Leita í fréttum mbl.is

Aufúsu-Gestur

Ólafsson arkitekt skrifar þarflega grein í Mogga í dag. Fyrir kommatittina sem ekki lesa Mogga af trúarástæðum þá er ástæða til að vekja athygli á því hvert aulastefna Borgarstjórnarmeirihlutans er að leiða höfuðborg landsins í boði Píratans Halldórs Auðars Svandssonar sem heldur skipulagsstefnu Hjálmars Sveinssonar Highschool-Graduate frá USA og aðalskipulagsfræðings Reykjavíkurborgar og Dags Bergþórusonar í gildi.En eyðibýlastefna þeirra kumpána er að rústa höfuðborgarhlutverki Reykjavíkur sem mun taka langan tíma að endurheimta.

Gestur Ólafsson skrifar:

"Undanfarna áratugi hefur þróun höfuðborgarinnar okkar verið með dálítið sérstökum hætti. Þau atriði sem áður gerðu Reykjavík að óumdeildri höfuðborg landsins voru meðal annars gott stofnbrauta-, samgöngu- og flutningakerfi auk þess sem helstu sérfræðingar landsins, stofnanir, stjórnsýsla og höfuðstöðvar fyrirtækja áttu þar heimili. Upp úr því var lagt að hjá Reykjavíkurborg störfuðu helstu sérfræðingar landsins og þar var líka helsta miðstöð sérhæfðrar verslunar og þjónustu.

 

Síðan fór að fjara undan þessari stöðu borgarinnar bæði vegna aðgerða og aðgerðaleysis ráðamanna borgarinnar og Alþingis. Sem dæmi má nefna að Suðurlandsvegur, sem átti að tengjast bæði Reykjanesbraut og Kringlumýrarbraut, var sveigður niður á Vesturlandsveg og Ártúnsbrekku án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Sundabraut, sem hefði opnað fyrir þróun borgarinnar til norðurs og hefði átt að hafa verið lögð fyrir mörgum áratugum, var einfaldlega ekki lögð þótt hún hefði opnað fjölbreytta möguleika borgarinnar og gert hana aðgengilegri fyrir sveitarfélög á Vesturlandi. Afleiðingin hefur ekki látið á sér standa. Það er ástæða fyrir því að forráðamenn IKEA ákváðu að flytja starfsemi sína úr Reykjavík í Garðabæ. Fyrirtækið Costco vill líka vera þar og nýverið flutti Íslandsbanki líka höfuðstöðvar sínar úr Reykjavík í Kópavog, svo nokkur dæmi séu nefnd. Mörgum ungum og öldnum Reykvíkingum finnst líka vænlegra þessi árin að reyna að koma sér upp þaki yfir höfuðið í aðliggjandi sveitarfélögum en í Reykjavík.

 

Nú kann vel að vera að stefna ráðamanna í Reykjavík sé að reyna að hemja anda framkvæmda og framfara í flösku þráhyggju og þröngsýni, eins og anda Aladdíns, en viðbúið er að fólk og fyrirtæki sem finnst að sér þrengt leiti þá bara á gjöfulli slóðir.

Um þetta hafa Reykvíkingar lítið að segja því skipulagsvaldið er jú í höndum sveitarstjórnarmanna, a.m.k. í orði kveðnu. Íbúar Reykjavíkur fá bara að borga reikningana sína og bíða í umferðarteppunum og fara á mis við þá möguleika sem gott, faglegt skipulag hefði getað opnað. Við Íslendingar erum þó rukkaðir fyrir hátt á fjórða hundrað milljónir í skipulagsgjald á ári og fyrir þá upphæð gætum við fengið talsverða vinnu fyrir vel menntaða sérfræðinga í skipulagsmálum, þótt brjóstvitið sé líka alltaf yndislegt.

Nútímaskipulag er orðið, ef vel á að vera, talsvert viðameira og flóknara en fallegar teikningar af marglitum húsum með grasþökum - að þeim annars ólöstuðum. Vel meinandi ráðamönnum er auðvitað frjálst að trúa hverju sem þeir vilja en kannski átta Reykvíkingar sig á því þegar lengra verður liðið á 21. öldina og þegar þeir fá reikninginn hvaða tækifæri hafa farið í súginn. Við ættum samt ekki að þurfa mörg Vaðlaheiðargöng til þess.

 

Í grundvallaratriðum snúast þessi mál um það hvernig við sem samfélag getum sett okkur skynsamleg, framkvæmanleg markmið og hvernig við getum best notað takmarkaða fjármuni, þekkingu og tíma til þess að ná þeim. Þannig raunhæf stefna eða skipulag verður samt ekki til af sjálfu sér og hún á lítið skylt við þau villuljós sem margir ráðamenn hafa elt undanfarna áratugi.

 

Við getum samt ennþá í sameiningu losað um tappann í þróun Reykjavíkur, bæði til norðurs og suðurs yfir Skerjafjörð, og horft á þessi mál með opnum, ferskum augum. Mikilvægur þáttur í þannig stefnu gæti verið að leggja Sundabraut sem fyrst og þar með grunn að fyrirtækjum framtíðarinnar og stórkostlegri íbúðarbyggð með útivistarmöguleikum bæði til lands og sjávar. Með þessu væri líka hamin hækkun íbúðaverðs í grónum hverfum borgarinnar. En þannig stefnubreyting vex ekki á trjánum og hugsanlega er þessi tappi ekki bara efnislegur heldur líka huglægur.

Það er allt of auðvelt fyrir ráðamenn að hengja sjálfa sig og okkur í áratugagamlar vondar ákvarðanir sem fullyrt er að séu óumbreytanlegar, en svona fersk, fagleg stefnumörkun er algerlega nauðsynleg ef við viljum nýta þá möguleika vel sem Reykjavík og reyndar Ísland allt hafa enn upp á að bjóða."

Það þvælist fyrir mér hvort það sé virkilega fræðilegur möguleiki á því að Reykvíkingar muni endurkjósa meirihlutann sem nú ræður Reykjavík?  Ef það gerðist þá verður það aðeins Sjálfstæðisflokknum að kenna. Hann hefur þá ekki boðið upp á neinn sannfærandi valkost annan.

Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á í komandi kosningunum í Reykjavík? Ætlar flokkurinn að verða aufúsugestur í kjörklefanum?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á í komandi kosningunum í Reykjavík?"

Heyrst hefur að "Hann" muni bjóða fram Gunnar Einarsson eða Ásdísi Höllu úr sínum heimabæ, Garðabæ.  Nema "Hann" velji stjórnarformann "Fjármálaeftirlitsins" og geri Reykjavík að höfuðstöðvum helstu hrægamma heimsins?  Er það ekki það sem "Hann" vill helst.

Og "Sjálfstæðis"menn gera það sem hinn alltumlykjandi formaður þeirra vill helst.  Þeir gera það sem "Hann" vill.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 20.4.2017 kl. 17:09

2 identicon

 Já, Halldór, þessi miðborg er ekki nema fyrir túrhestana, enda fer varla að verða pláss fyrir okkur, sem í borginni búum, þar lengur. Verslun Þorsteins Bergmann, sem er búin að var í miðbænum áratugum saman, núna síðast á Skólavörðustígnum, er að loka, og eftir 1. maí verðum við að fara í búðina uppí Hraunbæ, ef við viljum kaupa eitthvað í þeirri verslun. Frúin, sem var við afgreiðslu í búðinni, og ég talaði við, þegar ég leit þar inn nýlega, sagði, að svona væri hver verslunin á fætur annarri að loka og flytja annað, eða leggja verslunina niður, því að maður sjái ekki annað en túrhesta í miðborginni, og það komi fáir aðrir í þessar verslanir. Það séu ekki aðeins verslanir, sem séu að flýja miðborgina, heldur fólkið líka. Það vilji fáir búa í miðborgarhverfunum nú orðið. Þetta er orðið algerlega óþolandi ástand, verð ég að segja. Ég er alveg sammála Gesti, enda hann skynsemdarmaður, og hefur vissulega lög að mæla. Einu verslanirnar, sem geta þrifist í miðborginni með þessu áframhaldi eru kannske bókaverslanirnar, eins og Penninn-Eymundsson og Mál og menning, enda hafa þeir ýmsar túrhestavörur á boðstólum, fyrir utan bækur og blöð. Þegar maður kemur inn í Eymundsson í Austurstræti mætir manni fyrst rekki með túrhestavörum og bókum um Ísland, og alltaf biðröð eftir afgreiðslu. Mér sýnist það sama vera uppi á teningnum í Máli og menningu. Þeir, sem búa til keramikkvörur, eru líka með sínar verslanir og verkstæði við Laugaveginn, og mikil aðsókn í þær búðir, auk skartgripaverslana. Að öðru leyti er fátt almennra verslana, eins og maður vandist áður fyrr á árunum. Mér finnst líka orðið alltof mikið af túrhestunum. Það er hægt að ganga upp og niður Laugaveginn án þess að heyra nokkuð annað en erlend mál, einkum þýsku, amerísk-ensku og kínversku eða japönsku, enda eru landar okkar farnir annað, þótt útlendingarnir sæki líka Kringluna og Smáralind. Maður getur ekki annað en hrist höfuðið yfir þessum ósköpum, og vonast til þess að þessu linni einhvern tíma. Miðborgin er líka orðin hrein hörmung, hvernig sem á það er litið. Ég á nú ekki von á því, að Samfó fái mörg atkvæðin í næstu kosningum, eins og útreiðin var í síðustu kosningum, enda vitum við bæði, að það hefur alltaf verið mikið samband milli kosninga hér á Íslandi. Ef fólk er óánægt með eitthvað heima í héraði, þá hefnir það sín í næstu kosningum, hvort sem þær eru til alþingis eða sveitastjórna. Það hefur aldrei skipt máli, svo að Dagur má þakka fyrir, ef hann kemst einn inn í sveitastjórnarkosningunum á næsta ári, eins og staðan er í dag og eftir síðustu kosningar, enda sýnist mér lítið breytast hjá Samfó í skoðanakönnunum undanfarið. Sjálfstæðisflokkurinn kemur vel út í skoðanakönnunum, eins og stendur, en það er satt, að það þurfa að koma þarna inn sterkir og góðir einstaklingar, sem bæði hafa áhuga á sveitastjórnarmálum, hafa áhuga á borginni og gera hana betri, og undirstrika höfuðborgarhlutverk hennar, og vinda ofan af allri þeirri vitleysu og rugli, sem Dagur og kompaní eru búin að innleiða hérna. Þetta gengur ekki lengur. Það þarf að efla bæði Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn í því skyni, að þeir verði við stjórnvölinn hér í borginni eftir kosningarnar á næsta ári. Þótt Bensi hafi boðað, að hann og hans fólk muni bjóða fram þá, þá á ég ekki von á því, að hann hafi mikið upp úr því. Að öðru leyti verðum við að vona það besta, og Sjálfstæðisflokknum takist að ná borginni úr höndum krakkanna, sem stjórna í dag illu heilli. Það er komið meira en nóg af þessarri vitleysu þeirra.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.4.2017 kl. 21:10

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já þú hefur lög að mæla Guðbjörg Snót

Halldór Jónsson, 20.4.2017 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3417960

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband