Leita í fréttum mbl.is

Fokið í flest Schengenskjól

ef marka má Staksteina Moggans í dag. Þar segir:

 

 

"Belgíska lögreglan hefur sætt ámæli í kjölfar hryðjuverkanna miklu í Brussel. Ráðherrar buðust til að segja af sér en það var afþakkað. 

Í raun situr bráðabirgðastjórn í Belgíu og ekki hefur tekist mánuðum saman að koma saman ríkisstjórn. Belgía hefur lengi verið brotakennt land. Það kemur því ekki á óvart.

 En fyrir okkur Íslendinga hlýtur sú umræða sem orðið hefur um upplýsingakerfi Schengensamstarfsins að koma mjög á óvart. 

Ástandið í flóttamannamálum kallar á að Ísland komi sér út úr Schengen sem allra fyrst. Röksemdin gegn því hefur verið sú að þá félli Ísland út úr hinu mikilvæga upplýsingakerfi Schengen. 

Nú hafa bæði belgískir og franskir ráðherrar sagt opinberlega að þetta kerfi sé vita gagnslaust! Og ekki bara þeir.

 Ísjónvarpsviðtali við fyrrverandi forstjóra leyniþjónustu Bandaríkjanna í fyrradag tók hann undir þetta og sagði að einstakar leyni- þjónustur treystu kerfinu ekki fyrir upplýsingum.

 Það er ekki góð ástæða til þess að hanga áfram í Schengen, gegn augljósum hættum, að embættismönnum þyki eftirsóknarvert að komast til Brussel og haldi því að ráðamönnum að þeir hafi merkilegar upplýsingar upp úr krafsinu.

Það hefur verið afhjúpað sem firra." 

 

Hvernig stendur á því í íslensk stjórnvöld eða Alþingi heyri ekkert af þessum röddum?  Hvernig má það vera að bara almenningur á Íslandi sjái hverslags andvaraleysi og verkleysi einkenni meðferð Íslands á Schengen Samningnum? Hvernig það blasir við öllum hversu auðveldlega má bæta öryggi Íslands gagnvart hryðjuverkamönnum og óþolandi aðstreymi efnahagslegra hælisleitenda.

Af hverju ekki að losa heljartök samningsins á okkar embættiskerfi, sem sér enga hækkun á vástigi nauðsynlega heldur stendur fyrir tilgangslausum byssusýningum í flugstöðinni í staðinn?. 

Jafnvel Björn Bjarnason hefur lýst efasemdum um óbreytt ágæti þess.

Er ekki fokið í flest Schengenskjól?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Fólk verður þá að mæla með stjórnmálaflokkum sem að eru með rétta stefnu í þessum málum:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2011692/

Jón Þórhallsson, 26.3.2016 kl. 10:42

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ert þú stjórnmálaflokkur?

Halldór Jónsson, 26.3.2016 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband