Leita í fréttum mbl.is

150 vélbyssur óskast

í útboði lögreglunnar á Evrópska Efnahagssvæðinu?

Ennfremur kannski skotheld vesti og hjálmar verði boðin út. Og svo verða hugsanlega vanir menn ráðnir í auglýstar stöður af sama svæði þegar fjárveiting hefur fengist? Vantar ekki að birta lista í DV yfir nöfn og heimilsföng þeirra sem skipa sérsveitina núverandi? Er Snorri enn með byssu í töskunni?

Er ekki þýðingarmikið að Katrín Jakobsdóttir. Birgitta Jónsdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Svandís Svavarsdóttir og hugsanlega fleiri súffragéttur af vinstri vængnum fái að fylgjast með öllum útboðsmálum löggæslu og öryggismála eða hvað? Verður Ólöf Nordal svo látin annast PR málin og nauðsynlegan leka á eigin spýtur og ábyrgð? 

Skyldu engum málum sem varða öryggi ríkja vera haldið til hlés frá opinberrri umræðu annarsstaðar eins og í Frakklandi, Bandaríkjunum og Bretlandi? Af hverju er talið nauðsynlegt að á Íslandi séu öll löggæslumálefni rædd fyrir opnum tjöldum á bæði á Alþingi og í DV? Fór ekki þannig með billegu norsku byssurnar að þetta lið kjaftaði þær úr landi?

Finnst okkur virkilega um að gera að ISIS fái ávallt að vera vel upplýst um stöðu vopnabúnaðar hér á Íslandi á hverjum tíma?

Vonandi fylgist almenningur með hverju verður eytt núna í útboði á 150 vélbyssum þegar kaupin verða boðin út?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Væri ekki nær að herða eftirlit hjá Tollinum við helstu inngönguhlið inn í landið?

Vil Ríkislögreglustjórinn t.d.vera í Schengen eða bakka þaðan út?

Jón Þórhallsson, 19.11.2015 kl. 09:18

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Við þurfum að koma þessum ábendingum þínum til Bandaríkjaþings og þinga annarra hervelda sem takast á um og ræða um kaup á einstökum gerðum herþotna og hvers kyns búnaðar fyrir opnum tjöldum.

Ómar Ragnarsson, 19.11.2015 kl. 10:03

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er ekki hæpið að einhverjir isis-meðlimir sleppi í gegnum tollinn okkar með einhverkonar vélbyssur?

Ef að það sjást einhverjir dularfullir menn á ferðinni með vélbyssur; þá yrði væntanlega hringt í Víkingasveitina; er það ekki?

Jón Þórhallsson, 19.11.2015 kl. 11:01

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Á hvern á að beita þessum 150 vélbyssum?

Jón Þórhallsson, 19.11.2015 kl. 11:11

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, visiir þú umsealth flugvélarnar þegar Íraksstríðið byrjaði? Ekki ég.

Ertu voða fyndinn Jón Þórhallsson. Eru margir sem hlæja að þér?

Halldór Jónsson, 19.11.2015 kl. 11:25

6 identicon

Þegar dæmin sanna að hér má helst eiga von á falún gong liðsmönnum í hópum, umhverfisverndarsinnum í bílförmum og mótmælum vinstrimanna þegar næsta bankaúthlutun til vildarvina á sér stað þá sér hver heilvita maður að 150 vélbyssur eru lágmark.

Svo skilst mér að þær virki mjög vel við rannsóknar og eftirlitsstörf og geti þannig komið í veg fyrir illvirki. Sprengjur illmenna springa víst ekki ef nægur fjöldi vélbyssa er í landinu, það er eitthvað feng sjúí dæmi svona eins og allir verða orkulausir í húsi þar sem klósettsetan er uppi.

Espolin (IP-tala skráð) 19.11.2015 kl. 13:13

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, stendur ekki að birta lista í DV yfir nöfn og heimilsföng þeirra sem skipa sérsveitina núverandi?

Var það ekki DV sem tók sér bessaleyfi til að birta uppl. um byssueign lögreglu í bílum hnnar og hvar þær væru geymdar þar?!

Þvílíkt ábyrgðarleysi!

Lögreglan og LHG eiga strax að kalla eftir byssunum 150 sem Norðmenn hugðust (sama sem) gefa okkur. Hættið, ráðamenn, að beygja ykkur eins og bleyður fyrir kröfugerð  vitvana vinstri manna!

Sjá einnig grein mína í dag: http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/2160041

 

Jón Valur Jensson, 19.11.2015 kl. 15:00

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvað með siðmenntaða verkferla sem koma löggjafaþinginu ekki á óvart?

Væri það ekki rétt aðferð við allt í stjórnsýslukerfinu?

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.11.2015 kl. 15:24

9 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mikið treysta menn ríkisstarfsmönnum allt í einu.

Viðbragðstími lögreglunnar í hryðjuverkaárásum er venjulega tíminn frá því fórnarlömbin hringja í 112, og þar til löggan finnur af þeim líkin.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.11.2015 kl. 15:57

10 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Traust?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.11.2015 kl. 16:46

11 identicon

Og hvað ætla menn að gera með 150 vélbyssur? Bara þetta orð hljómar eins og krakkar eiga í hlut.

Ef menn vilja eyða peningum í vitleysu, þá væri kanski betra að ráða lið með "vit" í hausnum í stöður, og auka starfsemi "leyniþjónustu" í landinu. Að hafa fólk í stöðum, sem telja alla vera svo gott fólk og allar gáttir eigi að opna, er eitthvað sem þarf að fyrirbyggja. Og miklu meiri þörf á, en vélbyssur.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 19.11.2015 kl. 23:20

12 Smámynd: Halldór Jónsson

 Bjarne, svaka ertu gáfaður.auðvitað sáu Norðmenn að það var ekkert gagn í þessum vélbyssum svo það var alveg óhætt að gefa þær til Íslands. En gætirðu ekki Bjarne útvegað okkur óyggjandi sönnun þess að Norðmenn hafi ekki keypt neinar byssur í staðinn? sem sagt þeim hafi fækkað hjá Norðmönnum? Enda er ekki meiri þörf hjá þeim fyrir vélbyssur en hjá Íslendingum . Þeir hljóta þ´vi að hafa fundið fólk með vit í kollunum, jafnvel gott fólk líka.

Halldór Jónsson, 19.11.2015 kl. 23:31

13 identicon

Ég er ekkert gáfaður Halldór, hættu nú þessu.  En hvað ætlarðu að gera við 150 vélbyssur? Ef við eigum að útvega okkur 150 vélbyssur, bara EF svo skildi fara að einhver hryðjuverkamaður skildi villast til Íslands. Svo hægt væri að freta hann niður, og alla sauðina í kringum hann líka.

Ùr því við erum að fá okkur vopn, svona til öryggis ... eigum við þá ekki að útvega okkur fleiri leikföng.  Til dæmis rakettur, nokkrar Su35 og kjarnorkusprengju ... það er aldrei að vita nema tjallin geri aftur árás á Ísland ... þá eigum við allavega rakettur og byssur til að skjóta með.

Persónulega, tel ég vera miklu meiri þörf á því að auka öryggisgæslu við hafið í kringum Ísland. Byggja upp landhelgisgæsluna, upplýsingatækni.  Og vakta flugumferð og hverjir koma til landsins, og vera á varðbergi.

150 vélbyssur, hafa nákvæmlega ekkert upp á sig.  Því það er of seint að grípa fyrir rassgatið, þegar allt er komið í buxurnar.  Það eina sem skotgleði Frakka hefur orsakað, eru fleiri dauða ... meira hatur gegn Evrópu. Hefði ekki verið viturlegra, að gæta landamæranna og hverju maður sé að hleypa inn.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 20.11.2015 kl. 00:09

14 Smámynd: Halldór Jónsson

 Var ekki Breivik kominn fyrir löngu? Hefði lögreglan ef hún hefði mætt átt  að tala hann til? Nota piparúða? Ég hefði talið að einhver myndi hafa viljað hafa eitthvað annað. 

Ertu ekki stundum talsvert gáfaður Bjarne? Býrðu annars ekki í Noregi?.

Halldór Jónsson, 20.11.2015 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband