Leita í fréttum mbl.is

Af hverju?

má ég ekki hafa þá skoðun að við eigum að velja okkur kristna flóttamenn til okkar til að fylla innflutningskvótann? Af hverju má ég ekki halda því fram að kristnir Arabar séu mun líklegri til að hverfa inn í okkar þjóðfélag og samlagast okkur heldur en múslímskir Arabar?

Hvað paragröff banna okkur Íslendingum að velja kristna flóttamenn til viðtöku umfram múslímska? Af hverju megum við ekki beita neinni skynsemi í vali okkar flóttamanna? Er það ekki stykkjatalan sem kvótinn gengur útá?

Af hverju ekki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gera verður þær kröfur til yfirvalda, að þau velji flóttamenn eftir þeim skilyrðum sem Stjórnarskráin gerir til trúfrelsis, svo sem 65.gr. konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 23.11.2015 kl. 22:42

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvervegna nafni þegar öll skynsemi mælir með hinu?

Halldór Jónsson, 23.11.2015 kl. 22:44

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég tek algerlega undir með þér, Halldór.

En þegar menn settu fram þessar eðlilegu óskir um að fá hingað kristna flóttamenn, sem í Sýrlandi og Írak eru í jafnvel enn meiri lífsháska en múslimar þar, þá var því strax svarað til af ýmsum multí-kúltí-málsvörum, að það fæli í sér "mismunun" og mætti því ekki leyfast!

En ... ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms og borgarstjórn Reykjavíkur voru svo sannarlega í því árum aman að mismuna fólki og samtökum á grundvelli kynhneigðar, varðandi styrki ýmsa og jafnvel gjöf á heilli fasteign til Samtakanna 78.

Ennfremur mismunaði ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms útlendingum á grundvelli þjóðernis og trúar: gerði í því að fá hingað múslimskar konur frá Írak, palestínskar, og börn þeirra, fremur en t.d. kristna Kúrda eða kristna Palestínumenn, sem Palestínuarabar eru að hrekja úr ýmsum byggðum eins og Betlehem.

Múltí-kúltí-menn eru því blákaldir hræsnarar þegar þeir ásaka aðra um mismunun.

Jón Valur Jensson, 23.11.2015 kl. 22:51

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona svipað og spyrja! Af hverju megum við ekki velja ljósasta fólkið, eða eitthvað slíkt? Af hverju ættum við að velja aðeins kristna fólkið? Heldur þú að það gætu ekki verið einhverjir kristnir sem gætu orðið glæpamenn í framtíðinni? Sýnist að við séum með biðlista af kristnu fólki sem bíður eftir að komast í fangelsi af því að þau eru full af kristnu fólki hér. 

Trúarbrögð eiga bara ekkert að hafa með það að segja hverjir koma hingað. Hinsvegar skil ég áherslur á að það séu fjölskyldur þar sem þau styðja þá hvert annað fyrstu skrefin í nýju landi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.11.2015 kl. 00:15

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hættu nú Magnús flestir þeirra sem bíða fullnustu dóms hafa ekki verið greindir eftir trú sinni. Dæmdir menn eru flestir vegna auðgunarbrota eða þjófnaðar,sem telst ekki hryðjuverk. kristin trúarbrögð boða ekki aftökur fyrir brotin boðorð.-- Gagnstætt Islam sem beitir sínum eigin lögum af fullkominni grimmd.Hversu marga Múslima sem við vistum hér,munu þeir alltaf hlíða þeim hærra settu,þótt búi víðsfjarri.

Helga Kristjánsdóttir, 24.11.2015 kl. 00:54

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Magnús Helgi 

Þú ert löngu hættur að koma á óvart með þessa endal.......

Ekkert nýtt undir sólinni með þaþví miður.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 24.11.2015 kl. 01:56

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Magnús Helgi Samfylkingar-fylgihlutur, ég skal svara þér: Við ættum að velja kristna fólkið af þessum ástæðum:

    • Kristnir arabar eru mun líklegri til að hverfa inn í okkar þjóðfélag og samlagast okkur heldur en múslímskir arabar, eins og Halldór benti á í vekjandi pistli sínum, þótt stuttur væri.

    • Hér eru öflug samfélög kristinna manna búin að byggja upp mikið kirknastarf og mörg félög þessu tengd, og inn í þetta geta kristnir menn erlendis frá leitað sér að bræðralagi og styrk, iðkað trú sína með þeim í gagnkvæmum skilningi; hliðstæða þessa gildir mun síður um hin fámennu múslimasamfélög hér. Því er aðlögun kristinna að okkar þjóðfélagsháttum mun auðveldari en aðlögun múslima.

    • Stór hluti þjóðarinnar er eflaust fúsari til að fá hingað kristna menn en múslima, ekki sízt með bágborna reynslu norrænna bræðraþjóða í huga, þ.e. af ýmsu sem tengist þeirra múslimsku nýbúum.

    • Kristnir menn eru t.d. ólíklegri til að mynda hér e.k. ghettó-samfélög, eins og átt hefur sér stað hjá múslimum víða á Norðurlöndum, Bretlandi og meðal meginlandsþjóðanna í V-Evrópu. En EINING samfélags er betri en sundrung þess, streita og stífir flokkadrættir þjóðernis- eða trúarhópa.

    • Kristnir menn, Jesídar og Kúrdar í Sýrlandi og Írak eru í mun meiri lífsháska en múslimar þar almennt. Því er það mun meira knýjandi að fá þá hingað heldur en múslima.

    • Við erum fullvalda þjóð, þurfum ekki að lúta neinum í þessu efni, og stjórnmálastéttin á að gera það til þókknunar þjóðarviljanum að leyfa kristnum öðrum fremur að flytjast hingað, ekki að þvinga sínum eigin vilja upp á þjóðina í viðleitni til að flytja hingað inn sem flesta múslima, af því að það myndi annaðhvort þjóna andkristnum áherzlum sumra eða gefa eftir fyrir glópabjartsýni fjölmenningarhyggjumanna sem eru reiðubúnir að nota land og þjóð sem tilraunastofu næstu hálfa öldina.

    Jón Valur Jensson, 24.11.2015 kl. 02:38

    8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

    Ekki Láta þetta Góða Gáfaða Fólk segja ykkur hvað ykkur er leiðilegt að tjá ykkur um.

    Lesa athugasemdir Halldórs Guðmundssonar og Magnusar Helga ætti að kveðja ykkur um að skrifa ennþá meira um hvers vegna það er betra fyrir Ísland og íslenska menningu að flóttamennirnir eru kristnir.

    Ég hef aldrei séð eins mikinn rasisma eins og kemur frá þessum tveim og þeir reina að klína því sem þeir eru á aðra.

    Kveðja frá Houston

    Jóhann Kristinsson, 24.11.2015 kl. 02:46

    9 Smámynd: Jón Valur Jensson

    Gott hjá þér, Jóhann.

    Og augljóslega erum við ekki að "mismuna" fólki vegna rasa, kynþáttar eða þjóðernis, þegar við mælum með því að fá hingað araba, jesída eða kúrda -- ekki er það norrænt fólk. Að við viljum hins vegar að þetta sé mun fremur kristið fólk en múslimar, ættu flestir að skilja aðrir en heilaþvegnir og meðvirkir fjölmenningarkratar sem vilja ófúsir feta þá sömu slóð sem kratar í Svíþjóð og norska þjóðin eru nú farin að fá alvarlega bakþanka um* og Danir og Finnar nú þegar snúnir við af þeirri vanhugsuðu braut.

    Svo er þetta sízt uppörvandi um innréttingu allmargra múslima í Svíþjóð, ef rétt er hermt: http://www.jewsnews.co.il/2015/01/08/hundreds-of-muslims-in-sweden-celebrate-paris-terrorist-attack-on-a-fb-page-declaring-islam-will-take-over-the-world/

    * Sbr. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/11/19/bodar_hertar_adgerdir_og_aukid_eftirlit/  -- og http://www.dagbladet.no/2015/11/20/nyheter/innenriks/politikk/samfunn/meningsmaling/42048111/

    Jón Valur Jensson, 24.11.2015 kl. 03:22

    10 Smámynd: Jón Valur Jensson

    Þarna átti að standa það, sem ég meinti og ætlaði að skrifa: ÓÐFÚSIR, ekki "ófúsir"!

    Jón Valur Jensson, 24.11.2015 kl. 03:25

    11 Smámynd: Halldór Jónsson

    Magnús Helgi

    Þú bregst ekki þegar kemur að pólitík.

    Mínar hugleiðingar beinast fyrst og fremst að aðlögun Araba að okkur og þá þér líka.Kristnir hafa ekki sömu siði og fornaldarvenjur og múslímarnir. Þú virðist halda að Egill skallagrímsson mætti halda sínum háttum ef hann birtist skyndilega í næsta húsi við þig? Hvað skyldir þú gera í sliku tilviki? Treysta á lögregluna?

    Halldór Jónsson, 24.11.2015 kl. 08:31

    12 identicon

    Er til ofmikils mælst að stjórnvöld fari eftir Stjórnarskránni 65gr. konur og karlar skuli njóta jafns rétar í hvívetna. Í sumum trúarbrögðum njóta konur ekki jafns réttar og karlar, og spurt er eigum við að leyfa slík trúarbrögð?

    Björn Sig. (IP-tala skráð) 24.11.2015 kl. 09:14

    13 identicon

    Mikid rett hja Birni Sig.

    Hef adur bent a thetta, en einhverra hluta vegna fattar

    folk ekki, ad i raun bannar islenska stjornarskrain Islam ef

    eftir henni yrdi farid og malid dautt.

    Sigurdur Hjaltestesd (IP-tala skráð) 24.11.2015 kl. 18:30

    14 identicon

    Ég er EKKI sammála þér, en ég verð að segja að þetta er VIÐURSTYGGILEG athugasemd hjá Magnúsi Helga að bera saman það að velja fólk eftir hugmyndafræði eða uppruna. Svona athugasemd, að hugmyndafræði og kynþáttur séu sambærilegir hlutir ER kynþáttahatur og það þarf kynþáttahatur til til að láta slíka viðurstyggð út úr sér. Ef ég kem í partý til Magnúsar Helga og finn þar fyrir fleiri Samfylkingarmenn en Framsóknarmenn og engan úr Vottum Jehóva eða Mormónum, þá lít ég samt á hann sem mann. Ef ég kemst að því að hann mismuni mönnum á grundvelli kynþáttar síns eða ættbálks þá lít ég á hann sem waste of space sem betra væri að yfirgæfi plánetuna. Þetta eru tveir gjörólíkir hlutir í hugum alls hugsandi og velmeinandi fólks og það er óheiðarlegt að viðurkenna það ekki ef maður gerir það nú samt, í þágu einhvers málsstaðar, því það er það sama og að álíta viðmælanda sinn heimskingja og aumingja. 

    K (IP-tala skráð) 24.11.2015 kl. 20:41

    15 identicon

    Ég vona þú sérst að grínast, Magnús, eða beita auðvirðilegum rökbrellum, því ef þú sérð ekki muninn á hugmyndafræði og kynþætti í alvörunni, þá þykir mér leiðinlegt að segja þér það en ÞAÐ er kynþáttahatur. 

    K (IP-tala skráð) 24.11.2015 kl. 20:42

    16 identicon

    Ég ítreka að ég er ósammála Halldóri, en ég er líka ósammála óheiðarleika og lúalegum bellibrögðum í málflutningi.

     

    Þegar Halldór segir: "Kristnir hafa ekki sömu siði og fornaldarvenjur og múslímarnir. Þú virðist halda að Egill skallagrímsson mætti halda sínum háttum ef hann birtist skyndilega í næsta húsi við þig? Hvað skyldir þú gera í sliku tilviki? Treysta á lögregluna?" kemur hann með ágætis punkt.

     

    Okkar eigin forfeður aðhylltust ekki sömu hugmyndafræði og við og ég skal lofa þér því, Magnús Helgi, að allir nema rasistar myndi neita þeim inngöngu í okkar samfélag ef þeir kæmu hingað með tímavél og frekar vilja, ja, til dæmis lýðræðissinnaðan veraldlegan múslima sem er á móti sharia lögum, eða kristinn Sýrlending. Allir góðir menn myndu frekar vilja þannnig nágranna en ribbalda og barbara með annað siðferði en við, þó þeir væru forfeður okkar. Kannski ert þú ekki sammála, en þá ertu rasisti. Þeir sem eru það ekki rugla ekki þessu tvennu saman og normalisera rasisma með að líkja honum á einhvern hátt við hugmyndafræðilegan ágreining eða menningarmismun eins og þú dirfist að gera sjálfum þér til skammar og stefnir með því lituðu fólki í hættu, ef aðrir taka kjaftæðið í þér marktækt. 

    K (IP-tala skráð) 24.11.2015 kl. 20:46

    17 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

    Ég skil ekki trúar-brögð.

    En ég skil margt annað. Enginn skilur allt en allir skilja eitthvað.

    M.b.kv.

    Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.11.2015 kl. 03:17

    18 Smámynd: Halldór Jónsson

    Ég skil ekki af hverju við megum ekki reyna að gera okkar samfélag þannig að sem minnstir árekstrar verði? Ef hér settust að þúsundir Islamista, yrði það til góðs fyrir samfélagið Magnús Helgi? Við værum þá búnir að fara eftir stjórnarskránni og boðun þinni um jafnrétti´og bræðralag og líka trúfrelsi. Eða hvernig viltu hlutfalla flóttamennina í kristna, múslíma, heiðna, jafnaðarmenn, vígamenn, friðarsinna osfrv.? 

    Ég held að ég missskilji þig hugsanlega vitlaust?

    Halldór Jónsson, 25.11.2015 kl. 13:04

    19 Smámynd: Kolbrún Hilmars

    Íslensk óblíð náttúruöfl eru okkur næg að glíma við þótt við flytjum ekki vísvitandi inn ófriðaröfl.  Það yrði hreinlega ólíft í landinu ef þau bættust við.

    Kolbrún Hilmars, 25.11.2015 kl. 15:14

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Halldór Jónsson
    Halldór Jónsson

    verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

    -ekki góður í neinu af þessu-

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (20.4.): 0
    • Sl. sólarhring: 7
    • Sl. viku: 55
    • Frá upphafi: 0

    Annað

    • Innlit í dag: 0
    • Innlit sl. viku: 51
    • Gestir í dag: 0
    • IP-tölur í dag: 0

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Eldri færslur

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband