Leita í fréttum mbl.is

Innflytjendur

sem sest hafa að í Svíþjóð eru að eyðileggja sænskt samfélag eins og við þekktum það eitt sinn.

Þeir sem ekki trúa þessu skulu skoða þetta myndband.

https://www.youtube.com/watch?v=H51s1sC2qFE

 

Það er staðreynd að sænska samfélagið vill ekki taka þetta fólk inn í sínar raðir af einhverjum ástæðum. Sem ef til vill eru ekki svo illskiljanlegar ef við  bara lítum hreinskilið í eigin barm.

Unga fólkið af þessum innflytjendum finnur sig þess vegna utangátta í hinum nýju heimkynnum. Því er hafnað af samfélaginu. Það fær ekki vinnu og eyðir tímanum við skrílslæti og skemmdarverk. Iðjulausar hendur eru verkfæri djöfulsins  er bandarískt máltæki. Napóleon setti svona óstýriláta unglinga í herinn og fór í stríð.

Ekki virðist það vera leið til lausnar vandanum að auka innflutning flóttamanna meðan mál eru með þessum hætti. Þó að GGF vilji opna landamæri fyrir vaxandi flóttamannastraumi, þá er slíkt aðeins ávísun á meiri vandræði af sama stofni. Það er nefnilega sænskur almenningur sem vill ekki hafa þetta fólk í umhverfi sínu, hvorki í vinnu né félagslega.Og ekki bara sænskur almenningur heldur verður maður maður greinilega var við sömu andúðina á innflytjendum af framandi þjóðerni hér á landi. Og þá skulum við ekki blanda Indogermönum í þá umræðu.

Fólkið úr röðum múslímskra innflytjenda einangrast því eins og sést á myndbandinu. Þjóðfélagið tekur ekki við því, hafnar því hvað sem GGF segir.

Hver er framtíðin? Hvernig verður þetta leyst? Hvaða stjórnmálaöfl munu koma fram sem hafa aðra sýn en hina opinberu sýn GGF um þessar mundir?

Það er nokkuð ljóst að þjóðernishreyfingum eins og Svíþjóðar demokrötunum, Sönnum Finnum, UKIP, LePen flokknum í Frans og hvað þetta heitir allt saman, mun vaxa fiskur um hrygg. Þessar hreyfingar munu grípa til annarra aðgerða, hugsanlega eins og Ferdínand og Ísabella á fyrri tíð, hrekja fólk úr landi eða þvinga það til siðaskipta. Eða kaupa það af sér eins og Enoch Powell nefndi.

Fólk er ekki tilbúið til að afhenda ættlönd sín til innflytjenda frá framandi þjóðum,  hvorki i Svíþjóð né annarsstaðar.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er nefnilega þannig Halldór að við, hvort sem við erum heiðin eða Kristinn viljum ekki afhenda lönd okkar og völd til múslíma sem ekki bara koma með trú heldur líka stjórnkerfi sem ekki samrýmist Íslenskum lögum. 

Við Íslendingar heiðnir og kristnir höfum verið hér svo lengi sem vitað er og lög og reglur eru við okkur miðuð en passa hvergi fyrir Múslíma, sem þar með ættu að halda sig heima hjá sér og láta okkur í friði með okkar sérvisku.

Hrólfur Þ Hraundal, 19.12.2015 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband