Leita í fréttum mbl.is

Rekstur Hörpu

hefur veriđ sveipađur leynd gagnvart almenningi.

Pétur heitinn Blöndal lagđi fram á Alţingi Íslendinga eftirfarandi fyrirspurn um málefni Hörpu sem er ţjóđareign og á líka ađ vera ţjóđarstolt en ekki einhver ţjóđarskömm sem ekki má rćđa.

"

  1. löggjafarţing 2014–2015.
    Ţingskjal 1173  —  699. mál.

Fyrirspurn

 

til fjármála- og efnahagsráđherra um rekstur Hörpu, tónlistar- og ráđstefnuhúss.

 

Frá Pétri H. Blöndal.
    1.     Hve háum fjárhćđum hefur ríkissjóđur variđ árlega til reksturs Hörpu frá ţví ađ bygging hússins hófst? Hvert er framlagiđ áćtlađ 2015? Hverjar hafa veriđ tekjur, gjöld og sjóđstreymi á verđlagi hvers árs og uppreiknađ miđađ viđ vísitölu neysluverđs til mars 2015? 
    2.     Hafa framlög ríkisins til stofnana sem eru međ rekstur í húsinu hćkkađ vegna flutnings ţeirra ţangađ og ef svo er, hversu mikiđ? 
    3.     Hver er rekstrargrundvöllur Hörpu nćstu 30 árin, tekjur og gjöld međ og án afskrifta sem og sjóđstreymi? 
    4.     Hve há voru framlög ríkisins til tćkjakaupa í Hörpu og hvađ gerđu áćtlanir ráđ fyrir ađ verja mćtti háum fjárhćđum til ţeirra? 
    5.     Hvađ er gert ráđ fyrir háum fjárhćđum árlega til viđhalds hússins nćstu 30 árin? 
    6.     Hve mikiđ kostađi glerhjúpur hússins og hver er árlegur rekstrar- og viđhaldskostn­ađur hans? 
    7.     Hvers vegna hefur rekstraráćtlun hússins, sem Ríkisendurskođun fór á sínum tíma yfir og taldi í lagi, ekki gengiđ eftir og hver eru stćrstu frávikin? 
    8.     Getur ríkissjóđur hćtt viđ skuldbindingu vegna samningsins frá 19. febrúar 2009 um ađ halda áfram framkvćmdum? Er ekki um ađ rćđa skuldbindingu sem ţarf ađ byggjast á heimild í fjárlögum, sbr. 40. og 41. gr. stjórnarskrárinnar? 


Skriflegt svar óskast."

Hvernig má ţađ vera ađ viđkomandi yfirvöld komist upp međ ţađ ađ láta ţessa fyrirspurn sem vind um eyru ţjóta og svari henni ekki?

Nú er Hćstiréttur nýbúinn ađ breyta fasteignamatsađferđ ákveđinna húsategunda:

Svo segir í skýringabréfi frá Fasteignamati Ríkisins:

"Ţjóđskrá Íslands reiknar fasteignamat samkvćmt gangverđi á allar fasteignir. Viđ nýlegt endurmat á fasteignamati Hörpu var útbúin ný tekjumatsađferđ sem beitt verđur á öll ráđstefnu og tónleikahús. Til grundvallar ţeirrar ađferđar var međal annars lagt eins og ţú nefnir leiguverđ tónlistarhúsa, ráđstefnurýma, skrifstofueigna og verslunareigna ţar á međal verđ úr Hörpunni sjálfri."  

Nú skulu tónlistarhús, skrifstofu- og verslunarhús metin í ţá veru ađ framvegis skulu ađeins miđađ viđ rekstrarvirđi slíkra húsa en ekki byggingakostnađ. Samkvćmt ţessu eru fasteignagjöld af Hörpu líklega ađeins reiknuđ af hálfum byggingarkostnađi hennar.

Getur ţá eigandi t.d.verslunarhúss ákveđiđ sér fasteignagjöld af ţví  sjálfur međ ţví ađ ákvarđa leiguverđiđ eftir sínu skaplyndi?

Almenningur verđur eftir sem áđur ađ greiđa gjöld af sínum húseignum miđađ viđ fasteignamat FR sem tekur miđ af hćsta söluverđi slíkra eigna, alveg óháđ ţví hverjar tekjur fást af eigninni.Tilkynning ţessa efnis berst skattţegni á hverjum áramótum sem kunnugt er frá sveitarfélagi.

Er ţetta í samrćmi viđ almennar jafnrćđisreglur ţjóđfélagsins? Eru sumir jafnari en ađrir?

Ef rekstur Hörpu eđa annađ atvinnuhúsnćđi ţolir ekki ađ greiđa fasteignagjöld sem ađrar húseignir landsins, er ţá ekki ástćđa til ađ endurskođa leiguverđ slíkra húsa í stađ ţess ađ Hćstiréttur búi til svona sérreglur fyrir ákveđna flokka mannvirkja?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband