmál - kallar Jón Valur fjölfræðingur gjörninga, þorra alþingismanna.

Fremur vægt: til orða tekið, Jón Valur.

ÓFORBETRANLEGUR GLÆPALÝÐ - ætti fremur, að kalla Óttar Proppé, og þetta ómerkilega lið, sem fylgir honum að málum.

EKKI FERÞULUNG: í neins konar eftirgjöf eða mildi, til handa Múhameðskum villimönnum hérlendis né annarrs staðar, gott fólk !!!

Með þeim sömu kveðjum - sem hinum síðustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.8.2015 kl. 12:15

8 identicon

.... FERÞUMLUNG: átti að standa þar, vitaskuld.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.8.2015 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband