Leita í fréttum mbl.is

Þroskaður frambjóðandi

er kominn fram og býður fram þjónustu sína.

Þannig lýsir Forsetaframbjóðandi sjálfum sér og Íslendingum: 

Að vera Íslendingur er eins og að eiga þroskaheftan síamstvíbura,“ segir Andri Snær Magnason rithöfundur á Facebook síðu sinni í kvöld. Þar lýsir hann óánægju sinni með kjósendur Framsóknarflokksins á satírískan máta en formaður flokksins tilkynnti í dag að hann hefji formlegar viðræður með Sjálfstæðisflokknum um stjórnarmyndun.

Svohljóðandi er satíra Andra Snæs: „Ég kaus Framsókn vegna þess að mér var lofað 100% láni og hlustaði ekki á viðvaranir um ofþenslu á sama tíma og Kárahnjúkar voru í byggingu en þegar kerfið hrundi kaus ég Framsókn til að lækka lánið sem ég tók þrátt fyrir aðvaranir því það á að sækja 300 milljarða til útlendra sílamáfa og láta mig fá þá beint í vasann í staðinn fyrir að borga skuldir ríkissjóðs þótt viðskiptahallinn aukist þegar ég sólunda aurnum núna fyrirfram en það má sprengja upp krónuna tímabundið með ati í Helguvík og ef ég missi húsið í því hruni þá get ég kosið Framsókn út á lolololoforð um 100% lán og ... ehh að vera Íslendingur er eins og að eiga þroskaheftan síamstvíbura."

Mikið rosalega er gott að vita af því að þjóðin skuli eiga og framfæra svona snillinga með 18 milljónum fyrir eina bók  til að sækjast eftir Forsetaembættinu.Já, það er orðin breyting á frá dögum Bólu-Hjálmars.

Hvað er eiginlega að mér sjálfum að virða íslenskt þjóðerni, tungu og sögu og vilja varðveita þetta?

Ég hlýt að vera þessi þroskahefti bróðir rithöfundarins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það mætti halda Halldór að maðurinn, með orðagjálfri sínu, sé að lýsa því hvers vegna EKKI ætti að kjósa hann til forseta. Þar sem ég tek mark á því sem hann segir er mér ljóst að hann yrði ekki góður forseti.

Tómas Ibsen Halldórsson, 20.4.2016 kl. 11:25

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef löngum haft það á tilfinningunni að þessi maður væri bara rugludallur, nú hef ég fengið það staðfest og meira til maðurinn er stórhættulegur rugludallur.

Jóhann Elíasson, 20.4.2016 kl. 11:47

3 identicon

Sæll Halldór.

Fágætt að menn komist í slíkar bókmenntalegar
hæðir við að lýsa sjálfum sér að dýrleika.

Húsari. (IP-tala skráð) 20.4.2016 kl. 13:19

4 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ekki ætla ég að kjósa Andra S en mér sýnist þessi frásögn hans bara nokkuð réttmæt

Rafn Guðmundsson, 20.4.2016 kl. 16:47

5 identicon

Sæll Halldór Verkfr.: og aðrir gestir, þínir !

Farið: hafið þið tóm til, á síðu hins mæta Jóhanns Elíassonar Stýrimanns hér á Mbl. vefnum - og lesið verðuga sneið mína, til hræsnarans Ólafs Ragnars Grímssonar og fyrirennara hans - fyrir stundu.

Með beztu kveðjum - sem ávallt / af Suðurlandi // 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.4.2016 kl. 21:40

6 identicon

Andri Snær er ekki bara afæta á íslensku þjóðinni, hann er ruddi sem fyritlítur alla sem ekki eru sammála honum.

Að honum skuli detta í hug að bjóða sig fram í forsetaembættið er með ólíkindum og það er með enn meiri ólíkindum að einhverjir skuli vilja fá þetta fyrirbæri sem forseta.

Bjarni (IP-tala skráð) 21.4.2016 kl. 01:29

7 identicon

Vandað og gott fólk tekur fulla ábyrgð á vandamálum þess samfélags sem það býr í. Sannleikurinn er sá að við berum öll sameiginlega ábyrgð á þessum vandamálum. Vandaður og góður maður hefur sig ekki upp yfir samfélagið, firrir sig ábyrgð og kallar aðra vangefna. Það lýsir hroka, yfirlæti og skorti á andlegum þroska að tala þannig um sama samfélag og hefur styrkt manninn í 10 ár og veitt honum þau einstöku forréttindi að fá að skrifa á fullum launum. Hann talar eins og unglingur sem er ekki vaxinn upp úr því að kasta skít í foreldra sína, eða drukkinn, lélegur faðir sem sparkar í börnin og vænir þau um að vera rangfeðruð. Megi Andri Snær lengi lifa og vel og ganga sem best í´sínum störfum og lífi, en hann á greinilega ekki erindi í forsetaembættið. Forsetaembættið þarfnast ríkrar ábyrgðartilfinningar, samkennd með öllum í landinu, virðingu fyrir allri þjóðinni, lítillætis og fulls þroska. 

Venjulegur (IP-tala skráð) 21.4.2016 kl. 04:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband