Leita í fréttum mbl.is

Samanburðarfræðin á fullu!

út af síðustu færslu minni. Meirihlutinn í Reykjavík sendir strax varðhund á vettvang til að dreifa rangupplýsingum um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar.Sá heldur fram að allt sé verra í Kópavogi en Reykjavík og holurnar þar dýpri en í Reykjavík og skuldirnar meiri.

Ársreikningur borgarinnar fyrir árið 2015 liggur ekki enn fyrir. Samkvæmt ársreikningi 2014 námu heildartekjur borgarinnar (samstæðan) 133 MKR. Skuldir og skuldbindingar í árslok 2014 námu 287 MKR. Það gerir að skuldir og skuldbindingar námu 215% af tekjum.
 
Varðhundurinn Jónas Kr. segir:
 
"Kópavogur skuldar 160% af árstekjum á meðan Reykjavík skuldar 77%. Í Reykjavík er ódýrara að búa samkvæmt vefsíðunni http://bestadbua.vi.is/ sérstaklega fyrir barnafólk. Göturnar í Kópavogi eru ekkert skárri en í reykjavík. "

 

Svokallað skuldaviðmið sveitarfélaga er hins vegar ekki reiknað beint út frá ársreikningi í tilviki borgarinnar þar sem sett var undantekning inn í útreikningsreglurnar þegar veitufyrirtæki vega þungt í samstæðureikningi.

Þannig er OR ekki inni í útreikningi á skuldaviðmiði borgarinnar. Stórfelld yfirfærsla skulda frá borgarsjóði yfir á OR á árum áður nýtist því vel núna til lækkunar á þessu skuldaviðmiði. Töfrabrögð Ingibjargar Sóalrúnar Gísladóttur nýtast því vinstrimönnum til framtíðar. 

 Heildarskuldir á hvern Íbúa í Rvk eru þvi um 2,4 mkr. Til samanburðar eru skuldirnar í Kópavogi 1,8 mkr pr. íbúa og á Seltjarnarnesi 0,4 mkr. pr íbúa.

Hið sanna er að skuldir Reykjavíkur eru þriðjungi hærri en í Kópavogi. Og svo maður tali nú ekki um hvernig hún Ásgerður frænka mín á Nesinu rekur sitt bæjarfélag þar sem skuldirnar eru bara 1/6 partur af skuldum Reykjavíkurborgar. Þar hefur íhaldið stjórnað í meirihluta í áratugi. Sigurgeir var þar bæjarstjóri í hreinum meirihluta í 11 kjörtímabil og er þar með Methusalem íslenskra stjórnmála fyrr og síðar. Árangurinn blasir við af því að hleypa ekki kratismanum til valda og væri betur að aðrir landsmenn væru jafn skynsamir og þeir á Nesinu.

Varðhundurinn Jónas Kr. má alveg koma yfir í Kópavog og sjá að sá bær er allur miklu þrifalegri en Reykjavík og holurnar ekki nærri eins djúpar. Við þolum alveg smá samanburðarfræði við kommatittina sem stjórna hinu megin við lækinn þó að okkar bæjarbúa skorti samt vit á við þá á Nesinu því vinstri menn hafa alltaf verið alltof sterkir hér í Kópavogi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halldór varst þú ekki skoðunarmaður reikninga í Kópavogi? Þá ættir þú að vita að "Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum." en til "B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þessara fyrirtækja er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum." Þessi fyrirtæki eru meðal annars: Faxaflóahafnir og Orkuveita Reykjavíkur.

Sjá:http://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skjol_utgefid_efni/reykjavikurborg_arsreikningur_2014.pdf.

Til dæmis er eigið fé borgarinnar í Orkuveitu Reykjavíkur um 107 Miljarðar sem þýðir að Reykjavíkurborg gæti selt Orkuveituna og borgað upp skuldir A hluta, sem eru um 64 Miljarðar of átt um 42 Miljarða afgang.

Jónas Kr (IP-tala skráð) 17.4.2016 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418160

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband