Leita í fréttum mbl.is

Hér eftir verð ég Dr. Dóri !

héreftir.

Mig langaði nebbnilega alltaf til að verða Doktor. Miklu flottar en að vera bara Diplom Ingenieur. Það er sko munur á því á því að vera Herra Braun eða Doktor Braun í Þýskkalandi get ég sagt ykkur. Meira að segja eiginkonan er þar kölluð Frau Doktor Braun. 

Það er auðvitað bara formsatriðiað ljúka einhverjum kúrsum upp í Háskóla en með tilliti til aldurs og fyrri starfa finnst mér allt í lagi að nota titilinn Doktor meðan ég hef ánægju af.

Ég á eftir að senda grein um þetta á Wikipediu og þið kannski hjálpið mér að rökstyðja þessa afstöðu mína. Ég hef ekki beinlínis fallið í neinum kúrsi þarna upp í Háskóla hjá henni Doktor Lund þar sem ég hef ekki farið í neina svoleiðis, eða þannig það ég veit. Mér finnst það ekki skipta neinu máli í sjálfu sér nema ef ykkur finnst þetta ómögulegt af því að ég er íhald en ekki forsætisráðherraefni Pírata.

Svo er hann Gunnar Ingi Birgisson ekkert að nota sinn Doktorstitil dags daglega svo ég get þá fengið hafa hans á meðan eða hvað. Er það ekki alveg í lagi?

Já, ég kann bara vel við að vera orðinn Doktor Dóri en ekki bara Dóri.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

 Jón Þór Ólafsson stjórnmálafræðingu mun telja þetta í lagi.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.10.2016 kl. 21:53

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekki viss um ég sé sáttur við þennan ráðahag þinn, nafni. Hafði nebbnilega hugsað mér að taka þetta starfsheiti upp sjálfur, en þar sem nóg pláss virðist vera fyrir starfstitla og gráður, sem sárafáir kanna, geri ég ráð fyrir að við getum báðir straujað okkur upp metorðastigann, án teljandi vandræða. Þetta hljómar nebbnilega svo djöfull vel. Fá nöfn sem falla eins vel að því að vera doctor og nafnið Dóri. Pössum okkur aðeins á því eð bendla nafnbótina ekki við stærðfræði og þá verður allt í gúddí.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 25.10.2016 kl. 22:01

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ágæt hjá þér Doktor Dóri og farnist þér vel með kutann og stoppunálina, en frá því er að segja að skrautfjaðrir og glingur, helst stolið hefur allatíð verið uppáhald pírata, hvar í heiminum sem þeir hafa fengið næði til að athafnað sig.      

Hrólfur Þ Hraundal, 25.10.2016 kl. 22:57

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll doktor Dóri.

Titlar hafa oft kitlað fólk, sjálfur nota ég titilinn "Afi" í símaskránni og ætla að láta hann duga, enn um stund. Kannski bæti ég viðhenginu "Lang-" fyrir framan einhverntíman í náinni framtíð.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 26.10.2016 kl. 08:42

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Gunnar Heiðarsson,

ég er orðinn Lang-. verð ég þá ekki bara Dr.Lang? Forsætisráðherraefni minnar fjölskyldu?

Nafni, við verðum bara flottir saman sem doktor Dórar

Já og Fjeldsted,Jón Þór er fjölfræðingur mikill sem vissi allt miklu betur en Bjarni Ben í umræðuþættinum og naut auðvitað tilstyrks Hrannars Péturssonar umræðusstjóra eða heitir hann það ekki.

Hraundal, já það er nú betra að sauma skrautfjaðrinar með hörtvinna svo þær tolli. Jón Þór stundaði nám í heimspeki og viðskiptafræði alveg eins og Smári stundaði stærðfræðinámið í Háskólanum. En Jón Þór kann örugglega að malbika betur en ég er ég viss um og Smári kann betur að forrita en ég. Þetta eru báðir góðir menn á sínum sviðum. En hvort þau svið eru í góðar forsendur fyrir pólitík það veit ég nú ekki.

Halldór Jónsson, 27.10.2016 kl. 05:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418160

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband