Leita í fréttum mbl.is

Sameinum alla lífeyrisjóðina

í einn sjóð.

Allir sjóðfélagar kjósa einn forstjóra yfir sjóðinn. Engir aðrir stjórnendur. 

Ég væri tilbúinn fyrir mitt leyti að kjósa Ragnar Önundarson strax þar sem hann hefur næga ábyrgðartilfinningu og fjármálavit. Líklega umfram flesta aðra fjármálamenn. Ég er viss um að kaupkröfur hans myndu ekki sliga neinn né bílakröfur. Núna eyðum við 10-20 milljörðum í að stjórna þessum peningum sem launþegar landsins eiga og enginn er ábyrgur fyrir neinu. 

Sabadell og Loyds TSB í London til dæmis geta áreiðanlega tekið að sér að forvalta erlenda hlutann af þessum 3500 milljörðum með meira en lágmarksávöxtun án þess að depla auga. Ragnar myndi ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að þeir myndu tapa neinu slíkur risasjóðir sem þeir eru. Og fleiri slíkir og stærri  eru víða til. Það mætti líka tala við Edmundson í Nevada til að fá ráð.

Áhyggjurnar af þessum sjóð kæmu ef hann yrðu þvingaður til að lána pólitískt til snilldarhugdettna Alþingismanna. Ekki af lánum til sjóðsfélaganna sem aldrei tapast.

Best væri að skattfjárskuldin yrði hreinsuð út við sameininguna og skattar yrðu staðgreiddir hér eftir við inngreiðslur.

Endum sukkið og spillinguna með einu pennastriki í stíl Ólafs Thors. Sameinum alla lífeyrissjóðina í einn sjóð undir einni stjórn fyrir opnum tjöldum.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Enn og aftur varpar þú fram öndvegis hugmynd sem þúsundir og aftur þúsundir Íslendinga munu heilshugar styðja.

Heldur þú eigi að síður í fullri alvöru Halldór, að þessi hugmynd þín muni öðlast verðskuldaðan hljómgrunn á n.k. Landsmóti Sjálfstæðismanna, þegar þú auðmjúklega og líklega á hnjánum leggur hana fyrir söfnuðinn?

Jónatan Karlsson, 29.6.2017 kl. 14:12

2 identicon

Snilldarhugmynd og vonandi geta

pólitíkusar tekið undir.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 29.6.2017 kl. 16:07

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Alveg örugglega vandlega þögguð niður á hákirkjunni.

Halldór Jónsson, 29.6.2017 kl. 16:42

4 identicon

Frábær hugmynd Halldór. Þá munu ýmsir vellaunaðir missa djobbin sín.Þeir   munu ekki taka því   þegjandi að missa aðstöðu sína og völd. . Það er örugglega hægt að stýra þessu lífeyrissjóðakerfi fyrir minnsta kosti brot af þessum +10 milljörðum sem kostar að halda utanum þetta kerfi .

Höddi (IP-tala skráð) 29.6.2017 kl. 21:52

5 identicon

Mikið er ég sammála þér Halldór, og ég spyr mig oft hvað og hvert þessir sjálfstæðis þingmenn eru að gera, þeir stefna að því að stein drepa alla sjálfsbjargar hugsjón, Hlaða undir kerfiskalla hjá hinu opinbera, halda öldruðum og öryrkjum við hungurmörk og eru að drepa alla smá útgerð um allt land. Þetta eru svo ógeðsleg stefna sem þeir fylgja að hverjum hugsandi manni verður óglatt.

okkur vantar nýjan flokk Halldór, stétt með stétt og jöfnuð.

Hafsteinn Reykjalin (IP-tala skráð) 29.6.2017 kl. 21:59

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alveg er með ólíkindum að lesa athugasemdirnar.  Flestar eru þær jákvæðar gagnvart hugmynd Halldórs, sem er MJÖG LÓGÍSK og góð.  En svo falla menn í þá "GRYFJU" að HALDA að Sjálfstæðisflokkurinn standi gegn þessari breytingu.  ÞAÐ ER MESTI MISSKILNINGUR.  ÞEIR SEM STANDA HARÐAST GEGN ÞESSU ER VERKALÝÐSHREYFINGIN OG SÍÐAST ÞEGAR ÉG VISSI HAFÐI SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN EKKERT MEÐ HANA AÐ GERA.  HÚN ER ALFARIÐ Á FORRÆÐI "VINSTRI HJARÐARINNAR" OG ÞAÐ ER HÚN SEM HEFUR SKAPAÐ ÞETTA SKRÍMSLI OG VER ÞAÐ MEÐ KJAFTI OG KLÓM...

Jóhann Elíasson, 30.6.2017 kl. 07:29

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Lífeyrissjóðir eru að megin efni auka skattheimta fyrir ríkið, eða hvernig skyldi standa á því að maður alltaf hefur unnið svart og þar með aldrei greitt í lífeyrissjóð fær álíka mikið í ellibætur, eða lífeyri og hinn sem það hefur alltaf gert.   

Hrólfur Þ Hraundal, 30.6.2017 kl. 07:32

8 identicon

Þarna er ég þér algjörlega sammála Halldór, það er fáránlegt að halda úti tugi Lífeyrisjóða sem hver um sig er með stjórn, framkvæmdastjóra og forstjóra, þetta kostar tugi miljarða og allt of dýrt batterí.

 Best væri að sameina alla þessa lífeyrisjóði í einn og það mætti svo sem hugsa sér að lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins gæti verið sér, hann er svo lítið heit kartafla.

Jóhann, gagnrýnin á SjálfstæðisFLokkin snýr að því að hann er búin að vera svo lengi við völd og hefur ekki komið með neinar tillögur um að sameina þessa sjóði

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 30.6.2017 kl. 08:40

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, farðu nú að sjá hvernig þetta "Vinstra lið" er í rauninni að taka þjóðina ósmurt í ra...... það er ekki hægt að ætlast til þess að Sjálfstæðiflokkurinn geti alltaf komið til bjargar, þó öflugur sé....

Jóhann Elíasson, 30.6.2017 kl. 10:15

10 identicon

Kannski finnst SjálfstæðisFLokknum gott að láta taka sig ósmurt í ra.....

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 30.6.2017 kl. 12:19

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Æ Helgi minn, ekki tala svona...

Halldór Jónsson, 3.7.2017 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418161

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband