Leita í fréttum mbl.is

Látum við blekkjast

enn og aftur eins og sæfarendur þeir sem heyrðu söng Sírenenna í hafinu. Hver sá sem heyrði sönginn missti allt vit og hljóp dáleiddur til eigin tortímingar. Og þó að hann léti gera gat á vaxtappann sem settur hafði verið í eyru hans og búið væri að binda hann við mastrið svo hann gæti aðeins heyrt sönginn án þess að hlaupa fyrir borð, þá voru textarnir sjálfir jafnvel baneitraðir.

Nú eru að koma kosningar. Þá syngur Sírenan. Í þetta sinn í hefur Össur látið binda sig búðarlíni og gaular sem mest hann má.Fáir sem þekkja hann munu samt gera göt á eyrnatappa sína til að heyra vælið og varla hafa textarnir breyst svo mikið að þeir sem kannast við þá frá fyrri tíð hlaupi fyrir borð. En einhverjir munu láta heillast og hlaupa því sviknir tortímingunni á vald. Annars syngi ekki sírenan.

Hvað er það sem veldur að fólk vill ekki meta að neinu verk þessarar ríkisstjórnar?

Er það af því að hún sveik einhver fyrirheit um þjóðaratkvæði um inngöngu í ESB? Viðreisnarfólkið sé svo fúlt vegna þessa að tíund þjóðarinnar hlýði söngnum?

Af því að stærsti hluti unga fólksins hefur ekki fengið aukatekið orð um hvernig húsnæðismálavextir framtíðarinnar skulu reiknaðir nema útfrá verðtryggingu?

Af því að stjórnmálaflokkar hafa aldrei lagt á sig að reikna þjóðarhag af því að niðurgreiða vexti af fyrstu íbúð eins og greinilega er gert annarsstaðar?

Af því að íslenskir sveitarstjórnarmenn eru eins og tréhestar þegar kemur að bæjaskipulagi og lóðasölu. Samræmt stórverktakaskipulag til byggingar fallbyssuheldra steinsteypuvirkja með 1000 ára endingar og hvergi lóð né byggingasamþykkt fyrir gámahús hvað þá Smáibúðahverfi?

Skuldaniðurfellingin er svo langt til baka að enginn man hvort þessi eða þar áður ríkisstjórn Össurar framkvæmdi hana? Vörugjaldabrottfall og söluskattslækkun, hvern varðar um það nema gamla heildsala?

Skattalækkanir í örsmæð breyta engu og gamlir og kramdir skipta engu máli því þeir kjósa alltaf eins. Og svo verður bara að breyta og breyta þangað til að búið er að breyta öllu og þá á breyta til baka? 

Þegar einhverjir halda að gæfan felist í stjórnarskrá þá verða alltaf einhverjir sem tala um stjórnarskrárbrot eins og menn eru fljótir að væna hvorn annan um.

"Hver stjórnarskrá í heimi er gerð úr gylltum hlekkjum,

við göngum undir okið hún er frelsið sem við þekkjum.

Að kvölum okkar linni ef við krjúpum ef við grátum,

í kirkjum þeirra háu það er trúin sem við játum."  

(Þannig sá hinn róttæki Davíð hvernig kerfið leit út í raun og veru. Af einhverjum ástæðum breyttist smekkur hans eitthvað, hugsanlega  þegar hús og peningar komu til sögunnar hjá honum.

Eru þeir margir óbreyttir kjósendur sem trúa því að hagur þeirra muni breytast mikið til batnaðar eftir næstu kosningar? Að hagurinn muni versna? En líklega yrði þessu öfugt farið ef nýir framjóðendur væru spurðir.

Bráðum brestur hann á brigslyrðastormurinn. Sírenurnar munu syngja og Össur lofar bættri tíð og blómum í haga í nýrri vinstristjórn. Hundraðmilljörðum af herfangi Pírata verður hent yfir Almmannagjá.Svaka gaman að fá þrjúhundruðþúsund kall fyrir jólin? Verður sem fyrr að því verr gefast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman?

Er virkilega einhversstaðar ofurbjart framundan? Eð bera bólstraský bjálfanna hæst á himnum?

Látum við blekkjast eins ferðina enn?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Góður sem fyrr og það tók sig upp gömul hending "þannig týnist tíminn" eins og gömul Stjórnarskrárbrot sem búið er að brjóta......Mb.Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 1.8.2016 kl. 15:25

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll halldór minn! Segi elveg satt að Raggi Bjarna og Lay Low hljómuðu í eyrum mér eftir lesturinn,en átti að vera ,eins og gömul Stjórnarskrágrein.. 

Helga Kristjánsdóttir, 1.8.2016 kl. 17:31

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

"Er það af því að hún sveik einhver fyrirheit um þjóðaratkvæði um inngöngu í ESB? " ja - einus sinni lygari alltaf **** - er hægt að treysta svona stjórnmálamönnum/flokkum

Rafn Guðmundsson, 1.8.2016 kl. 18:13

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Varst þú einhverntímann eitthvað annað Rafn?

Halldór Jónsson, 1.8.2016 kl. 21:08

5 identicon

Þú hlýtur að átta þig á því Halldór minn að þessi ríkisstjórn er ekki að vinna fyrir fólkið í landinu. Síðasta ríkisstjórn var ekki hveldur að vinna fyrir fólkið í landinu. Og ég á ekki von á að næsta ríkisstjórn geri það heldur, hver svo sem hún verður. En ég skil ekki þetta "Sjálfstæðisflokkssydrom", en það er kannski ekkert verra en annað "syndrom". En allavega er ég búinn, reyndar fyrir löngu síðan að gefast upp á að kjósa. Það sparar skóslit og jafnvel bensín að sleppa því að fara á klörstað. Og ef maður sleppir því að kjósa. þá þarf maður ekki að svara fyrir ruglið í þeim sem maður hefði kosið, ef þeir myndu slysast til að fara í ríkisstjórn.

En fyrst og síðast er ég löngu búinn að átta mig á því að það er ekkert lýðræði á Íslandi. Og í mínum huga eru þeir sem labba á kjörstað, bara að samþykkja gerfilýðræði.

Steindór Sigurðsson (IP-tala skráð) 2.8.2016 kl. 04:29

6 Smámynd: Jón Thorberg Friðþjófsson

 Það er ekki þjóðaratkvæðið sem skiptir máli. Hér eru allir innviðir þjóðfélagsins í molum. Heilbrigðiskerfið í rúst, gatnakerfi landsins ónýtt, sjúkra og slökkviliðið berst í bökkum, löggæslan er í molum, þannig að við erum að verða ein mesta dópneysluþjóð á norðurhveli, ef ekki víðar.

Við þurfum að fækka þingmönnum um helming, einnig borgafulltrúum Reykjavíkur í 9 og í öðrum sveitafélögum samsvarandi. 

Jón Thorberg Friðþjófsson, 2.8.2016 kl. 08:16

7 identicon

Þetta er alveg hárrétt hjá þér Jón og það mætti tína til miklu fleiri atriði. Það er þetta sem ég er að tala um og að mínu mati er þetta alltsaman "planað". Þenslan og hrunið var líka "planað" og það sér ekkert fyrir endann á ruglinu. Og það breytir heldur ekki neinu hvað við kjósum, fyrst og fremst vegna þess að völdin eru ekki á alþingi. Það er mesta blekkingin. Þannig að eina leiðin til að fá einhverjar breytingar er að fólk vakni. Eina lausnin er að við sitjum öll heima í næstu kosningm og mótmælum þessu gervilýðræði.

En eins og sagan kennir okkur þá eru fáir sem hafa vit á því og þá lagast ekkert.

Ég lít að þetta þannig að þeir sem kosnir eru og komast í ríkisstjórn, líti þannig á að fólkið hafi gefið þeim leyfi til að stela bitastæðum ríkisfyrirtækjum.

Þannig er þetta og þannig verður þetta.

Steindór Sigurðsson (IP-tala skráð) 2.8.2016 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418168

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband