Leita í fréttum mbl.is

Schengen samningurinn bregst ekki

virðist manni helsta niðurstaðan þegar Ólöf Nordal kemur  heim blaðskellandi af fundi evrópskra ráðamanna um Schengen samninginn. Þar var fjallað um þá þjóðflutninga sem nú eiga sér stað í Evrópu. Nú hafi einhverjir áhyggjur af landamæraleysinu?

Keltar, Gotar og Vandalar eru farnir hjá fyrir allnokkru. Rómverska ríkið er líka horfið. Á okkar tíma koma nú Arabarnir og Afríkubúar í þeirra stað. Engar Legíonír tiltækar.

Hver veit hversu margar milljónir eru ekki reiðubúnar að skipta um sveitfesti þessa dagana?  Er ekki ástandið verra víða en hjá okkur akkúrat núna?

Þarf þá ekki að ráðslaga um þetta mál í heild í Evrópusambandinu á miklum ráðstefnum? Vantar ekki sumar þjóðir þræla vegna skorts á náttúru? Aðrar óttast samkeppni um störfin?  

Þannig er þetta Evrópusamband. Ráðalaust ef taka þarf ákvarðanir eins og ávallt áður þegar til stykkisins kemur. Hefur engann þjóðarvilja, ekkert þjóðarstolt, engann fána?

Ekki neitt?

 

Auðvitað er allmikill fjöldi fólks utan Evrópu þeirrar skoðunar að betra sé að svelta í hinni sósíaldemokratisku Evrópu en í hinni frumstæðri Afríku eða hinum skelfilegu, heimsku og siðlausu  Mið-Austurlöndum múslímanna.Lái þessu fólki hver sem vill.

Mér skildist að þeir vísu menn sem Ólöf hitti hafi orðið sammála um að styrkja þyrfti ytri landamæri Schengen. Sem liggja víst um Ísland af einhverjum gleymdum ástæðum.

Skyldi þetta þýða að Bandaríkjamenn og túristi eins og ég sem kem frá Flórída úr fríi á næsta vori verði skoðaðir miklu betur en nokkru sinni fyrr?

En hælisleitandinn, sem hefur refsilaust ekkert vegabréf. Hann búi við óbreytt ástand og óbreyttan kærleika?   Innri landamæri Schengen séu eftir sem áður ágæt og þarfnist engra endurbóta? Bara Íslendingar búi við vegabréfaskyldu  í eigin landi? Fari ekkert um Keflavík nema sýna íslenskan passa?  

Schengen samningurinn virðist ekki ætla að bregðast íslenskum stjórnmálamönnum úr öllum flokkum hvorki í bráð né lengd. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Halldór keep writing.

Elle_, 21.11.2015 kl. 00:40

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Thanks Elle

Halldór Jónsson, 21.11.2015 kl. 09:38

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þegar gávaðir lýðræðislega kjörnir fulltrúar á þjóðþingum haga sér eins og flón, þá rifjast upp orð Sveins á Litluvöllum látins vinar sem þá var gamall en ég ungur og voru einhverneigin á þann veg að gáfum fylgdi ekki endilega skinsemi og þó væri hún að ollu jöfnu hentugri.  

Hrólfur Þ Hraundal, 21.11.2015 kl. 12:56

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hver skyldi ástæðan vera fyrir því að Bretar vildu aldrei gerast aðilar að Schengen????

Jóhann Elíasson, 21.11.2015 kl. 14:23

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Schengen gerir  gagn við að létta af álagi á landamæra stöðum þar sem þúsundir bíla fara um á degi hverjum. 

En það eru engar hraðbrautir um Ermasund og þaðan af síður um hafið á milli Evrópu og íslands.

Af hverju eru Íslenskir stjórnmálamenn heimskari en breskir?.      

Hrólfur Þ Hraundal, 21.11.2015 kl. 16:26

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Gott að þú skrifaðir "Af hverju eru Íslenskir stjórnmálamenn heimskari en breskir?"

Það er sama hvað það er, þegar Íslenskir sjórnmálamenn þurfa að hafa afskipti og eða viðskipti við erlenda stjórnmálamenn t.d. IceSave samningarnir þá eru íslensku heimsku stjórnmálamennirnir teknir í nefið, so to speak.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 21.11.2015 kl. 19:11

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Horfa þeir ekki bara í Shengen styrkinn en keflavíkur flugvöllur þ.e. kring um Leifsstöð er víggyrtur á þrjá vegu en opin í austur þar sem flugvélarnar fara út. Reyndar hefir verið hægt að skríða undir girðingarnar á mörgum stöðum. Eins og Halldór segir þetta eru heimskir pólítíkusar. 

Valdimar Samúelsson, 21.11.2015 kl. 20:59

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Hvernig lesa andstæðingar okkar í stöðuna? Margir hafa lagt niður mótmælaskrif,eru orðnir pollrólegir. Er það svo að þeir telji flóttamenn þann óvænta liðsauka sem muni slá vopnin úr höndum okkar? Þeir þekkja eðli okkar,sem þeir reyna að núa okkur upp úr,um leið og þeir þakka (sínum guði)fyrir rétttrúnað sinn.Ég geri þá kröfu til stjórnvalda,að kristnir sem eru ofsóttir verði valdir í þann hóp sem kemur á næstunni. 

Helga Kristjánsdóttir, 22.11.2015 kl. 04:32

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Helga, væri ekki líklegra að kristnir aðlöguðust okkur en múslímar með allt aðra siði? Mér finndist það einhvernveginn líklegra

Halldór Jónsson, 22.11.2015 kl. 09:01

10 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Helga ég spyr hvar eru kristnu Sýrlendingarnir. Það talar engin um það en ég vil minna á aðgerðir Palestínumanna í Lebanon en þeir drápu flestalla Kristna það já þetta voru ekki ISIS né Talibanar heldur Palestínumenn hlustið á Brigittu Gabríels  https://youtu.be/PFO1AtjoUoo

Valdimar Samúelsson, 22.11.2015 kl. 10:05

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Lásuð þið ekki allt sem ég skrifaði,er hægt að misskilja það? 

Helga Kristjánsdóttir, 23.11.2015 kl. 01:41

12 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Helga ég les athugasemdir Halldórs og Valdimars að þeir eru sammála þér og ég tek í sama streng.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 23.11.2015 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband