Leita í fréttum mbl.is

Eru þetta stjórnmálaflokkar?

eða leikskólar? 

Formaður í VG situr í sandkassanum sínum og tautar einhverjar töfraþulur með sér um hvað hann Store Stygge Ulv sé vondur. Sjálfstæðisflokkurinn sé ekkert nema illskan í garð lítilmagnans, gerspilltur og blablabla. (Eða er þetta bara friðþægingartal til undirbúnings sinnaskiptum?)

Eru ekki stjórnmálaflokkar til þess að hafa áhrif? Er ekki þeirra hlutverk að greiða þjóðinni götu, gjöra veg fólksins beinni? Er ekki Katrín Jakobsdóttir í vinnu´fyrir þjóðina  á Alþingi? 

Sama má spyrja sig varðandi Framsókn? Ætla Sigurður Ingi og Sigmundur Davíð að láta persónulegan ágreining sín á milli koma í veg fyrir að þeir vinni fyrir þjóðina ef þeir eru beðnir um það? Af hverju geta þeir ekki tekist í hendur og lagt persónulegan ágreining sinn til hliðar.Þykir þeim ekki vænna um Framsóknarflokkinn heldur en sjálfa sig?

Það er borðliggjandi að þessir þrír flokkar geta myndað trausta stjórn með mikinn þingmeirihluta. 

En spurningin er hvað VG og Framsókn séu er í raun og veru?

Stjórnmálaflokkar eða leikskólar dadaista?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gefi Sjálfstæðisflokkurinn eftir sín stefnumál og hugsjónir verður ekkert mál fyrir aðra að vinna með honum. Og séu þeir bara að vinna fyrir þjóðina þá ættu þeir að gera það hið snarasta. Stefnumál þeirra og hugsjónir hljóta að víkja fyrir traustri stjórn með mikinn þingmeirihluta.

En spurningin er hvað Sjálfstæðisflokkurinn sé í raun og veru?

Stjórnmálaflokkur eða valdasjúkur hagsmunagæsluklúbbur flokkseigendana.

Davíð12 (IP-tala skráð) 31.10.2016 kl. 14:47

2 identicon

Já, það er nú það. Ég vona, að Guðni hafi vit á því að láta Bjarna fá stjórnarmyndunarumboðið fyrstan af öllum, þar sem hann stýrir stærsta flokknum. Það væri líka gaman að sjá annan Bjarna í forsætisráðherrastól og það úr sömu fjölskyldunni. Ég gæti séð fyrir mér, að hann myndaði stjórn með Framsókn og Bjartri framtíð, ef Benedikt frændi hans stæði svona stíft á sínu, eins og hann gerir, sem er þó ekki vel til fallið í stjórnmálum. Stífni borgar sig sjaldnast þar, og alls ekki í stjórnarmyndunarviðræðum. Þó að ég hafi ekki verið sammála því, sem Baldur Þórhallsson sagði í útvarpinu í morgun, að öllu leyti, þá get ég tekið undir það með honum, að það yrði ekki auðvelt fyrir Framsókn að sameinast á ný utan ríkisstjórnar, og Björt framtíð hefði gott af því að komast í ríkisstjórn og myndi á vissan hátt styrkja flokkinn að einhverju leyti. Vinstri stjórn vil ég helst ekki sjá hér, enda gefist illa, og fimm flokka stjórn líka, eins og dæmin sanna frá síðustu vinstri stjórn, auk þess sem hún mundi flana með okkur beinustu leið inn í brennandi kofaskrifli ESB, sem enginn heilvita maður vill. Samfylkingin er nú alls ekki stjórntæk eins og stendur. Þessi ESB-þráhyggja fólksins þar er ekki einasta orsökin fyrir hruninu, heldur lít ég til þeirrar staðreyndar fyrir hruni flokksins hér í Reykjavík, sem Oddnýju og öðrum virðist fyrirmunað að sjá, eða vilja ekki sjá að öðrum kosti, og það er óstjórn Dags B. Eggertssonar og hans nóta. Hrunið og þá staðreynd, að báðir þingmenn flokksins hér, kolféllu, skrifa ég alfarið á reikning Dags og Hjálmars og kó, þótt enginn þarna inni vilji við það kannast enn. Þetta á samt að gera þeim grein fyrir því, að það þýðir ekkert fyrir flokkinn að ætla að bjóða fólki upp á þessa jólasveina í næstu borgarstjórnarkosningum, ef forystan vill ekki jarða flokkinn alveg. Flokkurinn er því best kominn utan allra stjórna eins og stendur og þarf að skoða sín mál, enda á ég erfitt með að trúa því, að nokkur reikni með honum í þessarri stjórnmálafléttu, sem bíður manna nú í ríkisstjórnarviðræðunum. En eins og ég segi, ég held það geti talist skýlaus krafa kjósenda með góðu gengi Sjálfstæðisflokksins, að hann sé leiðandi afl í næstu ríkisstjórn, enda Bjarni vaxandi foringi, og hann ræður alveg við það verkefni að stjórna þriggja flokka stjórn, sem væri farsælust við þessar aðstæður að mínu mati. Mér líst ekki á aðra kosti.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2016 kl. 14:58

3 identicon

Það hefur gegnum tíðina jaðrað við sjálfsmorð að fara í stjórn með sjálfstæðisflokknum. Í besta falli hafa flokkar náð að halda fyrra fylgi en lítið þarf til og oftast tapa flokkar. Nýr flokkur í stjórn með sjálfstæðisflokknum er dæmdur til að þurrkast út við næstu kosningar. Eða svo kennir sagan okkur.

Jós.T. (IP-tala skráð) 31.10.2016 kl. 16:11

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvaða flokkur fór verst út úr kosningunum þegar samstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins hraktist frá af því að Sanfylkingin pissaði á sig að sjálfsögðu þegar erfiðleikar steðjuðu að?

Sjálfstæðisflokkurinn fékk verstu kosningu sögu sinnar, Samfó Jóhönnu viðurkenndi aldrei að hafa yfirleitt verið í stjórninni  og sluppu með það.

Halldór Jónsson, 31.10.2016 kl. 17:37

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Davíð12 er svo illa upplýstur að hann er yfirleitt ekki svara verður.

En ég skal samt fara með sjálfstæðisstefnuna fyrir hann  eins og hún er síðan 1929 og hefur aldrei verið breytt síðan þá.

1. Að standa ævarandi vörð um fullveldi landsins og sjálfstæði þess.

2. Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli atvinnufrelsis og einstaklingsfrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.

Kommúnisti getur auðvitað ekki skilið svona einfalda stefnu sem ekki má breyta eftir hentugleikum hverju sinni.

Halldór Jónsson, 31.10.2016 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband