Leita í fréttum mbl.is

Ungir á Landsfundi

virðast halda að þeir geti fengið ungt fólk af öllu Íslandi til að játa flokknum fylgi í næstu skoðanakönnun ef þeir geti til dæmis velt Gulla úr embætti ritara, fengið brennivínsíbúðirnarsamþykktina í gegn og kálað krónunnni í stórtækri tillögugerð?

Ég held að svona leiftursókn dugi ekki gegn Pírötum og þeirra Shangrílasýn á þjóðfélag. Unga fólki virðist nokkuð tvíátta. Það virðist eitthvað biðja um leiðsögn og samvinnu við þá eldri. Unga fólkið vill skiljanlega líka sjá dáðir en ekki drýgindi því flokkurinn er í stjórnarsamstarfi. Raunhæfar aðgerðir sem hægt er að sanna á eigin buddu en ekki efla ber styrkja ber,..þuluna sem við kunnum utan að.

 Verðum við ekki að horfast í augu við það að skuldaleiðréttingin hitti ekki í mark?. Hún er þökkuð Framsókn en ekki okkar flokki sem varð þó að afla peninganna sem hún kostaði?. Skilaði hún nokkru til stjórnarflokkanna  nema nákvæmlega núlli þegar upp var staðið? Dýru atkvæðanúlli? 

Hvað erum við Sjálfstæðismenn að bjóða núna?

Erum við eitthvað öðruvísi en VG á Selfossi? Er Ólöf  sætari en Kata?  Berum við núverandi flokksmenn næga virðingu fyrir Sjálfstæðisflokknum sögu hans og gildum? 

Er Sjálfstæðisflokkurinn dagsins í dag orðinn fjölmenningarsinnaður flokkur sem vill fjölga flóttamönnum sem allra mest? Vill hann að hér rísi ghettó í stíl við litlu Ítalíu, Harlem, Kínabæ sem eru hugtakinu tengd? Hvaða afstöðu hefur þessi flokkur til íslenskrar  menningar, tungunnar og sögunnar eins og við hin eldri þekktum hana?

Um hvað snýst þessi Landsfundur? Uppreisn kvenna? Æsingar ungra? Eða hin gömlu gildi ungra sem eldri? 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það var vitað mál að skuldaleiðréttingin mundi gufa upp í skítalykt ef verðtryggingin væri ekki afnumin sama dag.

Bjarni Ben og hans beztu vinir fengu skuldaleiðréttinguna beint i vasan.

En af hverju er fylgi Sjálfstæðisflokksins að síga lengra niður í hverjum mánuði?

Svarið er einfallt, Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur að berjast fyrir rétti og velferð einstkalinga, heldur er þetta farið útí að styrkja sérhagsmunahópa eins og flótta og hælisleitendur og já konur. Til hvers að vera með kynjakvóta, eru konur ekki nógu góðar að standa í stykkinu, so to speak.

Nei það er orðinn lítill munur á Sjálfstæðisflokknum og hinum flokkunum, þess vegna sitja 30% til 40% kjósenda heima á kosningadegi af því að það er ekkert val.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 25.10.2015 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband