Leita í fréttum mbl.is

Áslaug Arna

Sigurbjörnsdóttir ritari Sjálfstæðisflokksins var á fjölmennum fundi flokksins í Kópavogi á laugardaginn.

Áslaug Arna er fullorðin kona þó ung sé. Hún hefur starfað sem lögreglumaður og er nú í meistaranámi í lögfræði. Hún kom mörgum fundarmanni í opna skjöldu með sjónarhorn sem okkur eldri gleymast stundum. Hún varaði okkur við að tala niður til Pírata. Þeirra fylgi væri það fólk sem væri okkar með réttu ef okkur hefði tekist að koma okkar boðskap til skila. Okkur hefði bara mistekist þetta. Sjálfstæðisstefnan höfðaði til mun stærri hluta fólks en skoðanakannanirnar segðu til um. Þarna hefðum við verk að vinna.

Okkur tækist ekki að fá ungt fólk til að tala  um stjórnmál eða starfa að þeim. Ekkert stjórnmálastarf væri í framhaldsskólum landsins þar sem áður hefði verið mikið starf. Nú mættu Sjálfstæðismenn ekki koma í skólana nema að hafa alla flokka í fylgd með sér.

Margrét Friðriksdóttir skólameistari sagði skýringuna vera þá að flokkarnir sýndu engan áhuga á að tala við nemendur nema kortéri fyrir kosningar. Þá væri ekki stætt á öðru en að bjóða öllum flokkum það sama. Stjórnmálastarf væri bara ekki neitt innan skólanna milli kosninga.

Umræður urðu um fjármál Sjálfstæðisflokksins og komu nú skörp skeyti frá Labba eins og í handboltanum í gamla daga. Flokkurinn væri sokkinn í skuldir og yrði því tannlaus. Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri flokksins, varð fyrir svörum og rakti það hvernig bæði hefðu tekjur fallið um helming  og skuldir vaxið um helming. Staðan væri þröng en nú væri unnið eftir fjögurra ára áætlun þar sem ekki yrði eytt meiru í kosningum en sem næmi því sem safnað hefði verið þrjú árin á undan. Gerðu fundarmenn góðan róm að en Labbi sagðist myndu fylgjast grannt með efndum.

Fundarmenn voru mjög óhressir með fjárhagsstöðuna. Mörgum varð áreiðanlega hugsað til Friðriks Sophussonar sem í sinni varaformannstíð koma styrktarmannakerfinu á fót. Við Sjálfstæðismenn getum ekki horft upp á þessa niðurlægingu flokksins hans Alberts Guðmundssonar sem átti manna mestan þátt í að byggja Valhöll skuldlausa  með elju sinni. Við getum ekki horft upp á þetta hús okkar, stundum kallað " Albert Hall", veðsett upp fyrir rjáfur. 

Við Sjálfstæðismenn verðum að að borga flokkinn okkar  út úr þessu. Og jafnframt að sjá til þess að einstakir fjármálegir dilletantar innan flokksins geti ekki ráðstafað neinu því fé framar sem ekki er til. Stjórnmálamaður sem vill skuldsetja flokk sinn í kosningabaráttu er óábyrgur og óhæfur og á ekki að komast upp með slíkt. Valhöll má aldrei veðsetja og Sjálfstæðisflokkurinn má aldrei lenda í vanskilum.

Ég vildi sjá Áslaugu Örnu, ritara Sjálfstæðisflokksins og framkvæmdastjórann Þórð fara að vinna í þessu af krafti.

Við Sjálfstæðismenn getum þetta með samstilltu átaki.

Vilji er allt sem þarf og það eina sem ekki má vanta núna 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski að Albert Guðmundsson hafi gengið úr flokknum þegar hann var búinn að meðtaka boðskapinn?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 22.11.2015 kl. 13:37

2 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Það bezta: sem þið gerðuð í þessarri stöðu væri, að leggja NIÐUR þessa flokkshörmung einka- hagsmuna og óhóflegrar stjórnkerfis bákns stækkunar.

Almennir landsmenn - sjá engan mun lengur, á kerfislægni flokksins, miðað við vinstra flokka ruzlið, t.d.

Þá: er augljóst, helmingaskipta bröltið milli ykkar / sem hinna svonefndu Framsóknarmanna í gegnum tíðina, á ÖLLUM sviðum, Verkfr. vísi.

Sem og - ógeðfellda þjónkunina, við dekri hinna flokkanna ALLRA á tilrauninni til Múhameðs væðingarinnar, í landinu.

Þið væruð mun trúverðugri: ef þið hélduð úti stefnu Jobbik flokksins Ungverzka / sem og Austurrísku og Slóvakísku Þjóðfrelsisflokkanna t.d. - sem halda úti einarðlegri Hægri stefnu, sem og Svíþjóðar Demókratar, gagnvart hyski Múhameðs, sem uppi veður í nágranna álfu okkar, í austri.

Að - vera með fólk innanborðs, eins og Bjarna Benediktsson / Ólöfu Nordal og Illuga Gunnarsson:: ÖLL, velunnara Mekku liðsins hér á landi (Illugi t.d., gagnvart Feneyja Tvíærings hneykslinu), er bara ávísun á frekara undanhald ykkar, sem alemnn lélegheit, fornvinur góður !

Með beztu kveðjum, sem oftar - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.11.2015 kl. 14:15

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er bara ekki allt í lagi að fara í skólana með með fulltrúum  annara flokka.En skil ég það svo að þeir séu aðeins með til að fylgjast með velsæmi pólitiskra andstæðinga? 

Helga Kristjánsdóttir, 22.11.2015 kl. 16:05

4 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Nafna mín: Kristjánsdóttir !

Hvar í ósköpunum - þykist þú finna ''velsæmi'' innan ísl. stjórnmála spillingarinnar, yfirleitt:: fornvinkona góð ?

Ég hygg þig: vita betur en svo, nafna mín góð.

Með þeim sömu kveðjum - sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.11.2015 kl. 17:21

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Óskar minn Helgi

ég held að það yrði fátæklegt sviðið ef við bara lokuðum sjoppunni Valhöll og legðum flokkinn niður. Yrði ekki eitthvað að koma í staðinn? Hvað er það sem þú vilt þá fá fram ef þú getur ekki brúkað neinn af þeim sem þú nefnir. Jón Gnarr? Stefán Jón Hafstein? Sigríði Ingibjörgu eða Árna Pál? Píratana? Hvaða séní sérðu á sjóndeildarhringnum?

Segðu okkur nú Óskar minn hvað þu vilt setja í staðinn fornvinur góður.

Halldór Jónsson, 22.11.2015 kl. 23:51

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Helga, það sem er um að ræað er að þegar Jón Kristinn Snæhólm, Haukur og Helgi, þá var líf í pólitíkinnni hjá ungafólkinu. Nú er þetta steindautt og áhugalaust. Það var í tísku að vera róttækur þegarf ég var í 3. bekk en ég var strax andkommi svo ég var álitinn pólitískt fífl og þorði varla að tala við þessa díalektíkera og lærðu menn. Fór meira að segja einu sinni í leshring hjá Einari Olgeirssyni og hlustaði á hann útskýra að Rússar hafi ekki átt annars úrkosti en að ráðast á Finna sem voru að ógna þeim með fallbyssum. Ég fór nú ekki oftar,

Halldór Jónsson, 22.11.2015 kl. 23:56

7 identicon

Komið þið sæl - sem jafnan !

Halldór: mætur síðuhafinn !

Það - sem ég vildi sjá hér í framtíðinni, yrðu Kóreanskir og Japanskir kaupsýslumenn í efnahagslífinu / Taíwanskir Kúómingtang (Chiangs kai- Shek) liðar (í stjórnsýslunni), ásamt Rússneskum Hvítliðum og Spænskum og Líbönskum Falangistum í landvörnunum, NÓG kominn skammturinn:: af innfæddum hroka- og snobb gerpum, sem láta greiparnar sópa, UM OKKAR PRÍVAT VASA, Halldór minn.

Fullreynt algjörlega: með ísl. ''stjórnvizkuna'' fornvinur góður !

Ekki lakari kveðjur - þeim fyrri, og áður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.11.2015 kl. 00:07

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Haldór minn! Ég var að senda svar fyrir 10 min,rellan "ritskoðaði"og sendi út í hafsauga eða til himins,hvað veit ég fávís um það? Já þegar fjörið fer að dofna og kyrrðin færist nær,þá er hressandi að heyra í fullhugum unga fólksins.Labbi er alltaf eins og unglingur,maður sér hann jafnan á labbi hér.Mkv.

Helga Kristjánsdóttir, 23.11.2015 kl. 02:01

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hver er hann þessi herra Labbi?

Hefur hann stjórn á flokknum enn?

Hlustar fólk eftir karla-kvabbi?

Konurnar taka jú yfir senn,

sinna þurfa víst sjö kynja þjóð,

syngjandi kátar sín rugluðu ljóð:

staðgöngumæðrun og meira vín

meta þær helzt og (ekkert grín)

líknardauða þær dásemd halda,

dýrlegan endi á landinu kalda.

Jón Valur Jensson, 23.11.2015 kl. 05:32

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Hann Labbi em er á labbi

er liðtækur í kvabbi

Gunnlaugur heitir garpurinn sá

gerir margan alveg frá

Hjálmarsson er höfðinginn

heldur margan ljúflinginn

heimsakann bak við huliðstjöldin

Halldór Jónsson, 23.11.2015 kl. 06:34

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

smile Næ þó ekki orðinu "heimsakann".

Jón Valur Jensson, 23.11.2015 kl. 13:00

12 Smámynd: Halldór Jónsson

prentvillupúkinn enn. Maðu flýtir sér svo. En þinn ljóðræni skilningur hefur ekki brugðist í að sjá að þarna á að standa heimskan og líka Labbi sem er...  En þetta er náttúrlega ósvikin leirburður Jón minn Valur og bara saklaust grín til að vera sniðugur sem maður er svo auðvitað ekki neitt.

Halldór Jónsson, 23.11.2015 kl. 13:07

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Elín

mér er nær að halda að hann Albert myndi snúa sér vi í gröfinni ef hann sæji veðbókarvottorðið yfir Valhöll. Svo mikil skömm og svívirðing er þetta fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Ég sé hann Albert enn fyrir mér á vinnugallanum standandi á grunnbakkanum á laugardegi veifandi skóflunni meðan Framsóknarmenn keyrðu í grunninn okkar, nánar tiltekið hann Árni Jóhannsson stórsöngvari og höfuðsnillingur sendi alla sína bíla í þetta verk fyrir orð Alberts. Þessara höfðingja minnast allir vinir þeirra allir með hlýhug.

Halldór Jónsson, 23.11.2015 kl. 13:15

14 identicon

Satt segirðu Halldór.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 23.11.2015 kl. 15:10

15 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gaman að sjá þetta um Albert og Árna söngvara. smile

Takk fyrir svarið, Halldór. Þú ert enginn bögubósi. En við eigum alltaf einn bandamann við yrkingarnar, kvenkyns reyndar, og það er hún fröken Þolinmæði.

Jón Valur Jensson, 23.11.2015 kl. 19:02

16 Smámynd: Halldór Jónsson

Eina sem mig vantar Jón Valur og eina sem er ófáanlegt

Halldór Jónsson, 23.11.2015 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband