Leita í fréttum mbl.is

Meiri hamingja

til viðbótar við þá sem ég skrifaði um hana sonardóttur mína sem var að klára iðnaðarverkfræðina í Danmörku með hæstu einkunn. 

Hvað haldið þið að gerist næst? Pabbi hennar hann Jón Ólafur lét fréttast að hann biði okkur nánustu til teitis. Tilefnið væri sosum ekkert sérstakt, hann hefði verið að ljúka einum kúrs í viðbót Háskólanum, við skyldum ekkert vera að gera mikið úr því. Með eiginlega eftirgangsmunum fékk maður að vita það að þetta hefði verið meistarapróf í viðskiptafræði. Til þess að gera nýbúinn með MBA. Ha?

Ég hafði ekki hugmynd um að hann Jón minn stundaði háskólanám svona meðfram fullu starfi sem hlýtur þó að vera talsvert. Nú er ég farinn að skammast mín verulega fyrir eigið framlag í lífinu. Hélt bara að það væri nóg að vera í vinnu. Það er það greinilega ekki lengur nægjanlegt hjá þessu unga fólki. Það getur meira og gerir það. Sjáið hann Ólaf Jóhann. Forstjóri í Sony og heimsþekktur rithöfundur í tómstundum. Ég þykist vita að hann Jón kann mér fáar þakkir fyrir að vekja athygli á þessu og raunar búinn að biðja um að láta þetta fara hljótt. En ég bara get ekki annað en þanið mig út í þessari fótboltastemningu sem nú ríkir, svo montinn er ég af þessu fólki mínu.Og konan hans Jóns míns hún Guðrún innanhússhönnuður, er líka búinn að klára Master á undanförnum árum án þess að gera mikið úr því.Og sonur hennar og Jóns og tengdadóttir bæði útskrifaðir Master-lögfræðingar á síðasta ári með mikilli vinnu. Ja hérna, maður sem rétt drullaðist sjálfur.

Þegar ég var í æsku minni í Þýskalandi var Adenauer gamli í forystunni hátt á níræðisaldri.Í kosningunum sungum við "Der Alte bleibt, Ihr köntt Euch d´rauf verlassen..." Gárungarnir sögðu að hann væri nýbúinn að fá sér skjaldbökuunga. Hann ætlaði að vita hvort það væri satt að þeir gætu orðið 200 ára.

Ludvig Erhardt sá mikli hagfræðingur vildi taka við af Adda þegar sá síðari taldi að sinn tími væri liðinn. Þá sagði Addi nei, þú hefur ekki það sem til þarf Lúlli minn. Og það kom á daginn, fræðin duga ekki alltaf á daglegt líf og var Addi þó líka sprenglærður. Pólitíkin er oft öðruvísi en kennilegur veruleikinn. 

Það eru menn löngu búnir að sjá hér á Íslandi þegar síbylja háskólabullsins ríður yfir almenning, þar sem hver fræðimaðurinn öðrum fremri sendir heimsendaspár sínar um það hvað gerist sé ekki hlutstað á þá, Kúbur-Norðursins og kjarnorkuvetur og hvað það heitir allt saman. Svo ég held bara að ég hætti við að láta innrita mig í hebresku í haust, það breytir víst engu héðan af. Ég er ekki að gera lítið úr Háskólanum þar sem hann afi minn var prófessor. En minni á að allt hefur sinn tíma og allt hefur sín takmörk.

En húrra fyrir öllu þessu duglega unga fólki. Allt sem maður lærir er betur lært en ólært. Það er þekkingin sem leiðir mannkynið áfram og blindur er bóklaus maður sögðu þeir í gamla daga.Þekkingin sjálf er lífshamingjan. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Til hamingju með þetta allt! En að vera boðinn til útlanda til að fagna þessu með börnunum er bara gaman hjá þér.Vertu bara montin af börnunum. Maður sleppir jafnan að nefna lærdóm þeirra á nafn,nema á Facebook þar sem þau sjálf eru svo frjálsleg.Ég er einmitt að fara í útskrift sonardóttur minnar,sem lauk master í viðskiptafræði i Barselona og rétt sleppur heim til að fæða frumburð sinn.- Nú langar mig að spyrja þig hvort hann Jón þinn er sá sem lék fótbolta með Breiðabliki í eina tíð, hjartans hamingjuóskir með börnin. 

Helga Kristjánsdóttir, 24.6.2016 kl. 12:50

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Jú jú þetta er Jón í boltanum. Ég fór nú ekki til útlanda til að fagna þessu, fór austur í bústað og var alveg jafn glaður. Til hamingju með afkomandann Helga.

Halldór Jónsson, 24.6.2016 kl. 13:22

3 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Vil: samfagna ykkur nöfnu minni (Helgu Kristjánsdóttur) báðum, fyrir dugnað og áræðni sem þrótt, afkomenda ykkar beggja, á hinum margvíslegu sviðum mannlífsins.

Og - þá ekki síður, vil ég árétta heillakveðjur til ykkar einnig, vegna þess þrekvirkis Engil- Saxneskra frænda okkar á Bretlandseyjum (og nágranna þeirra), með þann ágæta dreng:: Boris Johnson í fararbroddi, að hafa yfirgefið Brussel - Berlínar selskapinn, gærdegis !!!

Beztu kveðjur af Suðurlandi - sem jafnan / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.6.2016 kl. 13:43

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Óskar, var maður ekki orðinn skítnervös af öllu þessu hræðslutali? Bretar sýndu núna hvað í þeim  býr. Þeir takast á við framtíðina. Við getum ekki einu sinni komið auga á góðæruð sem ríkir hérna. Landið nettó skuldlaust eða svo, kaupmáttur sem aldrei fyrr og verðbólgan enn lítil þó að okkar vösku sveitir sérkjara munu brátt skaffa okkur almennilega verðbólgu sem við þekkjum. Og fleiri negra og araba sem nýja Íslendinga sem mótvægi við það sem Bretar voru einmitt að afgreiða hjá sér.

Halldór Jónsson, 24.6.2016 kl. 23:12

5 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Halldór !

Sá er verkurinn: hérlendis.

Á sama tíma - og þeir Boris Johnson í Bretlandi / Viktor Orban í Ungverjalandi, sem og Robert Fico í Slóvakíu:: að, ógleymdum Geert Wilders í Hollandi t.d., vilja fara að skúbba úr úr álfunni (Evrópu) Araba (og víðar að: svo sem) lýðnum Múhameðska, sem fyrir er, og hrinda frekara aðstreymi þeirra, hingað til Vesturlanda, er tómt hik og fálm og fát ráðamanna í : Berlín - Stokkhólmi - París og Reykjavík t.d., þó augljós séu vandræðin, sem af þessu óknytta liði stafar.

Sannarlega !

En: hvað Negrana snertir, plagar tilkoma þeirra hingað / eða þá annað, ekkert svo sérstaklega Halldór minn, svo fremi, að ekki séu játendur skrattakollsins Múhameðs.

Reyndar - eigum við Hvítingjar það sammerkt með þeim svörtu, að vera ekki eins vakrir og lifandi á flestum sviðum, sem skáfrændur mínir, þeir Gulu (hinar ágætu Mongólsku þjóðir), sem einna iðjusamastar eru, að Brúnum (Malayjum o.fl.) og Rauðum (Indíánum og Ínúítum) ólöstuðum, Verkfræðingur snjalli.

Þannig að: víða má finna hnökrana / sem og kostina, ef út í væri farið nánar, Halldór.

Ekki síðri kveðjur - þeim fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.6.2016 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418162

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband