Leita í fréttum mbl.is

Of margar kellingar

ráða of miklu allstaðar að mati kunningja míns sem rak inn nefið Af báðum kynjum bætti hann við. Og ekki bara á þinginu heldur allstaðar. Allt sett í salt og bið. Aldrei drifið í neinu.

Hvað er að heyra í þér maður sagði ég, skammastuðín að tala svona um jafnréttið. Ég er ekkert að tala um það sagði hann. Ég er að tala um handarbakavinnubrögð allstaðar í þjóðfélaginu og bullið sem veður uppi. Allt of lítil framleiðni og slugs. Á þinginu og bara allstaðar. Það gengur ekkert neinstaðar. Tímanum eytt í kjaftæði. Á þinginu er talað um fundarsköp forseta þegar liggur á að taka upp passa á landamærunum. Og nú á að loka álverinu án þess að þingið skipti sér af því. Og þar með var hann farinn. 

Hefur þetta ekki alltaf verið svona á Íslandi hugsaði ég með mér? Aldrei byrjað á neinu fyrr en helst of seint? Hefur fjölgun kvenna í áhrifastöðum eitthvað með hraðann að gera? Eru þær bara ekki gætnari en kallarnir og vandvirkari?

En það er rétt að konum hefur fjölgað mikið í áhrifastöðum frá ég man fyrst eftir mér. Það hefur auðvitað einhver áhrif. Þær eru nefnilega eilítið öðruvísi.Ekki bara í laginu sem gerir þær öðruvísi í augum kallanna.Þær eru alveg hættar að fara eftir fyrirmælum hinar helgu bókar varðandi hjónabandið. Nú eiga kallarnir að vaska upp og þvo þvotta. Konur eru líka menn segja sumir.

En gengur margt ekki allt of hægt? Ekki endilega vegna of margra kellinga heldur kannski vegna of fárra kvenna?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kerlingar og karlar ákváðu í sameiningu að setja EES samninginn ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu.  Kannski höfum við bara of marga stjórnmálamenn?  Maður veltir því fyrir sér hvernig sagan muni dæma Vigdísi og Ólaf Ragnar.  Ég gæti best trúað því að hann muni á endanum standa uppi með pálmann í höndunum.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 1.12.2015 kl. 13:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Elín, takk fyrir þetta

Varðar nokkurn um dóm sögunnar til lengdar?(eftir að hann er dauður?)

Ég hef aldrei séð nokkurt jákvætt við þennan EES samning og held að hann hafi ekki fært okkur neitt sem við hefðum ekki fengið hvort sem er. En bullið sem við sitjum uppi með það er endalaust.

Halldór Jónsson, 1.12.2015 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband