Leita í fréttum mbl.is

10.5 tonn daglega

eru flutt inn af kruðeríi.

"Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is

Innflutningur á brauði, brauðdeigi, kökum og konditorstykkjum eykst frá ári til árs. Fyrir nokkrum árum voru um 6 tonn flutt daglega inn af þessum vörum, en samkvæmt innflutningstölum Hagstofu Íslands var daglegur innflutningur fyrstu fimm mánuði þessa árs um 10,5 tonn, eða 1.580 tonn á þessum fimm mánuðum.

Innflutningurinn árið 2016 var tæp 3.000 tonn, sem jafngilti 8 tonna daglegum innflutningi og árið 2015 var hann tæplega 2.700 tonn sem jafngilti 7,3 tonna daglegum innflutningi. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er ýmist um innflutning á frystum hálfbökuðum kökum, konditorstykkjum og brauði að ræða, eða frosið brauðdeig.

Mest til hótela og veitingastaða Jóhannes Felixson (Jói Fel), formaður Landssambands bakarameistara, segir í samtali við Morgunblaðið í dag, að bakarameistarar agnúist ekki út í þennan innflutning. Hann fari að mestu leyti til hótela og veitingastaða úti á landi, en bakaríin úti á landi ráði mörg hver ekki við að þjónusta ört vaxandi ferðaþjónustuna. Jóhannes segir að innflutningurinn komi í mjög litlum mæli í bakarí, þó að hann þekki örfá dæmi þess."

Gætu þessir innflytjendur ekki flutt in nokkur hundruð grömm af English Muffins svo við sérvitringar gætum fengið slíkt keypt í búðum hérlendis? Kæmist ekki smávegis af þessu fyrir í þessum 10.5 tonnum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þetta er væntanlega skýringin á að sama verksmiðjubragðið er af kökum sem keyptar eru í bakaríum. Sama bragð ár eftir ár. 

Sjaldan sem maður fær verulega gott bakkelsi.

Ágúst H Bjarnason, 15.7.2017 kl. 11:41

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er lífseig hin klassíska íslenska afstaða til viðskipta: Þetta er nógu gott í helvitis kjaftinn á ykkur.

Halldór Jónsson, 15.7.2017 kl. 14:47

3 identicon

https://twitter.com/PrisonPlanet/status/884867984757587968

Þið afsakið að ég set þennan link hér inn, en ég verð að sýna ykkur hvað er framundan ef vinstra liðið, sósialislamistarnir ná yfirhöndinni hér. Þetta er hrollvekjandi.

 Kv.

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 15.7.2017 kl. 21:41

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Þegar ég las fyrirsögnina, þá hélt ég að pistillinn fjallaði um tonn af einhverjum fiskiafla. En svo var ekki.

Vil benda þér og öðrum lesendum á dálítið mikið alvarlegt mál, sem ég hef tekið eftir undanfarið. Það er nefnilega ekki eins áberandi mengun úr hálofta-hernaðarfluginu núna eins og stundum áður.

En gerla og bakteríumengun sjávar hingað og þangað í landgrunni Íslands í einhverjum mengunarmælinga "stikkprufum" þessa dagana er umhugsunarverð, svo ekki sé sterkar að orði kveðið.

Og auðvitað vildi það svo undarlega tilviljanalega til, að klóakið á einum stað við Reykjavík slysaðist til að leka á sama tíma og þessar tilviljana-mengunarmælingar sýndu alls konar XL gerlamenganir vítt og breitt í fjöruborðum höfuðborgarsvæðisins?

Fólk verður að halda vöku sinni á gagnrýnivaktinni í þessum kölska-stýrða og áróðurs-guðsbannaða brjálaða peningastríðs-jarðheimi!

Rússa-"Pútínarinir" hertakandi kenna alltaf öllum öðrum um sína og annarra Vatíkans-valdhafanna hættulegu og hernaðarfyrirskipuðu glæpastarfsemi. Því miður virðist fyrrum Sovétmafían enn vera raunveruleg Rússagrýla. Ekkert virðist fá að þróast til neinnar mennsku hjá Rússamafíunni og Vatícanistum heimsins!

Segjum alla vega frá því sem við sjáum, skynjum og skiljum að er að gerast fyrir framan nefið á okkur!

Og verum meðvituð og upplýst um hvernig er verið að sýklamengunar og efnamengunar-drepa okkur (af NATO-"gæslu" herskara), og af sálar/samviskudrepnum og vélmennainnrættum heimsveldismafíunnar og manndýrahönnuðum verkfærum Kölska-valdsins hér á jörðinni.

Ég bið góðan Guð almættisorkunnar og alheimsviskunnar um að hrekja illskunnar Kölska-valdið úr stjórnarsætinu, og taka við stjórninni hér á jörðinni.

Hér er fróðlegt myndband á youtube:

Aquatrails-New Chemtrails-Spraying Reflective Particulates Over Oceans.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.7.2017 kl. 22:37

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég var rekin aftur heim er ég reyndi að ná link Valdemars Jóhannssonar.

Helga Kristjánsdóttir, 16.7.2017 kl. 04:23

6 identicon

Reyndu aftur, Blátt yfir Ctrl C , Flytja blátt upp til Not secure og  Ctrl V. Á að ganga.

Annars kann ég ekkert á tölvur og kannski annar geti hjálpað þér.

kv.

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 16.7.2017 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband