Leita í fréttum mbl.is

Gleymum þessu ekki

næst þegar við horfum á deilur milli okkur óskyldra aðila út í heimi. Það er ekki alltaf vit í að skipta sér af slagsmálum nema ef menn geta gengið á milli og stillt til friðar. Hlutleysi felst ekki í því að veita öðrum aðilanum lið.  

 

Höfundur Reykjavíkurbréfs minnti okkur á að það hefur stundum reynst erfitt fyrir okkur að koma tannkreminu aftur í túbuna þegar og fast hefur verið kreist. Því er væntanlega eins farið með tillögu Borgarstjórnar gagnvart Ísrael. Það sé sama hvað gert sé í framhaldi, það verði erfitt verk fylla þær sprungur sem myndast hafa.

Veit maður í  rauninni nokkuð hvað hægt er að taka til bragðs án þess að málið bara ýfist ekki upp? Hugsanlega er verður það tíminn einn sem dregur tjald sitt yfir þessa atburði.Og að sýna í verki góðgirni og sáttarhug.

Við ættum sjálf að draga okkur lærdóm af þessu. Við skulum ekki gleyma því að fara gætilegar í alþjóðapólitíkinni og muna að venjuleg fljótfærni og flumbrugangur á þar illa heima. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Hefur enginn fréttamaður enn lagt þá viðkunnanlegu spurningu fyrir Dag Bergþóruson, hvort hann "hafi íhugað stöðu sína". 

Fyrirtæki í landinu, sem sannað geta tjón af völdum bægslagangs í borgarstjórn, hljóta að íhuga skaðabótamál á hendur borginni.

Ekki batnar fjárhagur borgarinnar við þetta asnaspark vinstri manna og píratans í borgarstjórn. 

NB píratinn.  Lágt fór "opna umræðan" um innkaupabannið áður en ákvörðun var tekin.

Þetta lið hefur afhjúpað sig sem lýðskrumara, sem ekki eiga að koma nálægt stjórnun á einu né neinu fyrir annarra hönd.

Bjarni Jónsson, 21.9.2015 kl. 13:28

2 identicon

Tek undir allt sem Bjarni segir. Þetta lið á að segja af sér og aldrei koma nálægt neinu sem heitir vinna fyrir almenning.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 21.9.2015 kl. 14:11

3 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Vel: get ég tekið undir, með ykkur Bjarna, sem og fornvini okkar, Sigurði K Hjaltested.

En - gleymum EKKI, framkomu Skagfirzku glæpa spírunnar, Gunnars Braga Sveinssonar og félaga hans heldur, í garð Rússa, núna í Sumar !

Gunnar Bragi Sveinsson: er svona viðlíka mannleysa - og Dagur B. Eggertsson piltar / og ætti að njóta sams konar typtunar, sem Borgarstjóra fíflið, alræmda !!!

Með: hinum beztu kveðjum - sem ávallt / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.9.2015 kl. 14:37

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Bjarni, Sigurður vinur og Óskar Helgi fornvinur. Það verður nú torsótt að sækja bætur frir afleiddan skaða eins og þð er kallað. Svo er það stjórnaskrárvarinn réttur að vera bjáni og afglapi sem ekki er hægt að svipta af mönnm.Hinir verða að gæta sín á því að skilja þessa fíla ekki eftir í glervörubúðinn sem var gert í síðustu kosningum af mörgu fólki sem nú nagar neglurnar.

Halldór Jónsson, 21.9.2015 kl. 16:29

5 Smámynd: Bjarni Jónsson

Það er engum blöðum um það að fletta, að það vantar mikilvægar blaðsíður í þennan borgarstjóra.  Í morgun mun hann hafa harmað að hafa valdið borgarstjórnarmeirihlutanum tjóni.  Hverjum stendur ekki a sama um það.  Hann hefur valdið Reykvíkingum og Íslendingum öllum álitshnekki og fjárhagstjóni.  Borgarstjóri Samfylkingarinnar harmar það hins vegar ekki opinberlega.  Þetta mál á eftir að draga dilk á eftir sér, svo að notað sé orðalag, sem hæfir réttardögum.

Bjarni Jónsson, 21.9.2015 kl. 17:03

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Velti fyrir mér hvers vegna Umboðsmaður Alþingis hefur ekki hafið frumkvæðisathugun á stjórnsýslu borgarinnar, þar sem vinargreiðar ráða ákvarðanatöku. Oft hefur tilefnið verið minna.

Ragnhildur Kolka, 22.9.2015 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband