Leita í fréttum mbl.is

Hvernig Óli Björn?

á þetta að ganga upp?

"Selja á flugstöðina og nýta þá fjármuni sem losna til að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir í samgöngum - í vegi, brýr, göng, hafnir og innanlandsflugvelli.

 Með sölunni losar ríkissjóður tugi milljarða sem eyrnamerktir verða umbótum og uppbyggingu í samgöngum um allt land. Þessir fjármunir bætast við það sem ætlað er til árlegrar fjárfestingar í samgöngum á komandi árum samkvæmt fjármálaáætlun, þar á meðal smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju og Dýrafjarðargöng. 

Sá er þetta skrifar er sannfærður um að hagsmunum almennings og fyrirtækja er betur borgið með því að nýta fjármuni í umfangsmiklar umbætur í samgöngum en að binda þá í flugstöð, sem aðrir en ríkið eru betur færir um að reka.

 Um leið og Alþingi markar stefnuna til næstu fimm ára í opinberum fjármálum er nauðsynlegt að fram fari umræða og athugun á því hvort og þá hvernig nýting eigna ríkisins þjóni hagsmunum landsmanna best. Alveg með sama hætti og almenningur gerir þá eðlilegu kröfu til fjárveitingavaldsins að dýrmætum skatttekjum sé vel varið er ætlast til þess að bundnir fjármunir séu nýttir í það sem mikilvægast er."

Hver á að kaupa Flugstöðina?Ef ekki flugvöllinn bara líka?  Segjum svo að Lífeyrissjóður Verslunarmanna verði neyddur til að kaupa? Á eitt-tvöþúsund milljarða? Hver á að borga honum 35-70 milljarða í hreinar árstekjur?  Ætlar Ragnar formaður að fara að reka Flugstöð? Eða getum við selt hana til Grikklands? Ragnar kaupi þá eitthvað í Grikklandi í staðinn eins og til dæmis Píreus höfn?

Og hver er hagnaðurinn af ókeypis Dýrafjarðargöngum fyrir örfá hundruð bíla? Eða óeinkavæddri Vestmannaeyjaferju? Gefast þessar eyrnamerkingar skattfjár svo vel eins og bensíngjaldsins til dæmis?

Er það bísness að borga niður skuldir Ríkisins  á 1-2% vöxtum þegar hagvöxtur er 8 %. Væri ekki athugandi að fá Ólavíus Ólavíus til ráðslags um svona mál alveg  eins og Óla Björn í bjartsýniskasti?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Verður ekki með sömu rökum hægt að selja flugvellina og vegina, sem byggðir verða, til þess að gera ný samgöngumannvirki? 

Því að flugstöð er samgöngumannvirki. 

Um daginn var Verslunarráð með tillögu í blákaldri alvöru um að selja 20 lögreglustöðvar og annað eins af kirkjum. 

Verslunarráð nefndi kirkjurnar og til þess að selja eina þeirra þarf fyrst að taka hana eignarnámi af því að hún er þegar í einkaeigu, og selja hana aftur!  

Sérstök lög um eignarnám á Hrafnseyrarkirkju gætu verið fordæmi fyrir að setja sérstök lög um Þingvelli til að afnema núverandi lög, sem banna sölu og veðsetningu á þeim gróðavænleg reit. 

Og síðar fordæmi fyrir að taka flugvellina og vegina eignarnámi og selja þá aftur, og búa þannig til hringekju þar sem skiptast á eignarnám og sala. 

Ómar Ragnarsson, 5.4.2017 kl. 13:47

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

 Við þurfum að reikna út út hvað margar brýr, hve mörg jarðgöng, hve langa vegi, hve marga spítala og annað er hægt að framkvæma, fyrir 30% gengishækkunina, (ca. tölur) í stað þess að láta Seðlabankann, eftir skipun Alþjóðabankans, láta okkur eyða öllum tekjunum, í oft óþarfa, og neyða fyrirtækin til að safna skuldum, til að þessi útflutningsfyrirtæki, þurfi að taka lán í bankanum, við vitum, að ef fyrirtækin taka ekki lán í bankanum, þá getur bannkinn ekki skrifað tölur og lánað fólki og fyrirtækjum, og þá eignast bankinn, ekki neitt.

Við munum að Líbýa fór að nota Denarinn, og var um leið sprengd í tætlur.

Assad tók ekki lán í Alþjóðabankanum og Sýrland sprengt í tætlur.

Ísland nær skuldlaust, 2008, og tekið niður.

Fjárfestarnir hirtu allt af okkur 2008.

Seldu til dæmis fyrirmyndar fisksölufyrirtækin, Orkuveitu Suðurnesja, Bláalónið og fleira, hæstbjóðanda, til útlanda.

Nú eru fjárfestarnir komnir á fulla ferð við að hirða allt af okkur aftur.

Við förum að hugsa, og sex og sykur í hófi.

Það hefur sýnt sig í gegn um árinn og aldirnar að ef eitthvert þjóðfélag fer í sexið og sykurinn, þá hættir það þjóðfélag að hugsa.

Lesum um gömlu göturnar, og hættum að láta fjárfestana mjólka okkur eins og kýr í fjósi.

Bið ykkur vel að lifa.

Verð að ná í kostinn.

Egilsstaðir, 05.04.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 5.4.2017 kl. 13:49

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Halldór

Það er algerlega og fullkomlega glötuð hugmynd að selja peninga-gæsina KEF. Hún má alls ekki enda á höndum þeirra sem skipa gróðanum af henni úr landi, eins og með fullkomnu öryggi yrði um að ræða.

Þetta er heimskulegasta hugmynd sem ég hef heyrt lengi. 

Hvernig má það vera að mönnum með fullu viti detti ekkert annað í hug en svona fyrir-hrun bjálfaskapur? 

Það má alltaf stilla öllum hlutnum þannig upp í reikningsdæmum að selja eigi þetta eða hitt til að skaffa þetta eða hitt sem svo verður selt til að skaffa þetta eða hitt í staðinn. Þetta trading mentality og sjoppuhugarfar verður að hætta þegar um strategíkst mikilvæg málefni föðurlandsins er að ræða.

Þeim sem langar í flugvöll núna gátu sjálfir byggt hann þegar þess var þörf. Svona pilsfalda-kapítalisma andskotans er ég búinn að fá algerlega nóg af. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.4.2017 kl. 15:01

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

1) Að selja KEF rýir tekjustofna ríkisins. Hreint og beint.

2) Rýrnandi tekjustofnar þýða aðeins eitt. Skattahækkanir eða minni opinbera þjónustu.

3) Þingmenn hafa fyrst og fremst eyðsluskyldur gagnvart kjósendum sínum (e. spening obligations). Til þess eru þeir kosnir. Þeir mega ekki gjaldfalla á þessum skyldum.

4) Ekkert sparast. Tekjur ríkisins rýrna hins vegar til muna. Ef KEF er selt þá munu tekjur þjóðfélagsins einnig rýrna til muna því hagnaðinum yrði skipað úr landi. Landið yrði verr sett en áður.

5) Þetta er AGS-ESB módelið frá Grikklandi og heimska heljarins.

6) Það er þegar búið er að leggja álögur á borgarana til að fjármagna vegakerfið. Hvar eru þeir peningar?

7) Ef við hefðum okkar eigin her, þá væri hægt að láta hann gera þetta til að bæta strategískar hersamgöngur á milli landshluta.

8) En við höfum ekki neinn her og það setur okkur í enn verra ljós þegar að svona hókus-pókus kemur. Þá peninga væri sem lágmark hægt að setja í vegakerfið. Ef það er ekki hægt þá er ríkið einfaldlega illa rekið.

9) Takið rekstrar hagnaðinn af KEF og setjið hann í vegi ef með þarf. Það er hægt. Inn í framtíðina.

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 5.4.2017 kl. 15:41

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Rýrir - á það að vera

Gunnar Rögnvaldsson, 5.4.2017 kl. 15:41

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hér er ein nýsköpunarhugmynd í þessum málum:

1) Dwight Eisenhower forseti lét byggja bandaríska þjóðvegakerfið (inter-state) til þess að geta flutt herafla frá vesturströnd til austurstrandar í einum grænum. Þetta er enn stærsta einstaka opinbera fjárfesting og mannvirki mannkynssögunnar.

2) Tölvu-örgjörvinn var fundinn upp til að nota til stýra eldflaugum bandaríska hersins.

3) Internetið var fundið upp til að nota í gagnaflutninga fyrir bandaríska herinn

4) Oracle er til vegna þess að bandaríska herinn vantaði gagnagrunn.

5) Okkur vantar íslenskan her til að stuðla að framförum í landi okkar. Hann mun margborga sig mjög fljótt, alveg eins og tæknigeiri sjávarútvegsins hefur skilað sínu.

Smellum íslenska hernum á vegaáætlun!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.4.2017 kl. 15:58

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Darios Persakóngur lét leggja vegi. napíleon lét leggja vegi og planta öspum meðfram þeim til að herinn gæti marsérað í skugga, Roosewelt og Hitler létu leggja vegi og Eisenhower vissi hvað vegir þýddu fyrir Patton og liðsveitirnar. Íslensk þingfífl vita ekki neitt nema einhverja skræðuspeki. Hvar er praktíkin Gunnar Rögnvaldsson og Jónas bóndi.

Íslendingar ná því aldrei að verða þjóð frekar en ESB af því þeir eiga ekki föðurland sem þeir eru reiðubúnir að deyja fyrir eins og Bandaríkjamenn. Við erum bara braskaralíður sem er tilbúinn að selja ömmu sína eins og allir útrásarvíkingarnir, með eða án ökklabanda. Fyrirlitlegur skríll án prinsípa sem er tilbúinn að selja landið fimm sinnum ef hann getur fyrir fjörtíu evrur úr silfri eins og Júdas á sinni tíð. Til þess höfum við fjármálaráðherra og viðreisnarspekinga. Hverjir skyldu kjósa þá næst?

Halldór Jónsson, 5.4.2017 kl. 22:09

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Já svei

Halldór Jónsson, 5.4.2017 kl. 22:10

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

þín orð Halldór.

Íslendingar ná því aldrei að verða þjóð frekar en ESB af því þeir eiga ekki föðurland sem þeir eru reiðubúnir að deyja fyrir eins og Bandaríkjamenn. Við erum bara braskaralíður sem er tilbúinn að selja ömmu sína eins og allir útrásarvíkingarnir, með eða án ökklabanda. 

Vinsamlegast hafðu mig ekki með í þinni braskara hjörð Halldór Jónsson.  Ég hef unnið fyrir mér síðan ég var nýuára og geri það enn fæddur fjörutíu og fjögur.  Það er ekki nóg að vera bara kjaftaskur og skilja ekki helminginn af þvaðri sínu sjálfur.  Grundvallar þörf kjaftaska svo sem þú sýnist vilja vera og Benni fjármála bjáni er  að sýnast en láta staðreyndir vera. 

Hrólfur Þ Hraundal, 5.4.2017 kl. 23:24

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Hrólfur,

ég var nú að skamma okkur sem þjóð fyrir kæruleysið sem einkennir okkur, ég ætlaði ekki að halda því fram að þú værir þannig í þessum þjóðarmetnaðarlausa Viðreisnar flokki alþjóðahyggjunnar.Mér hefur alltaf fundist að þú værir raunverulegur patríót. Það getur vel verið að ég sé bara kjaftaskur en ég vil samt andæfa þessu landsöluliði hver sem raunveruleg hetjulund yrði á örlagastund þó maður vildi standa sig.

Halldór Jónsson, 6.4.2017 kl. 02:08

11 identicon

Fer alltaf um mig hrollur þegar stjórnmálamenn tala um

að "Eyrnamerkja" hluti til hins og þessa.

Man ennþá eftir því hvernig salan á símanum var

"Eyrnamertk" fyrir nýjan spítala.

Ekkert af þeim peningum skilaði sér.

Þessar alþingisdruslur sem tala um að selja okkar

bestu kýr, eru ekki með réttu ráði og ætttu

að segja af sér hið fyrsta áður en það kostar

okkar þjóð tugi milljarða vegna hugsunarleysis og

vitleysu.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 6.4.2017 kl. 03:54

12 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Hvernig fór með söluna á Póst og síma, forðum daga?

Peningana átti að nýta til mikilla verka og okkur talin trú um að starfsemi þessa fyrirtækis væri mun betur rekið í höndum einkaaðila.

Peningarnir hurfu án þess að neitt bitastætt stæði eftir.

Fyrirtækinu var skipt upp, reyndar að boði frá ESB. Eftir standa tvö fyrirtæki. Síminn var svo heppinn að farsímabyltingin kom í kjölfarið og það því svo sem í lagi. Hægt gengur þó að tengja landsbyggðina við raunhæfar tengingar.

Verr hefur gengið hjá Póstinum, jafnvel þó hann hafi nánast einokun á sínum rekstri. Undanfarin ár hefur þjónusta þess fyrirtækis fallið frá því að vera slæm í að vera óforsvaranleg. Liður í að halda þessu fyrirtæki gangandi er að gefa því á hverju ári heimildir til enn skertari þjónustu. Fjöldi sveitabæja í byggð eru nú taldir utan byggða hjá póstinum. Pósthúsum, einkum á landsbyggðinni, hefur fækkað svo að sumir þurfa að aka langann veg til að finna slíkt.

Eitt er víst að ef KEF verður selt mun þjónusta þar skerðast enn frekar og arðurinn fluttur úr landi í stað þess að nýta hann til uppbyggingar á Vellinum.

Gunnar Heiðarsson, 6.4.2017 kl. 06:47

13 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Halldór, biðst velvirðingar á misskilningi mínum 5/4 kl. 23.24.

Hrólfur Þ Hraundal, 6.4.2017 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband