Leita í fréttum mbl.is

"All will be well!"

Dauðans óvissi tími sem sr. Hallgrimur talar um er eitthvað sem stundum læðist að manni þegar mann síst varir. Að tími reikningskilanna geti verið í nánd er ný hugsun sem maður hefur aldrei hugleitt en er samt eilífur áhrifavaldur í þessum heimi í huga skálda og stórmenna. Samt deyja þeir ekkert öðruvísi en Pétur eða Páll.

 

Maður sjálfur er auðvitað eilífur lengst af ævinni og hefur plentí að gera. Má ekki vera að því að sinna sínnum nánustu eða að vanda sig.

Svo kemur allt i einu læknir sem maður hefur aldrei séð fyrr og segir við mann sisona: Þú ert með krabbamein í kjaftinum. Þú ert ekki að fara neitt í frí til Ameríku. Þú ert ekki að fara neitt annað en í 35 geisla sem hefur kannski  85 % sjans að lukkast. Annars líklega er þetta tvísýnt.

Ertu ekki að djóka?

Meðferðin klikkar svo þannig að hluti meinsins þolir geislana og skýtur upp kollinum aftur.  Hvað er þá næst? Jæja,  maður hættir að hugsa um það og snýr sér að öðru. Á maður að leggjast á bæn eða að reyna að standa í lappirnar? Þykjast vera maður? Það er hafin chemo sem hrífur ótrúlega snöggt og meinið nærri hverfur og ég verð sem nýr.

Maður er búinn að vera hálft ár á placitaxól og erbitux eða cetuximab meðferð á 14 daga fresti. Þar hittir maður fjöldann af dásamlegu fólki sem maður þekkir og er í sömu erindagerðum og svo þessa engla sem þarna starfa. Og maður  er í fullu fjöri með kjaftinn á fullu. Skrifast á og er í útgáfustarfsemi með Sám fóstra.https://issuu.com/radandi_auglysingastofa/docs/samur_fostri_1_tbl_april_2017_280x4

Jón Valur skrifar svo í athugasemd á blogginu þar sem mér varð á að vanda mig ekki í orðum um trúmálin:

 " "Um Guð sem skapara talaði Páll postuli skynsamlega til heimspekinga Grikkja á Aresarhæð í Aþenuborg: Postulasagan, 17.24-29.)"

 

Ég skrifaði honum á móti:

 

 "Þú virðist efast stundum líka eins og Matthias gerði sem orti ódauðleg ljóð af þvílíku afli sem hann gerði..."

Jón segist hvergi hvika í trúnni enda sannkristinn maður.

En ég þarf kannski að skrifa eitthvað um trúmálin sem ég er ekki vanur að gera af tillitsemi við annað fólk. Ég vil ekki meiða tilfinningar  neins viljandi sem vill hafa þær fyrir sig. Islam er hinsvegar annar hlutur en kristnin sem ég stend jákvæður til þjóðkirkjunnar vegna siðaboðskaparins og kærleikans og góðra áhrifa hennar á þjóðlífið. En ég stend öndverður vegna pólitíkurinnar,öfganna og illskunnar í Islam og vil ekki sjá það drasl neinsstaðar nálægt mér og alls ekki á Íslandinu mína góða ef kostur er á öðru.

.

Mér dettur í hug að halda hérna samt dálítið áfram með trúmálin mín  til þess að gera grein fyrir minni afstöðu,skilja sjálfan mig örlítið betur kannski og ef einhver vill forvitnast um mína afstöðu til trúar.

Ég er ekki fermdur að eigin vali en ég var skírður vegna ákvörðunar móður minnar hennar Karenar Elísabetar.Eg les ekki biflíuna nema sem sagnfræði og gef lítið fyrir særingar. 

Faðir minn Jón Á Bjarnason, sem var lítill kirkjunnar maður en stilltur vel, talaði stundum á stórhátíðum um það að nú skyldum við ganga á Aresarhæð sem Jón Valur nefndi hér að framan. Hann  náði þá gjarnan í Hákon bróður sinn og við gengum ógleymanlega túra saman á Öskjuhlíð upp að  tömkunum og gengum þá steyptan  hitaveitustokkinn.

Þar hittum við marga skemmtilega karaktéra eins og til dæmis hann Harald Guðmundsson fasteignasala sem pabbi spurði á kjördegi hvort hann væri búinn að kjósa?. "Jón minn,ég er löngu hættur að kjósa því þetta eru allt organiséraðir bófaflokkar sem eru að bjóða fram."

Ég var þá ungur og skildi þetta tal ekki alveg. En ég hef oft hugsað um þetta síðan og af því að ég gekk síðar til liðs við Sjálfstæðisflokkinn  af trúfestu  þá er ég ekki alveg dús við hann Harald hvað minn flokk varðar.Ég vil fylgja sjálfstæðisstefnunni  í þjóðmálum enda er hún mjög einföld í sínum tveimur liðum um frelsi einstaklingsins til orðs og æðis og sjálfstæði þjóðarinnar.

 En ég  skil margt núna af af því sem hann þarna í ljósi sögunnar á mínum bráðum 80 árum. Vonbrigði og sigrar skiptast á í pólitíks en fyrir mér tengjast alltaf krateríinu og vinstrimennskunni. 

Það var hún Mæsa föðursystir mín sem á þetta hugtak um hann Gussa á loftinu sem kom upp þegar ég var að tala við hann Jón Val vin minn á blogginu.

Mér finnst fólk oft treysta um of á handleiðslu  frekar en á sig sjálft. Leiðir til þess að fólk reynir ekki?

En þetta með trúmálin kemur oft  allt af gerð hvers og eins og uppeldinu ekki síður.

Börn Ágústar H. Bjarnason prófessors voru lítið kirkjunnar fólk. En það hafði sínar hugmyndir um annað líf.

Pabbi minn Jón Ólafur  var í það minnsta mjög  blendinn í trúnni ef ekki alveg laus við trú en lét mömmu eftir að skíra og ferma börnin ef þau vildu slíkt sjálf.

Helga föðursystir og hún Mæsa systir hennar  voru miklu harðari í kirkjufjandmennskunni  en pabbi. Og hann Hákon var líkari pabba í hversdagslegu hófstilltu tali. En ég held að hann hafi alls ekki verið hið minnsta trúaður maður held ég. Ég veit ekki svo glöggt um Halla föðurbróður þar sem við ræddum ekki saman um trúmál. En okkur var vel til vina okkur Halla og hann var hjálpsamur og góður maður. 

Mamma mín Karen Elísabet Halldórsdóttir Skaptson Hedvigardóttir Wathne var sannkristin kona og hennar fólk allt.

Amma mín Sigríður, dóttir Jóns Ólafssonar ritstjóra, eitthvert mesta andlega ofurmenni sem ég hef kynnst nokkru sinni, sagði við mig:

"Það er til annað líf".

Af hverju segirðu þetta amma mín sagði ég? "Ég bara veit það"  sagði hún. "Ég skal láta þig vita eg ég get ef þetta er rétt hjá mér." Ekki var fleira sagt á þessum fundi okkar af mörgum.

Mörgum árum eftir að hún kvaddi bauð Guðmundur Einarsson verkfræðingur mér á skyggnilýsingu hjá Hafsteini miðli.Guðmundur var feykilega skemmtilegur maður og fjölfróður. Hann trúði á annað líf og leitaði svara.

Þar lýsti Hafsteinn meðal annars aragrúa fólks,  sem aðrir könnuðust við en ég,  "skínandi bjartri veru sem aldrei hafði gengið á íslenskum búningi en alltaf á dönskum búningi." "Hún kveðst heita Sigríður og vera Jónsdóttir."

Ég þóttist kenna ömmu mína Sigríði því hún lýsti hérna megin  með fleiri wöttum en aðrir sem ég hef síðan hitt. Ég spurði því samstundis eins og maður átti að gera ef maður kannaðist við eitthvað: "Hvað segir hún amma mín um framhaldslífið?" Svarið kom leiftursnöggt: "Hún segist aldrei hafa neitað staðreyndum." Og meira var það ekki.

Mér datt í huga að Hafsteinn gæti lesið hugsanir fundarmanna þegar hann lýsti Jóni Valfells sem ég þekkti vel. Ég spurði sem einasti fundarmannanna sem hann þekkti og  spurði hvernig honum liði. " Hann segist stundum hafa getað verið kurteis" kom svarið eldsnöggt. Enginn annar vissi um það atvik sem þarna tengdist mér og átti upptök í gengnum gleðifundi þar sem lá vel á Jóni og öllum öðrum  En Jón var afburðaskemmtilegur maður og margvís.

Ég hef ekki sannfærst um annað líf eða trúmál þrátt fyrir þetta og trúi ekki mikið á þetta en frekar á sérgáfu Hafsteins Björnssonar sem ég þekkti aldrei neitt frekar.

Dauðinn er fyrir mér eiginlega sá mikli rukkari sem réttir oss reikinginn yfir það sem skrifað var hjá oss eins og hann Tómas segir.

Ég þarf eiginlega ekkert meira og reyni að sætta mig við það nú í auðmýkt þegar ég sem gamli grínistinn horfi framan í dauðans alvöruna í fyrsta sinn á ævinni og verð að gera mér ljóst að ég er hugsanlega ekki eilífur eins og mér hefur samt líklega alltaf fundist ég vera það sem af er þessu lífi. Merkilegt að ég skyldi aldrei trúa því raunverulega innst inni að ég myndi ekki lifa forever og að framtíðin væri ekki óendanleg?

Ég horfi mikið á myndir Hubble sem ná aragrúa ljósára út í geiminn. Mér finnst trúlegt að hann Guð almáttugur hefði um meira að hugsa en hvernig mér líður eða hvað ég er að bardúsa í ljósi þeirra rámu regindjúpa sem þar við blasa. Mikill væri sá máttur ef svo væri ekki?

Nú er framundan óræð sigling hjá mér og ég veit ekki alveg hvert stefnir. Ég er samt bjartsýnn, blessunarlega kvíðalítill enda þéttheimskur en fullur af lífsvilja og gríni því mér finnst svo gaman að vera til og margt eftir að gera sem ég vil koma í framkvæmd.

Núna er ég einkennalaus á platinum lyfjum sem hafa minnkað meinið stórkostlega niður í næstum ekkert. En líklegt er að þessi lyf hætti að verka og krabbinn komi aftur og þá er víst alvara á ferðum.

En það er hinsvegar nýkomið nýtt lyf Nivolumab eða Opdivo hér í Ameríku og er víst líka leyft í Evrópu, hvort sem það er fáanlegt á Íslandi eða ekki vegna fjárhagsstöðuvanda heilbrigðismálanna. Þetta lyf brýtur blekkingarvarnarmúr krabbafrumanna þannig að T-frumurnar sjá þær í réttu ljósi og ráðast á þær og reyna að drepa þær eða drepa þær alveg.Gera fyrst gat á þær með proteini sem eir kalla perforin og sprauta svo cytotoxin-eitri inn í þær. Eða þannig er það  þegar bæunar eru til CAR-T cellur við hvítblæðilækningar.Einhvernveginn þannig er þessi mekanismi án þess að ég hafi hundsvit á neinu.

Makalaust hvað vísindamenn vita mikið um svona örsmáa hluti? Allaveg eru raddir farnar að heyrast að miklar framfarir í lækningum geti verið framundan.

Þeir eru jafnvel farnir að tala um að krabbinn geti orðið sigraður sem nú drepur meira en hálfa milljón manns á ári í USA. Nixon boðaði sigur árið 1971 en hann hefur aðeins dregist.

Það er rosaleg grein í Popular Mechanics um krabbarannsóknir sem ég er að lesa sem fer um víðan völl og rannsóknir. Mjög áhugaverð en knúsuð.Leiðarinn er hinsvegar óhugnanlegur að lesa.

Lífslíkur fólks í sömu stöðu og ég hafa aukist mikið við þetta lyf Opdivo og dánartíðni  fallið talsvert.

Þetta getur hugsanlega breytt miklu fyrir mig. En sem sagt veit ég ekki neitt um þetta né hvað minn læknir hann Örvar  hyggst fyrir. En óneitanlega hressist maður við slík tíðindi. Kannski kemst maður bara yfir þetta?

Mér líður hinsvegar núna prýðilega og finn ekkert fyrir neinum óþægindum og hef fulla lyst á whisky, bjór og mat. 

En nú minnist ég ftur orða Winstons Churchills og skil þau eilítið öðruvísi en ég gerði á fyrri tíð:

"For the rest live dangerously, take life as it comes, one day at a time.

Dread nought!

All will be well"

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 21.5.2017 kl. 17:21

2 identicon

Meðan ég les þetta, hef ég fyrir framan mig bekkjarmynd með okkur úr Grænuborg. 

Hér er hlekkur á grein um það, hvernig mönnum farnast almennt, eftir því hvernig menn bregðast við válegum tíðindum:

https://www.abcd.is/is/mal-og-menning/228-enn-fornir-i-skapi.html

Lifðu vel

Björn S. Stefánsson (IP-tala skráð) 21.5.2017 kl. 20:12

3 identicon

Vona að þú fáir lyf við hæfi og náir bata. 

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 21.5.2017 kl. 20:39

4 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór.

Gangi þér vel í þessari orrustu.

Jónatan Karlsson, 21.5.2017 kl. 23:26

5 identicon

Það er alltaf gaman að lesa pistla þína Halldór.  Gangi þér allt í haginn og megir þú ná fullri heilsu.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 21.5.2017 kl. 23:46

6 Smámynd: Gunnlaugur I.

Sæll Halldór. Takk fyrir að deila þessari reynslu þinni og sögum af ættingjum og vinum. Gangi þér vel i þessari lífsins orustu, þú gengur alltaf hreint fram af þinni einstöku einurð !

Gunnlaugur I., 22.5.2017 kl. 01:05

7 identicon

Halldór.

Er alveg viss um ad thetta gangi vel hjá thér og

thú verdur spraekari sem aldrei fyrr. 

En eins og áhyggjur gamla, gamla hafnfirdingsins..!!

Hann var mest hraeddur vid thad ad vakna daginn eftir

steindaudur...':)

Ef thad er haegt, thá er allt haegt.

Bestu bata kvedjur frá Hollandi.

Sigurdur Hjaltested (IP-tala skráð) 22.5.2017 kl. 01:09

8 Smámynd: Halldór Jónsson

 Takk fyrir allir þið vinir mínir og takk fyrir einlægar heillaóskir mér til handa.

Halldór Jónsson, 22.5.2017 kl. 01:49

9 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Baràttukjvedjur, hèdan ùr sudrinu nafni. Megi allar gòdar vaettir styrkja thig og kaeta, sem mest og lengst.

 Gòdar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 22.5.2017 kl. 06:03

10 Smámynd: Ólafur Als

Gott að gefa eftirsjánni frí en virkja andann, jafnvel vínandann ... lífið býr líka í litlu hlutunum, litlu stundunum sem samanlagt gefa öllu tilgang ... hestaskál !

Ólafur Als, 22.5.2017 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband