Leita í fréttum mbl.is

Loftslagsblaðran sprungin

er yrkisefni kollega Friðrik Danielssonar í Mogga í dag.

Friðrik skrifar:

"Það þurfti leiðtoga hins frjálsa heims til að stinga á henni. Og ekki er fagurt það sem út þeytist: Blekkingar, falsanir, umhverfistrúarofstæki, losunarkvótabrask og heimsvaldabrölt. Stóriðja sem hefur eytt trilljónum dala til einskis. Nú gerist það væntanlega að fjárveitingavald Bandaríkjanna mun veita fé óháðum vísindamönnum til rannsókna á loftslagi án þess að þeir þurfi að reyna að sanna ógnina af loftslagshlýnun til að fá framlögin. Bandaríkin hafa eytt yfir 20 milljörðum dala á ári í »loftslagsrannsóknir«, um hlýnun af mannavöldum. Það verður sem sagt »ræst fram fenið« eins og Bandaríkjaforseti orðar það.

 Hitasaga

Við Íslendingar erum þegar komnir út í fenið. Tilskipanavald ESB, EES, hefur komið hér á bókstafstrúarstjórn á »loftslagsmál«. Það þýðir lélegt bensín, mokstur ofan í skurði, svindlriðið losunarkvótakerfi, rafvæðingartilraunir á kostnað bíleigenda, vindmyllur og ýmiss konar »umhverfisvænt« fálm á kostnað skattgreiðenda. Vankunnáttumenn vilja minnka »kolefnissporið« og boða »grænar« aðgerðir en vita ekki að meiri koltvísýringur gerir jörðina grænni og eflir lífið í sjónum."  

                http://www.climate4you.com/GlobalTemperatures.htm

 

Þó að enn sé engin afgerandi hlýnun (nema ónákvæmar mælingar sem sagt er frá í fjölmiðlunum) er bara að vona að óháðir vísindamenn muni finna svar við hvort við getum einhvern tíma fengið einhverja hlýnun þó koltvísýringurinn hafi hverfandi áhrif og ríkt hafi kólnun í 7500 ár. Það yrði mikil búbót fyrir okkur hér á norðurhjara þó að við séum of kjarklaus til að segja frá því. Þegar Keops byggði pýramídann voru grænar hlíðar í stað Vatnajökuls."

Hver segir að hitinn hafi verið réttari eða rangari fyrir 8000 árum þegar hann var miklu hærri en núna? Hvað olli því þegar engin var útblásturinn á gróðurhúsalofti? Hvað losaði Holuhraunsgosið mikið?

Eini orkugjafi jarðar er sólin. Hún er sá mikli máttur sem við öll lútum.  Manngerð loftslagsblaðra má sín lítils gegn hennar afli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Kærar þakkir fyrir þennan þarfa áminningarpistil. Undarlega mikil fjölmiðlun síðustu daga af alls konar mengunarfréttum af öllum öðrum mengunarvöldum, heldur en því alvarlegasta?

Ég fór í dálitla leit á netinu í gær. Af gefnu mengunartilefni er löngu tímabært að rannsaka eitrunarherferð sérútbúinna hernaðar eitrunarflugvéla, sem laumað er innan um skaðlausar venjulegar flutningaflugvélar.

Það er alls ekki sama hvaða flugvélar eru á ferð, þegar kemur að hættulegri mengun í andrúmsloftinu á Íslandi og víðar í veröldinni. 

Eftir þessa leit á netinu í gær er mér gjörsamlega ofboðið. Hrikalegt hvernig siðlausar blekkingar svikaeftirlitskerfisins á Íslandi og um allan heim, er látið ljúga okkur full af hættulegri "gróðurhúsa" vitleysu.

Þetta er mjög alvarlegt og verður að bregðast strax við þessu. Og ekki bara á Íslandi! Hvað var eiginlega verið að ræða þarna í París? Eru Frakkastjórar og fleiri stjórar svona illa að sér í mengunarmálahernaði? Ótrúlegt.

Þessi ský undanfarinna daga og oft áður yfir suðurnesjunum eru ekki nein náttúruleg veðurský. Ég hef fylgst með venjulegum veðurskýjum í hálfa öld og þekki þau. Það er enginn raki í þessum dökku skýjum síðustu daga.

Það er greinilegt að sumra fréttamiðlanna fréttafólk er hrætt við að fjalla um þessa stórhættulegu hernaðarmengun. Hver skyldi eiga fjölmiðlana? Rotschildarar eiga Seðlabanka Íslands og fleiri banka á Íslandi, ásamt fjölmörgum bönkum út um allan heim. Meir um það seinna.

Ekki undarlegt að sumum hernaðarmafíustjórum liggi á að byggja líffæra bróderinga spítalann. Með sama áframhaldi verða margir orðnir meir og minna heilabilaðir heilsuleysingjar, og hálf eða aldánir á stuttum tíma. Þeir veikustu fara fyrst. Þetta eru dulbúnir stríðsglæpir nútímans, sem almenningi er ekki ætlað að fatta fyrr en orðinn of sjúkur til að verjast. Þegar heilinn er orðinn skemmdur af þessum megnunum hjá stórum hluta mannkyns jarðar, þá er ekkert hægt að gera til að stöðva sturlunina.

Umhverfisstofnun sýndist mér að væri ekki með eftirlit með flugumferðarmengun? Bara bíla og skipaumferðarmengun? Viljandi svik, eða vanhæfni og dómgreindarleysi yfirfræðingastjórnar þeirrar eftirlits stofnunar?

Það er bara litið eftir öllu mögulegu mis smáu og lítilvægu í stóra samhenginu, á einhvern múgsefjunar fjölmiðlaðan áróðurshátt? Ekki einu sinni kannað hver sjúkdómseinkenni viðkomandi verksmiðjumengunar tilvikanna eru, til að finna raunverulegt samhengi?

Goldman Sax verður hættulaus í samanburði við þessa hernaðareitrunar flugútgerð heimsveldissturlaðra hernaðarstjóra.

Almannavarnir verða að græja sig til að mæla dökku mengunarskýin, sem laumað er innan um eðlilega  flutningaflugið. Gosmengun veður bara nánast hættulaus í samanburði við flughernaðar eiturefnaafleiðingarnar. Almenningur á Íslandi og um allan heim verður að vakna, áður en það er endanlega of seint. 

youtube: Secret Chemtrail Pilot Speaks, on Dec 8, 2014

googla: Her ser noen et stort og hemmelig prosjekt

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.4.2017 kl. 10:39

2 identicon

Í "kennslustund" hjá próf. Harald Lesch:Harald Lesch: Der Klimawandel [ZDF]

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 3.4.2017 kl. 11:21

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hver veldur hverri tegund af raunverulega skaðlegri mengun um víða veröld. Og hver verður látinn borga hverra og hvaða skilgreinda skaða, með óskilgreindu/órannsökuðu okrandi kolefnisgjaldi?

Eftirlit? Hvað er það?

Hverjir stjórna eftirliti í heiminum, og fyrir hverja?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.4.2017 kl. 13:15

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Loftslagshlýnun og mengun er ekki eitt og hið sama.  Sóðaleg umgengni er ekki til fyrirmyndar en það er ósannað að hún valdi loftslagshlýnun.  Alltof lengi hefur verið sett samasemmerki þarna á milli.

Kolbrún Hilmars, 3.4.2017 kl. 13:58

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Kannski getur þessi nýi spámaður fengið styrk hjá "leiðtoga hinna frjálsu þjóða" til að komast að þeirri niðurstöðu, sem hann birtir í greininni í Mogganum í dag. 

Í stað þess að aka um á "lélegu bensíni" eins og hann segir að gert sé gert núna, fáum við aftur bensínið sem var þegar "America was great", blandað með blýi og öðrum eiturefnum, sem koma octane-tölunni upp í 100-115 octane. 

Fáum aftur eiturloftið sem lék um stórborgir Bandaríkjanna, byrgði sýn svo að súrnaði í augum aður en byrjað var á því að framleiða "lélegt bensín." 

Fáum líka að margfalda koltvísýringsútblásturinn, því að hann "eflir lífríkið í sjónum." 

Niðurstaða Friðriks um að súrnun sjávar efli lífríkið er stórfrétt fyrir okkur Íslendinga og alla heimsbyggðina svo að það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að þessi vísindalega niðurstaða hans komist til "leiðtoga hinna frjálsu þjóða", því að hingað til hafa hrunin kóralrif og aðrar rannsóknir bent til annars. 

Aukum súrnun sjávar sem allra mest! gæti orðið kjörorð okkar. 

Líka er mikilvægt að dómi Friðriks að hætta "rafvæðingartilraunum á kostnað bíleigenda" og vinna að því öllum árum að koma í veg fyrir að við Íslendingar notum eigin orku til samgangna. 

Þá verður "trilljónum bandaríkjadala til stóriðju" ekki eytt til einskis. 

Dýrleg framtíðarsýn fyrir þig, Halldór minn. 

Ómar Ragnarsson, 3.4.2017 kl. 14:03

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú ert nú hugsanlega að fara fram úr þér Ómar minn. Þú talar út frá niðurstöðum sem þú gefur þér sjálfur að séu réttar. Þar kemst enginn efi að.

Hvarflar aldrei að þér efi um Al Gore? Er sá maður ekki bara í bísness við að prédika út frá hæpnum forsendum um leið og hann djettar í háloftunum og spýr þar eldi og eimyrju. Er hann ekki að nota sér fólk með hræðsluáróðri?

Halldór Jónsson, 4.4.2017 kl. 08:13

7 identicon

Þessi var rekinn þegar hann fór að efast..http://www.cnsnews.com/news/article/kathleen-brown/nobel-prize-winning-physicist-obama-dead-wrong-global-warming-0

GB (IP-tala skráð) 4.4.2017 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband