Leita í fréttum mbl.is

Huggulegur smáflokkur

er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn þegar fylgið er komið undir 20 %. Það ættu ekki að vera mikil innaflokksátök við þær aðstæður og Viðreisn ekki einu sinni komin fram.

Fylgi Pírata mæl­ist nú 37,8% sam­kvæmt niður­stöðum nýj­ustu skoðana­könn­un­ar MMR. Fylgi Sjálf­stæðis­flokksins mæl­ist hins veg­ar 19,5% og Fram­sókn­ar­flokks­ins 10%. Fylgi beggja flokka hef­ur minnkað um 1,1-1,5% frá því í des­em­ber.

Vinstri­hreyf­ing­in - grænt fram­boð mæl­ist með þriðja mesta fylgið eða 12,5% og eykst um rúmt pró­sent. Sam­fylk­ing­in hef­ur misst 2,5% fylgi frá fyrri könn­un og er nú með 10,4%. Björt framtíð mæl­ist með 4,4% og hef­ur tapað tæpu pró­senti. Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina er 30,1% og minnk­ar um rúmt pró­sent frá fyrri mánuði."

Maður hefur ekki orðið mikið var við útbreiðslutilraunir eða kynningar af hálfu þeirra sem til þess hafa verið ráðnir til Valhallar eða kjörnir til útbreiðslustarfa á stefnu Sjálfstæðisflokksins.

Kjósendur eru varla svo vitlausir að þeir flykkist um flokk sem enga stefnu hefur og enga forystu eða skipulag heldur. Samt talar Birgitta eins og hún og liðið í kring um hana eins og það séu leiðtogar þriðjungs þjóðarinnar. Hún þekkir hvorki haus né sporð á þessu fólki sem segist vera Píratar. Ég hugsa að jafnvel ég þekki fleiri en hún.

Þegar menn sögðust ætla að kjósa Jón Gnarr og gerðu það á sinni tíð  þá var það ekki vegna sérstaks álits á fyrirbrigðinu Jóni Gnarr heldur vegna þess hversu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík voru orðnir hræðilegir í augum fólksins eftir allt það sem á undan hafði gengið. Ótrúverðugir með öllu. Í öðrum sveitarfélögum varð ekkert viðlíka almennt hrun.

Í næstu kosningum var brunað fram með að miklu leyti sama gengið. Ekki virðist  vöxtur og viðgangur Þess átaks hafa orðið mikill síðan þá ef marka má þessar síðustu tölur.

Spurning er hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera? Ætlar hann bara að hjakka svona áfram eða ætlar hann að gera eitthvað til að nálgast kjósendur áður en kosningarnar bresta á. Almennir fótgönguliðar hafa sumir hugmyndir en enginn spyr neins. Það hlýtur að vera af því að forystan veit allt sjálf. Til hvers skyldu stofnanir eins og Flokksráð og Kjördæmisráðin vera annars? 

Que sera que sera. Huggulegur smáflokkur  með stórt nafn og mikla sögu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Er ekki Valhöll ordin alltof stór, fyrir svona smáflokk? 

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 22.1.2016 kl. 18:17

2 Smámynd: Halldór Jónsson

 Jú þeir eru búnir að eyða henni, og eru stórskuldugir. Verða sjálfsagt að minnka við  sig eins og það er kallað þegar gamlingjar eiga í hlut

Halldór Jónsson, 22.1.2016 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband