Leita í fréttum mbl.is

Silfurfat

er orðið sem Vigdís Hauksdóttir notar um sölu bankanna til kröfuhafa. Svo segir í Mogga í morgun:

" „Kröfuhafar fengu íslensku bankana á silfurfati með mikilli meðgjöf frá ríkinu og gögn um þetta ætla ég að birta fyrir næstu mánaðamót,“

segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar Alþingis.

Vísar hún í máli sínu til þeirra gagna og fundargerða sem hún hefur að undanförnu aflað sér um seinni einkavæðingu bankanna til kröfuhafa á síðasta kjörtímabili. Vigdís segir fundargerðir sýna að fyrir alþingiskosningarnar 2009 hafi verið búið að ákveða að láta bankana í hendur kröfuhafa. Gríðarleg áhætta fyrir ríkið.

Þær upphæðir sem kröfuhafar fengu, að sögn Vigdísar, þegar sparisjóðakerfið var endurreist blikna í samanburði við þær upphæðir sem hér ræðir. „Eftir kosningarnar er svo gengið alla leið í þessu og kröfuhöfum afhentir bankarnir með gríðarlegri áhættu fyrir íslenska ríkið. En þetta mun allt saman koma betur í ljós þegar ég birti þessi gögn á næstu dögum,“ segir hún."

Geir H. Haarde var dreginn fyrir Landsdóm fyrir sök sem metin var á hundraðþúsund kall. Sökin orsakaðist vegna þess að það var ekki hægt að ræða nein viðkvæm mál í ríkisstjórninni vegna innbyrðis trúnaðarbrests. Geir var látinn gjalda þessa.

Hver verður upphæðin sem Vigdís nefnir í sambandi við sölu bankanna? Hver ætlar að axla ábyrgð? Steingrímur J. Sigfússon hefur oftlega áfellst Sjálfstæðisflokkinn fyrir að gera ekki upp fortíð sína vegna ábyrgðar á hruninu.

Hefur þessi maður sjálfur gert upp ábyrgð sína af því að hafa gefið kröfuhöfunum skotleyfi á íslenskan almenning? Nú hefur Steingrímur tilkynnt um framboð sitt til Alþingis. Er hann með þessu að styrkja stöðu sína gegn málatilbúnaði Vigdísar? Geta sjálfur legið í vörninni þegar sök hans kemur til umræðu?

Það er sagt að sá sem ríður á tígrisdýri geti ekki stigið af baki. Byggist framboð Steingríms J. Sigfússonar á þessu yfirvofandi atriði með silfurfatið? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Steingrímur er óttalaus maður. Við bíðum spennt eftir þessari skýrslu. Það er alveg sama hverjir eru við völd, menn klúðra öllu vinstri hægri, sama hvað flokkarnir heita. 

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 23.5.2016 kl. 11:09

2 identicon

Menn eru ofsalega duglegir að skauta framhjá fyrri einkavæðingu Bankanna. Þar var um 100% þjófnað að ræða. Þjófnaður frá almenningi til einkavina. Þeir létu okkr halda að Landsbankinn yrði borgaður með Rússagulli sem reyndist svo lán úr Búnaðarbankanum. Og þegar Búnaðarbankinn var seldur var tekið lán í Landsbankanum. Þessi lán hafa aldrei verið greidd. ekki einu sinni ein afborgun. Og ef ég man rétt var þetta í boði Sjálfstæðis og Framsóknarflokks. Alltaf þegar Vigdís tjáir sig, þá hugsa ég alltaf. "Veit hú virkilega ekki í hvaða fokki hún er?"

Svo er aðal gerandinn í öllu þessu á fullu í reyna að telja þjóðinni trú um að hann sé best til þess fallinn að verða Forseti Íslands.

Þetta verður ekki toppað.

Steindór Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.5.2016 kl. 13:15

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það væri nú skárra að ekki mættu bestu og heiðarlegustu menn leggja fyrir sig stjórnmál af því eitthvað krítiskt átti sér stað þegar viðkomandi var barn eða ekki fætt. Er ekki verið að leiða þjóðina út úr hörmungum eftirhruns áranna? Þarf ekki að fylgja þekking því samfara,að varast vítin?

Helga Kristjánsdóttir, 23.5.2016 kl. 13:56

4 Smámynd: Elle_

Gerandinn í þessu skrifaði Steindór.  Og lýsir Davíð beint og óbeint sem stórþjófi.  Steindór talaði svo illa um Vigdísi líka, einn sterkasta stjórnmálamanninn, og ekki síst þegar hún talaði gegn hinni alræmdu Láru Hönnu sem ætti ekki að fá að koma nálægt RUV.

Elle_, 23.5.2016 kl. 18:19

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

SS

100% þjófnaður?  


Hvernig stendur þá á því að þú gast keypt hlutabréf í Landsbankanum eða Búnaðarbankanum daginn fyrir sölu þeirra á lægra verði hvert bréf en kjölfestufjárfestarnir keyptu þá á?
Svo ertu með algera steypu með greiðslurnar til ríkisins fyrir bankana. Þær skiluðu sér 100% í ríkissjóð. Þú bullar hér 100% ! Af hverju kannarðu ekki betur svona hluti áður en þú ryðst fram með sóðalegan bloggpennan þinn?


Vissulega tóku Bjöggarnir 1/3 að láni hjá Búnaðarbankanum, en það var á persónulegri ábyrgð þess yngri. Ef þú hefðir sett upp lesgleraugun í fyrra eða hitteðfyrra þá hefðirðu séð frétt um það að Bjöggi Th. samdi um þær eftirstöðvar og er búinn að greiða þær upp. Ríkissjóður fékk samt á sínum tíma allt greitt.

Þá voru alþjóðleg matsfyrirtæki látin meta söluvirði bankanna áður en þeir voru seldir og farið eftir því verðmati við söluna.
Davíð vildi ekki selja kjölfestuhlut, heldur taldi að enginn ætti að eiga meira en 3-6 % ca í banka. Framsókn krafðist þess að þetta yrði gert með því að selja kjölfestuhlut og til að halda frið í stjórninni samþykktu ráðherrar Sjálfstæðisflokks að láta það eftir framsóknarmönnunum.

Þú ert greinilega einn þeirra sem skipa Einsmálslandssölulandráðafylkingu hinnar björtu framtíðar með vinstri grænnu slagsíðuna !  Þú virðist ekki geta sagt satt orð, eða látið hvern mann njóta sannmælis eins og ykkar er háttur þegar mið- eða hægrimenn eiga í hlut, sér í lagi ef sá er Davíð Oddsson. Þér tókst að sjóða saman helbera lygi og vitleysu í nokkrum línum um glæpsamlegt ferli og klykktir út með því að klína því á Davíð alsaklausan.

Ég segi nú eins og þú:

Þetta verður ekki toppað, nema ef vera kynni af meðreiðarsveinum þínum í Einsmálslandssölulandráðafylkingu hinnar björtu framtíðar með vinstri grænnu slagsíðuna ! 

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.5.2016 kl. 19:24

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Cachoethes, Music to my ears

Halldór Jónsson, 23.5.2016 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband