Leita í fréttum mbl.is

Hvert stefnir í heilsufarsmálum?

íslensku þjóðarinnar?

Gunnlaugur H. Jónsson eðlisfræðingur skrifa athyglisverða grein í Fréttó 23.mars. 

"Í slenska heilbrigðiskerfið er gjarnan sagt vera „eitt það besta í heimi“ og það staðfestir Hagstofan með þessari fyrirsögn: „Lífslíkur á Íslandi með þeim mestu í Evrópu.“ Með bólusetningum hefur því sem næst verið hægt að útrýma lömunarveiki, heyrnarleysi og margri annarri varanlegri örorku.

Með bæklunarskurðaðgerðum er hægt að skipta um og laga liðskemmdir sem áður leiddu til örorku. Með augnaðgerðum fá blindir sýn, með heyrnartækjum má laga heyrn og með hjartaþræðingum má lagfæra hjörtu og æðar.  Miðað við þessa upptalningu mætti ætla að heilbrigðiskerfið geti útrýmt örorku meðal Íslendinga sem ekki eru komnir á ellilífeyrisaldur.

Raunveruleikinn er allur annar. Öryrkjar eru hlutfallslega tvöfalt fleiri en annars staðar á Norðurlöndum. Aldrei hafa fleiri verið úrskurðaðir öryrkjar en á síðasta ári þegar úrskurðir um örorkumat voru 1.796 og fjölgaði um 22%. Samkvæmt tölum Tryggingastofnunar voru örorkulífeyrisþegar 16.765 á árinu 2015.

Á árinu 2015 fæddust 4.129 einstaklingar. Fjöldi öryrkja samsvarar fjórum heilum árgöngum og hefur fjöldi þeirra nær fimmfaldast á 30 árum og hlutfall þeirra á aldursbilinu 18-66 ára hefur aukist um 154%, úr 3,5% í 8,9%. Hvernig má það vera að fjöldi öryrkja margfaldast á sama tíma og læknavísindum fleygir fram? Ástæðan hlýtur að vera kerfislæg í þeim kerfum sem sett hafa verið upp til þess að meta örorku og til þess að aðstoða öryrkja við að fá bót meina sinna.

Óhuggulegar upplýsingar berast um pilluát Íslendinga og aðrar skyndilausnir. Fjölmiðlar eru undirlagðir af töfralausnum: fæðubótarefnum, vítamínum, ofurfæðu og lyfjum. Lyfjafyrirtækin setja árlega á markað nýjar lausnir í pilluformi við verkjum, ofvirkni, kvíða, svefnleysi og depurð. Öll eru þessi lyf sögð örugg til inntöku og rétt að börn fái viðeigandi lyf frá fæðingu. Íslendingar virðast vera sérstaklega móttækilegir fyrir töfralausnum. Hver man ekki eftir fótanuddtækjunum? Þau voru skaðlaus en það eru ekki örvandi lyf eins og rítalín og skyld lyf sem við notum í margfalt meira magni á Íslandi (260% meira) en í Svíþjóð.

Frá embætti landlæknis koma þessar fréttir: „Þá er Ísland orðið hæst í notkun verkjalyfja, örvandi lyfja, svefnlyfja og róandi lyfja, róandi og kvíðastillandi lyfja og flogaveikilyfja sem öll eru ávanabindandi.“

Margir geta hvorki vaknað, horft framan í daginn eða sofnað án þess að taka viðeigandi pillu. Íslendingar eru greindir með of mörg sjúkdómseinkenni sem lækna á með pilluátiAð undanförnu hafa verið gerðir sjónvarpsþættir og birst fréttir um það böl sem ópíumlyf (OxyContin) hafa valdið heilu bæjarfélögunum í Bandaríkjunum. Ópíumlyf hafa valdið dauða 200.000 Bandaríkjamanna á 20 árum. Það samsvarar því að 10 Íslendingar deyi árlega.

Það dóu tugir Íslendinga af of stórum skammti ávanabindandi lyfja á árinu 2016. Hlutfallslega er vandinn stærri en í Bandaríkjunum. Það er ekki létt verk að koma á samræmdum lyfjagagnagrunni á Íslandi. Margir læknar hafa til skamms tíma ekki nýtt hann og jafnvel barist gegn honum. Mikilvægt er að landlæknir fái stuðning til þess að þróa grunninn enn frekar og nýta til þess að rannsaka ávísanir á fíkla frá því að fyrsti lyfseðillinn er útfylltur þar til lyfjafíkill finnst látinn af of stórum lyfjaskammti. Stöndum með landlækni við að taka þéttar í taumana og herða eftirlit (viðurlög) með þeim sem mest vísa á vanabindandi lyf.

P.S. Auk þess legg ég til að rannsökuð verði örlög rítalínbarna miðað við önnur (of )virk börn."

Það er óhugnanlegt til þess að vita að nær tvær þúsundir manna skuli vera greindir em öryrkjar á ári hverju. Hvað sem líður framförum í læknavísindum, heilsubótarlyfjum og hjólhestanotkun.

Er ekki eitthvað mikið að?  Er þetta orðinn bísness að lát skrá sig öryrkja og fá fasta framfærslu?

Læðist ekki að einhverjum grunur um að maðkar séu í örorkumysunni ef allt stefnir bara niður á við í heilsufarsmálum þjóðarinnar?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband