Leita í fréttum mbl.is

Skrílslæti á Landsfundi

er fyrirsögn á frétt Vísis á framkomu Unnar Brár Alþingismanns, nýkjörins ritara flokksins Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur og ólátasöfnuði ungra á Landsfundinum. Fréttin er svohljóðandi:



"sir bað Gústaf, en honum er brugðið, að lýsa þessu atviki eins og þetta horfði við honum.

„Ég fer í púltið og segi: Hér sé ég engan mann með túrban, hér sé ég engan blökkumann, hér sé ég enga konu með blæju. Um hvaða fjölmenningu eruð þið eiginlega að tala hér?“ Þá var það umsvifalaust notað að ég væri að tala illa um blökkumenn. En, ég var nú bara að lýsa því sem ég sá.“

Þá upphófust mikil hróp og köll í salnum?

„Já, þetta er ekki í samræmi við góðar venjur í Sjálfstæðisflokknum. Svo dæmi sé tekið, þegar fundarstjórinn er að lesa upp tillögu okkar Jóns stappaði unga fólkið í gólfið og lyfti rauða spjaldinu til að trufla fundarstjórann. Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins á Landsfundi. Og þar fór hinn nýkjörni ritari fremstur í flokki. Fundastjóri þurfti að sussa á mannskapinn. Þetta er náttúrlega með ólíkindum. Skrílslæti. Maður hélt að maður væri um borð í flaggskipi lýðræðisins í landinu. En þetta er ótrúlegt.“

Gústaf er afar ósáttur og segir augljóst að tjáningarfrelsið á undir högg að sækja í Sjálfstæðisflokknum. „Það sem er að gerast er að Sjálfstæðisflokkur hefur valið að taka upp stefnu VG og Samfylkingar í málefnum innflytjenda og flóttamanna. Það er bara þannig, og ekkert meira um það að segja.“

Hneyksli hvernig haldið var á málum
En, þetta mega heita kaldar kveðjur?

„Jájá, það var mjög sérstök upplifum að átta sig á því að flokkurinn í raun og veru hafnar sígildum vinnubrögðum sínum sem ganga út á að leita málamiðlana í miklum ágreiningsmálum. Auk þess er þetta mál svo nýtt í íslenskum stjórnmálum, þessir eldar sem kviknað hafa vegna þrýstings innflytjenda og flóttamanna. Þetta þarf að ræða út í hörgul frekar en taka upp stefnu Vg og S. Þessi vinnubrögð eru ekkert í anda Sjálfstæðisflokksins. Þessu hefði þurft að vísa til miðstjórnar flokksins til úrlausnar, svona miklum ágreiningsefnum.“

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson á landsfundinum um helgina. „Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins á Landsfundi. Og þar fór hinn nýkjörni ritari fremstur í flokki.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson á landsfundinum um helgina. „Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins á Landsfundi. Og þar fór hinn nýkjörni ritari fremstur í flokki.

Gústaf segir að þessar trakteringar hafi verið að undirlagi yngra fólks, sem lét mjög til sín taka á Landfundinum. Og hann segir hneyksli hvernig haldið var á málum.

„Fundastjórnin og hvernig formaður málefnanefndar héldu á þessum málum er náttúrlega hneyksli. Þetta átti að vera á dagskrá klukkan 11 að sunnudagsmorgni. Svo náttúrlega tafðist fundurinn, klukkan er orðin hálf sjö um kvöldið þegar þessi hluti ályktunar kemst á dagskrá, flestir farnir aðrir en yngstu fundarmenn og ótrúleg vinnubrögð; þau voru skipulögð með þessum hætti.“

Dónaskapur hins nýkjörna ritara


Gústaf segist ekki ætla að grípa til þess að segja sig úr flokknum, þó ósáttur sé. „Neinei, nú líður tíminn. En, margt í þessum einkennist af panikk-viðbrögðum. Og hvað er til ráða, til hvers ætla blessaðir mennirnir að grípa þegar fylgið fer niður fyrir 20 prósentin?“ spyr Gústaf og telur þetta ekki vænlega leið til að auka fylgið. Hann segir þetta barnaleg viðbrögð og menn hlusti ekki á rök.


Jón Magnússon hefur tjáð sig um málið á Facebook-síðu sinni, en þar er hann inntur eftir meintum dónaskap. Hann segir að sjálfur hafi hann fengið gott hljóð en „framkoman var hins vegar óásættanleg sérstaklega formanns nefndarinnar og hin nýkjörna ritara flokksins sem og fundarstjóra sem tók málið ekki á dagskrá fyrr en nánast allir nema hópur ritarans voru horfnir til síns heima enda átti fundinum að ljúka tveim klukkutímum fyrr."

 

Hér er málunum lýst satt og rétt samkvæmt þvi sem ég horfði á sjálfur. Ég veit ekki hvernig ungir hugsa sér að ná til nýs fylgis við flokkinn. Það er helst að halda að þeir bindi vonir við að nógu margir flóttamenn fylli raðir flokksins og flokkurinn losi sig við þá gömlu menn sem vilja ræða hlutina með því öskra þá og stappa niður.

Ég er búinn að fá pósta frá fólki sem segist núna vera búið að fá endanlega nóg af Sjálfstæðisflokkknum eftir þetta flóttamannaútspil ungra og Unnar Brár í skrílslátum á Landsfundi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband