Leita í fréttum mbl.is

Erum við öll fífl?

Sú hugsun læðist að manni eftir að lesa færslu  séra Lenu Rósu á facebook sem hann Eddi lögga sendi mér.

Séra Lena segir:

 

"Mikið þykir mér sorglegt að ég skuli þurfa að vera sammála þessum rökum sem hér eru sett fram. Oft er sannleikurinn sárastur og afhjúpunin meiðandi því um leið þarf maður að viðurkenna að hafa verið hafður að fífli. Hvernig í ósköpunum gat ég upplifað sjálfa mig heppna þarna heima? Jú, vegna þess að ég get staðið í skilum.

En hvað þýðir það? Að maður sé búinn að mastera hæfileikann til að láta stela frá sér? Ok!

Ég er sek og viðurkenni fúslega að hafa verið fífl sl. 10 ár. Hvað get ég kallað það annað? Maður hefur greitt tæpar 24 milljónir á tíu árum af 20 milljóna króna skuld og þarf að kyngja því að eiga enn eftir að borga 32 milljónir til viðbótar til að greiða fyrir þetta sama 20 milljóna króna lán; sem endar náttúrulega í ennþá hærri upphæð eða í rúmlega hundrað milljónum þegar upp er staðið (og þótt aldrei falli niður greiðsla).

Ég er kannski ekki skarpasti ávöxturinn í körfunni, en nógu skörp til að sjá að ég var allt annað en heppin.

Ég var auðtamið fífl með fyrirmyndar þrælslundargeð og tók stolt við stöðu minni sem einn af millistéttarstólpunum sem skiptu svo agalega miklu máli eftir hrun.

En hæ, guys, ég er vakandi í dag og vinn þar að auki nægilega stuttan vinnudag hér í Norge til að geta litið upp og hugsað sjálfstætt.

Er búin að ná áttum og segi hér með lausri stöðu minni sem ein ausan á sökkvandi skútunni. Í þeirri niðurstöðu er hvorki fólginn hroki, hefnigirni né uppgjöf (maður heldur jú áfram að láta stela frá sér og þarf,bara að skaffa þjófinum minnst 32 milljónir til viðbótar.

Ég sé þetta þannig að heima á Íslandi samþykkti ég líka að þjófurinn tæki frá mér möguleikann á lífsgæðum. Maður er jú stoltur og vill standa í skilum sem þýðir að með stöðugt hækkandi lánum þurfa foreldrar að vinna æ meir á kostnað tímans með börnunum.

Það er eitthvað stórkostlega átakanlegt við það að stærsta menningarsjokkið sem ég upplifði við að flytja til Noregs var að rekast í tíma og ótíma á alla þessa feður á mínum aldri með nestistöskur á bakinu á leið í hjólreiðatúr eða lautarferð með alla fjölskylduna. I have I died and gone to heaven? Ég bara spyr!!

Maður heldur að sjálfsögðu áfram að fæða þjófinn eða mafíuna eins og það er kallað hér í erindinu en maður getur þó a.m.k. notið lífsins á meðan.  

Og bara eitt að lokum: Ég hef engan áhuga á því að opinbera eigin aulahátt að láta hafa mig svona að fífli. En þegar ég hugsa um alla þarna heima sem standa í nákvæmlega sömu sporum og ég og jafnvel verri, þá einfaldlega get ég ekki þagað. – Ég er búin að liggja yfir þessu (enda nægur frítími) og get ekki betur séð en að ,Ísland  20. fylki Noregs hér á Fésinu sé með alla puttana á púlsinum, við munum a.m.k. aldrei tapa á að ræða möguleikana.

Hafandi sagt það er ég um leið óendanlega þakklát baráttujöxlum á borð við Vilhjálmur Bjarnason Ekki Fjárfestir hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, þar fer sko fólk sem kallar ekki allt fyrir ömmu sína heldur veður drulluna daglega upp að hálsi fyrir mig og þig."

Verður enginn hugsi yfir þessu?

Er það svona sem fólk er farið að sjá ættjörðina sína? Er það þessvegna sem fólki er sama hvort hér búi negrar frá Afríku eða venjulegir Íslendingar?

Er þetta  ekki afleiðingin af  lífeyrissjóðakerfinu á Íslandi sem lögfesti 3.5 % ávöztun sem lágmark ofan á verðtrygginguna?

Var það ekki ánauðarkerfi sem öllum fannst svo sniðugt í upphafi, sem dæmdi okkur öll í þrældóm ævilangt? Við verðum aldrei frjáls aftur nema flýja land eins og séra Lena Rósa?

Fyrir bubbana sem stjórna lífeyrissjóðuum án þess að hafa nokkurt umboð frá eigendum lífeyrisins er allur almenningur dæmdur til að vera fífl ævilangt og þræla án fyrirheits um frelsi.

Lífeyrissjóðirnir eru orðnir skrímsli sem mergsýgur þjóðina og nú á enn að bæta í með því að gjöldin til þeirra fari í 15.2 % af launum! Það er til að bæta uppp feilspekúleringar bubbanna á erlendri grund.  Þeir gera það að verkum með 3.5 % forgjöf í verðtryggðum vöxtum  að hér er landlæg verðbólga sem séra Lena Rósa er ekki að upplifa í Norge. Þar lækkar lán þegar borgað er af því því það er ekki verðtryggt. Hér hækkar það á hverjum gjalddaga.

En auðvitað eru langtímalán á húsnæði niðurgreidd af ríkinu á þennan hátt, bæði í Norge, og annarsstaðar. Þar er líka verðbólga en söm og jöfn og ekki eins og rússíbaninn hjá okkur. Aðgöngumiðana í hann selja hundruð purkunarlausra stéttarfélaga stéttarfélaga en opinberir starfsmenn eru stikkfrí. Og þeim fjölgar stanslaust og stjórnlaust hvaða flokkar sem eru við stjórn.

Hérlendis viðurkennir ríkið ekki þá skyldu að stuðla að því að fólk geti eignast þak yfir sig og börnin sín.  F rambjóðendur komast upp með að ljúga hverju sem er fyrir kosningar og svíkja samstundis eftir þær eins og Steingrímur J. og loforðið hans um ESB.109

Húsnæðiskaup eru hin íslenska fátæktargildra. Við erum heimsk því við byggjum of dýrt þegar þeir fátækustu hafa ekki efni á öðru en að kaupa gáma í stað fallbyssheldra steinsteypuvirkja.

 

 

The Starlight Ranch í Orlando

Hvað er að því að búa í léttbyggðum húsum eða gámum við eigin garð og malbikaða götu? Ég get sýnt ykkur myndir af svona  frá Starlight Ranch í Florida. Þar kostar einbýlið 5-10 milljónir. En hérna færðu að skulda 50-100  milljónir verðtryggt fyrir einbýlið. Auðvitað mun fínna hjá okkur. En hvort vildu minna fínt eða ekki neitt?

Er það ekki hluti af því sem séra Lena Rós er að lýsa. Flotteríisháttur í byggingum? Eða skortur á fjölbreytileika?

Það er kominn tími til að leggja þessa lífeyrissjóðapeninga, mínus staðgreiðsluskatt,  á reikninga í Seðlabanka á nafni hvers launþega. Loka svo öllum lífeyrissjóðum strax. Innistæðan skal notuð til að borga lífeyrisþeganum og eftirlifandi maka lágmarksframfærslu svo lengi sem hún endist. 

Þegar skúffan er búin skal ríkið framfæra einstaklinginn eftir nánari formúlu sem það gerir hvort sem er.

Sérhver einstaklingur skal eiga kost á að fá 20 milljóna lán óverðtryggt á 5 % vöxtum (eða vaxtalaust verðtryggt einu sinni á æfinni hjá ríkinu sem skal aðeins nota til húsnæðiskaupa eða byggingar íbúðarhúsnæðis. Sveitarpólitíkusar skulu finna leiðir til að skaffa lóðir undir smáíbúðir án útborgunar fyrir þá sem vilja. Líka fjölbýlishúsalóðir án útborgunar fyrir íbúann. Allar slíkar lóðir skulu greiddar með útsvari íbúans eftir að leiðis.

Það verður að gera eitthvað til að breyta Íslandi úr þrælakistu verkalýðs-og bankabófa og lífeyrissjóðakúskara. Um þetta verður að kjósa eihvern tímann í næstu kosningum svo við getum hætt að vera fífl


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En Halldór. Ert þú ekki einn af þeim sem hafa stutt þessa helvítís óværu sem verðtryggingin er..??

Ég hvet alla þá sem ég þekki að yfirgefa þessa skútu sem Ísland er, enda orðið Zimbawbe norðursins í spillingu og rugli.

Af hverju heldur þú að allar leiðir fyrir flóttamenn séu opnar til Íslands..??

11.000 skynsamir Íslendingar farnir og þá vantar að sjálfsögðu nýja þræla fyrir þennan viðbjóð sem lífeyriskerfið og verðtryggingin er.

Einhvern veginn þarf aðallinn að trygggja sér það að hafa minnst 3 til 4 milljónir á mánuði í eftirlaun á meðan almúginn sveltur.

Á meðan Ísland er ekki fyrir Íslendinga heldur sérvalið fólk og ættmenni verður ekki búandi fyrir yngri kynslóðir á landinu, sem þegar eru farin að sjá hvernig spillinign eyðileggur allt fyrir sérhagsmuni fárra. Sem betur fer.

Hverjir eiga þá að halda uppi ruglinu þegar ekkert yngra fólk er til staðar til að borga í hýtina..???

Flóttamenn..?? Nýbúar..??

Hver vill taka þátt í þessu rugli sem Íslenskt þjóðfélag er orðið..??

Ekki ég.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 19.2.2016 kl. 11:57

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

"Er það svona sem fólk er farið að sjá ættjörðina sína? Er það þessvegna sem fólki er sama hvort hér búi negrar frá Afríku eða venjulegir Íslendingar?"  Algjör óþarfi að auglýsa kynþáttahatur í leiðinni.

Jósef Smári Ásmundsson, 19.2.2016 kl. 12:44

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór.

Hún Lena Rósa er óneitanlega skarpur greinandi á stöðu þeirra vesælinga sem neyðast til að kaupa sér eigið húsnæði hér á Íslandi, en öðruvísi lítur staða þeirra óneitanlega út er eiga sitt skuldlaust, hvort heldur sem það var arfur, gjöf eða áunnið á langri starfsæfi.

Ég veit ekki til hvaða hóps þeirra áhyggjulausu lukkunar pamfíla Jósef Smári tilheyrir, en hlutlaust og án tillits til allra kynþáttafordóma, þá eru Afríkubúar einfaldlega upp til hópa negrar eða arabar.

Jónatan Karlsson, 20.2.2016 kl. 09:14

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Sigurður vinur

Þið með heilsu, aldur  og alþjóðlega menntun getið valið um lönd til að vinna í. Gamlingjar eins og ég geta farið til Spánar og lifað þar yfir veturinn á elli styrknum en ekki hér.

Jósef minn Smári elsku kallinn

er ég kynþáttahatari þó að ég kalli negra negra? Hvað er negri annað en negri, hvítur annað en hvítur, arabi annað en arabi ? Ég held að ég vorkenni þeim frekar en að ég hati þá. Yfirleitt má ég ekkert aumt sjá en ég vil vera raunsær þegar kemur að því hleypa þeim hingað í massavís þegar það skapar greinilega vandamál 

Takk fyrir að verja mig Jónatan

Halldór Jónsson, 21.2.2016 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband