Leita í fréttum mbl.is

Stöðugleikaframlagið

og afnám gjaldeyrishafta var til umræðu á fjölmennum fundi Sjálfstæðismanna í Kópavogi í morgun. Þar fluttu fjórir framsögumenn erindi.

Hafi maður mætt á þennan fund til þess að fá raunveruleikann gjaldeyrishöftunum útskýrðan þá kom maður enn ringlaðri út en  maður kom inn.

Sigriður Á. Andersen flutti lofræðu um það hvernig ríkisstjórnin væri að vinna fyrir land og þjóð með því að láta slitabú föllnu bankanna borga þjóðinni kostnaðinn af afléttingu hinna óþolandi gjaldeyrishafta sem væru hér að skekkja allt efnahagslífið. Ekki gerði fólk athusgsemdir við þetta.

Hún sagði að stöðugleikaframlögin væru mun betri kostur en skatturinn sem hugsanlega yrði látinn fara fyrir dómsstóla þar sem kröfuhafar ættu lögvarðar kröfur í búin. Ekki gerðu fundarmenn sig ánægða með þær útskýringar.

 

Dr. Sveinn S.Valfells talaði næstur og greindi frá greiningu InDefence hópsins á samanburði Stöðugleikaskattsins og Stöðugleikaframlagi því sem nú er í boði af hálfu kröfuhafa.

Þetta hefur verið lagt fram sem jafngildir hlutir.En að mati hópsins er hér um mikla einföldun að ræða. Að mati hópsins vantar hundruði milljarða á að þetta boð sé jafngilt stöðugleikaskattinum sem hótað var um áramót ef ekki yrði samið fyrir þann tíma.

Ríkisstjórnin væri ekki að uppfylla það markmið að láta hagsmuni almennings vera ofar hagsmunum kröfuhafa eins og málið horfði með viðræðum um söðugleikaframlagið. Svo margir óvissuþættir blönduðust þar í sem næmu mörg hundruð milljörðum. Fjármálaráðherra hefði ekki gefið kost á að að ræða við hópinn um málið öfugt við aðra sem þeir hefðu leitað til.    

Ólafur Arnarson hagfræðingur tók mjög undir með dr.Sveini og lagði áherslu á að ríkisstjórnin hefði lofað því að hún stæði vörð um íslenskan almenning sen ekki kröfuhafana. Þetta væri ekki að gerast.

Inní stöðugleikaframlagið hafa kröfuhafarnir í Glitni blandað allskyns hlutum eins og kaupi skilanefndarinnar, vonarpeningaskuldum Reykjanesbæjar sem leiðir af sér mikið ofmat á efnahag Íslandsbanka sem er partur af tilboði þeirra. 

Vinstri stjórnin veitti kröfuhöfunum skotleyfi á almenning þegar hún afhenti þeim Glitni og Aríon banka að gjöf. Þetta skotleyfi stæði enn. Allar þessar aðgerðir sem nú væri verið að semja um stefndu aðeins að því að láta almenning blæða fyrir alla þessa samninga. Hann lýsti fullkominni vantrú sinni á að aflétting gjaldeyrishafta yrði að veruleika þar sem svo mikið vantaði á að skilyrði til þess yrðu fyrir hendi.

Gjaldeyrishöftunum yrði ekki aflétt hvað sem ríkistjórnin talaði fjálglega um það. Það væri þegar búið að framlengja frestinn fram í mars. Þetta væri hugsanlega aðeins fyrsta frestun. Honum hugnaðist ekki framhaldið sem myndi skilja eftir sig stóra snjóhengju. Það yrði almenningur sem yrði látinn blæða fyrir þetta allt saman ef af þessu stöðuglaieka framlagi yrði sem væri alls ekki jafngilt stðugleika skattinum.

Aðalsteinn Sigurðsson ræddi um verðtryggingarmál og dóma Hæstaréttar og hvaða áhrif þeir hefðu. Framundan væru dómar sem gætu haft áhrif á framvinduna í efnahag bankanna ef ríkið stæki við þeim núna.  Bloggari fylgdist því miður lítt með ræðu hans og biður velvirðingar á því, þar sem tekið var að hitna talsvert í fundarmönnum sem beindu nú spjótum sínum mjög að Sigríði Andersen þingmanni.

Hún varði stöðugleikaframlagið þar sem hún hélt því fram að stöðurleikaskatturinn væri á gráu svæði og,enhverjir myndu láta reyna á hann. Þetta fór ílla í fundarmenn sem töldu skattlagningarvald fullvalda þjóðar hafið yfir allan vafa. Þeir drógu í efa fullyrðingar hennar um að kröfuhafar hefðu einhverjar lögvarða kröfur í slitabúin. Þetta væru bara kröfur í íslenskt gjaldþrot.

Bloggari spurð Svein og Ólaf hvað þeir myndu gera ef þeir réðu. Sveinn sagðist myndu leggja á stöðugleika- skatt eins og hann var hugsaður. Ólafur tók undir það og taldi það skárri kost. Hvort hann væri nógu hár væri annað mál.

Fundurinn fór eiginlega úr böndunum svo hart var sótt að Sigríði og missti fundarstjórinn nokkuð stjórn á honum vegna æsinga fundarmanna sem hótuðu að ganga úr flokknum og hætta að kjósa hann ef stjórnvöld ætluðu að lyppast svona niður í því að halda á hagsmunum almennings.

Bloggari var alvarlega hugsi yfir gangi mála þegar hann koma af þessum fundi og velti fyrir sér hvort ríkisstjórnin hans væri að semja af sér í þessu máli eins og honum leist vel á stöðugleikaskattinn þegar hann var kynntur. Hann á hljóðupptöku af talsverðum hluta fundarins en lætur hér staðar numið i bili.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, bí bí og blaka,

bankarnir nú kvaka,

Skjótt í tauminn taka,

tveir sem með þeim vaka.

Bíum bíum bamba

blóð þeir ennþá þamba.

Röflandi þeir ramba.    

rakleitt niður kamba.

Hafsteinn Reykjalin (IP-tala skráð) 28.11.2015 kl. 19:56

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þetta hefur verið stórfróðlegur fundur sem þú fórst á kæri Halldór.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.11.2015 kl. 23:28

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Fjármálakerfið er einfalt, ekki láta flækja það til að blekkja okkur.

Aðeins að setja "Kreppufléttuna" hans Tómasar Jefferssonar fyrir dóm.

Fjármálakerfið, bankarnir bjuggu fyrst til verðbólgu, og þjóðin, fólkið byggði upp landið.

Bankinn, lánaði,hann lánaði ekki neitt, en færði fjármálabókhaldið.

Verðbólgan, eigum við að segja kostnaðaraukningin, varð til þess að allar fasteignir urðu mun dýrari.

Síðan bjó fjármálakerfið til verðhjöðnun, með því að stöðva útlán.

Þá kom strax samdráttur, og fólkið missti vinnuna og fyrirtækin misstu þá viðskiptavini.

Þegar fólk og fyrirtæki misstu tekjurnar gátu fók og fyrirtæki ekki greitt af lánum sínum.

Þá reyndu allir að selja eignir, en bankinn sagði, ég hjálpa engum að kaupa.

Fjármálakerfið, bankinn, sagði fólkinu að bankinn væri tómur.

Banki er alltaf tómur.

Banki færir aðeins bókhald.

Fjármálakerfið,bankinn og ekki gleyma lífeyrissjóðunum, biðu á meðan þeir "hertu að fólkinu ólina" það er byrjuðu að senda uppboðsbeiðnir á fólk og fyrirtæki.

Þá reyndu fólk og fyrirtæki að seja en Fjármálakerfið, bankarnir og lífeyrissjóðirnir vildu ekki hjálpa neinum að kaupa.

Fyrirtækja, húsa og íbúða eigendur, sem höfðu fengið tilkynningu um lögtak,  reynd enn að selja eignir, og buðu eignirnar á 80% verði og síðan á 50% verði.

Þá sögðu Fjármálafyrirtækin, bankarnir og lífeyrissjóðirnir.

Þið eruð að bjóða eignirnar á 50% verði,

Þá er ykkar eign farin.

Og fólkið sagði, já það virðist vera, þetta eru meiri vandræðin.

Og þá sögðu fjármálafyrirtækin, bankarnir og lífeyrissjóðirnir.

Já við skulum hjálpa upp á ykkur, og taka eignirnar.

Þið eruð þá laus úr þessum miklu vandræðum, erum við ekki góðir.

Þerna voru fjármálafyrirtækin, bankarnir og lífeyrissjóðirnir, búnir að plata frá eigendunum allar þeirra eignir.

Lánin, það sem fjármálastofnanir, bankarnir og lífeyrissjóðirnir höfðu lánað, var aðeins bókhald.

Jæja.

Nú sendu fjármálafyrirtækin, bankarnir og lífeyrissjóðirnir út tilkynningar til fjölmiðlanna, um að eignir, fjármálafyrirtækja, banka og lífeyrissjóða hefðu aukist um 500 miljarða síðusta mánuð.

Þarna hafði kerfið, með þessari brellu, sem Tómas Jefferson sagði okkur frá, hirt allar eignir af fólki og fyrirtækjum.

Ert þú sáttur?

Skammastu þín ekki að láta hlunnfara þig?

Nú er að bretta upp ermar og láta þetta fara fyrir dóm og ekki sætta sig við annað en að þeir, það er, fjármálafyrirtækin, bankarnir og lífeyrissjóðirnir skili öllu aftur.

Peningalega er það engin vandi.

Þetta er jú bara bókhald.

En þau vandræði, ég nota ekki sterkari orð, sem þetta klækjabragð hefur valdið er gríðarlegt.

Fólkið má ekki hætta fyrr en þessi svik  og eru skírð og upplýst og eru dæmd ólögleg,

Við eigum ekki að sætta ykkur við að láta plata ykkur.

Ekki láta segja ykkur að þetta sé löglegt.

Svokallaðar eignir hrægammasjóða, eru allar byggðar á þessu, má ég nota svindli?

Starfsfólkið í þessum fjármálastofnunum skildi ekkert  í þessu frekar en við.

Ekki láta plata þig til að eltast við einstaklinga.

Þessu kerfi er stýrt frá alþjóða fjármálakerfinu.

Það koma aðilar frá til dæmis Alþjóða gjaldeyrissjóðnum eða OECD og segja,

Þú átt að greiða ICAVE eða leysa höftin og láta hrægammasjóðina komast til útlanda með,, má ég nota orðið ránsfengin? eða árangur klækja fléttunar?

Við verðum að spyrja að því

Ef eitthvað er hér sem er athugavert, þá breyti ér því að bestu manna yfirsýn.

Egilsstaðir, 28.11.2015  Jónas Gunnlaugsson

Hent upp í hillu A4 blað

Ríkisstjórnin 

 Nýtt peningakerfi. Eg. 07.12.2011 jg

 Á að losa gjaldeyrishöftin?

Skapararnir og Nú staðreynda trúar fólkið.

**  Bankar framleiða peninga  **

Það eru engin höft á krónunni

 Kreppufléttan, endurtekið

Íbúðalánasjóður, láttu ekki plata þig.

Pabbi og mamma 

Nótur, kvittanir, peningur er færanlegt bókhald.

Jónas Gunnlaugsson, 28.11.2015 kl. 23:29

4 Smámynd: Halldór Jónsson

 Þetta varf á vef Jónasar sem ég fæ lánað:

The bankers own the earth.

000 

Take it away from them, but leave them the power to create money, and with the flick of the pen they will create enough deposits to buy it back again.

000

However, take it away from them, and all the great fortunes like mine will disappear and they ought to disappear, for this would be a happier and better world to live in.

000

But, if you wish to remain the slaves of bankers and pay the cost of your own slavery, let them continue to create money.”

 000

 – Sir Josiah Stamp, Director of the Bank of England (appointed 1928). Reputed to be the 2nd wealthiest man in England at that time.”

 

Halldór Jónsson, 29.11.2015 kl. 09:55

5 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Hér er fróðlegt blogg Guðmundar Ásgeirssonar, þar sem lýsir inn í fjármálaheiminn.  

„Munum samt að peningur“ er aðeins bókhald, debet og kredit, og auðskilið.

Ég vona að þetta sé í lagi.

000

Leyndardómar bankanna og peningablekkingin mikla

18.1.2009 | 00:01

Guðmundur Ásgeirsson

......"Some people think the Federal Reserve Banks are U.S. government institutions. They are not ... they are private credit monopolies which prey upon the people... Every effort has been made by the Fed to conceal its powers, but the truth is the Fed has usurped the government. It controls everything here and it controls all our foreign relations. It makes and breaks governments at will."  - Charles McFadden, formaður viðskiptanefnar Bandaríkjaþings, 1932.

"The Federal Reserve banks, while not part of the government,..." - Úr fjárlögum Bandaríkjanna 1991-1992. Það er sem sagt ekki ríkisstjórn þeirra sem fer í reynd með stjórn peningamála! Heldur eru það einkarekin fyrirtæki sem kallast alríkisbankar, sbr. úrskurð hæstaréttar í máli Lewis gegn Bandaríska ríkinu, 680 F. 2d 1239, 9th Circuit, 1982: "The regional Federal Reserve banks are not government agencies. ...but are independent, privately owned and locally controlled corporations." ......

..... dollarann (USD), sem eins og áður sagði

er ekki gefinn út af Bandaríkjastjórn heldur

fyrirtækjum í einkaeigu sem kallast alríkisbankar. .....

Jónas Gunnlaugsson, 29.11.2015 kl. 11:58

6 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Athugasemdir (0)

Af hverju er talan alltaf "0"

Fer það eftir þvi hvort skrifad er um fjarmal eda eitthvad annad.

Jónas Gunnlaugsson, 29.11.2015 kl. 14:04

7 identicon

Tessi flokkur er onytur Halldor minn,tad saum vid i lok Landsfundar

Gunnar Th Olafsson (IP-tala skráð) 29.11.2015 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband