Leita í fréttum mbl.is

Er gróði að innflytjendum?

Það eru til þeir sem reikna sig í gróða af "innflytjendum" þegar teknar eru skatttekjurnar af launum þeirra sem eru að vinna úti í þjóðfélaginu. Ef lagður er við þær sem hagnaður það sem það kostar okkar samfélag að ala upp jafnaldrann, en dregið frá það sem þessi "innflytjandi" tekur úr kerfinu af bótum meðan hann er að vinna, þá kemur út stórhagnaður. 

En "innflytjandi" er ekki sama og innflytjandi. Það er reginmunur á til dæmis Pólverja sem kemur hingað til þess eins að afla sér tekna, borgar skattinn sinn, kjaftar ekki í gemsa í vinnutímanum, er aldrei veikur eða heima yfir veiku barni.

Til viðbótar er að hann tekur trúlega aldrei eftirlaun úr lífeyrissjóðnum sem hann er látinn borga í,verður gamall og deyr heima hjá sér,  þá er auðvitað rokgróði af þessum "innflytjanda". Sé svo kostnaðurinn af  því að ala upp jafnaldra hans íslenskan lagður við þessa tölu er allt komið í plús.

En þessi Pólverji er bara ekki endilega innflytjandi heldur gestavinnumaður. Hann fer alveg eins heim til sín þegar hann er búinn að græða hér fyrir húsi, bíl og ísskáp í heimalandinu og kemur ekki aftur.En flest er þrisvar sinnum ódýrara í Póllandi en hér, bæði hús og  matur en viskíið er hinsvegar fjórum sinnum dýrara hér en þar.

Innflytjendur frá Afríku, Sýrlandi eða öðrum arabaríkjum og suðrænum spænskumælandi löndum, sem eru allt aðrir menningarheimar en okkar, eiga erfitt með að fá vinnu. Þeir eru staddir svipað eins og Egill Skallagrímsson væri ef hann birtist skyndilega meðal okkar í nútímanum með kjálkana tilbúna að bíta á barkann á þeim sem hann teldi það verðskulda. Þeirra bíður því miður að fara á sósíalinn því þeir fóta sig ekki í daglegu lífi okkar. Og þegar við bætist vanþóknun þeirra sem fyrir eru á siðum þeirra þá verður lítill hagnaður af tilkomu þeirra og líklega verða þeir seint hamingjusamir hjá okkur.Af þessum innflytjendum er erfitt að reikna út gróða.

En sé stungið upp á því að Ísland velji úr framboðnum flóttamannafjölda vegna einhvers alþjóðlegs þrýstings  þá er stutt í vandlætinguna hjá góða fólkinu.Þetta eru svo mikil kærleiksverk að bjóða flóttafólki hingað að raunsæi má hvergi heyrast nefnt.

En það má reikna og reikna sig í gróða ef maður gefur sér þær forsendur í innflytjendamálum sem maður telur sér henta hverju sinni.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vandamálið við að koma þessu fólki í vinnu er að það kann lítið til verka og svo tungumálaörðugleikar. Í Þýskalandi hefur það sýnt sig að brottfall afkomenda innflytjenda úr starfsnámi er 70% á meðan brottfall annarra nemenda er um 25%. Það er erfitt að sjá hvernig ma reikna sig til gróða þjóðhagslega ef þetta fólk leggur sig hvorki eftir tungumáli eða iðn.

það er fyrir neðan þeirra virðingu að vinna og meðan þeir geta haft alla þessa viljugu þræla til að sjá um velferð þeirra, þá er lítill hvati til að vera að ónáða sig.

Ragnhildur Kolka, 29.10.2015 kl. 17:21

2 identicon

Hver dagur ber með sér nýjar sögur á sæluríkjum hælisleitenda.
Hér er t.d. ein:
http://www.dailymail.co.uk/femail/article-3293843/Father-claimed-benefits-10-years-says-not-irresponsible-having-ELEVEN-children-god-s-command-forth-multiply.html

11 barna faðir, múslimi, hefur ekki unnið í 10 ár, en safnar þess í stað börnum og bótum.

Það er náttúrulega stórgróði af þessum manni.

Hilmar (IP-tala skráð) 29.10.2015 kl. 19:00

3 Smámynd: Halldór Jónsson

 Já það er allsaðar vandlifað Ragnhildur þó maður sé bara venjulegur Íslendingur. Við höfum líklega aldre kunnað að lifa, vera kerfisfræðingar eins og maður kallar svona fólk eins og þessi barnakall sem Hilmar vísar til. Ég vissi ekki að þeir múslímar eru á móti getnaðarvörnum eins og kaþólikkar hjá okkur.

Halldór Jónsson, 29.10.2015 kl. 21:33

4 identicon

Það kallast ekki raunsæi að ætlast til þess að hjálparstarf skili hagnaði. Við notum allt annað orð yfir það.

Jós.T. (IP-tala skráð) 29.10.2015 kl. 22:52

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hér er skelfileg frétt um innflytjendur kæri Halldór sem ber fyrirsögnina :

Germany: Migrants' Rape Epidemic

http://www.gatestoneinstitute.org/6527/migrants-rape-germany

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 29.10.2015 kl. 23:58

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Við Íslendingar ættum að prófa að vísa öllum innflytjendum á Vestfjörðum frá síðustu 20 árum úr landi og banna að nokkur útlendingur flytti þangað.

Þá myndi allt atvinnulíf í þessum landsfjórðungi leggjast niður og hann fara að mestu leyti í eyði.  

Ómar Ragnarsson, 30.10.2015 kl. 08:40

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, sérð þú engan mun á kristnum Pólverja og múhameðskum Araba sem ekki talar ensku. Þú kannski tekur við slíkum þar sem hann kemur í desember

Halldór Jónsson, 30.10.2015 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband