Leita í fréttum mbl.is

Drónatækni

Kínverja er komin á nýtt stig.

Þeir eru reiðubúnir að fjöldaframleiða könnunar/árásar dróna CH-5 fyrir alþjóðamarkað!

Fyrsti fjöldaframleiddi dróninn CH-5 fór í jómfrúarflugið í Hebei héraði á föstudag.

Ou Zhongming, verkefnisstjóri Caihong, eða Rainbow- flokks dróna við Kina-Akademíuna af AerospaceAerodynamics í Peking, sagði eftir tilraunina að þó nokkur ríki sem jafvel þegar eru notendur af CH-5 séu í viðræðum um kaup á þessum drónum,sem eru taldir vera með þeim bestu af ómönnuðum hernaðarflygildum í veröldinni.

"Þetta flug þýðir að hönnun CH-5 er lokið og hægt er að fjöldaframleiða drónann. En hann neitaði að gefa upp mögulega kaupendur.

Kínverska Academían um  Aerospace Aerodynamics er stærsti drónaútflutningsaðili Kína hvað varðar fjölda dróna seldra erlendis í 10 löndum.

Shi Wen, aðalhönnuður CH seríanna, sagði að CH-5 slægi alla kinverska samkeppni út þegar kæmi að langdrægi og arðfarmi. Flygildið er jafngott og hinn bandaríski General Atomics MQ-9 Reaper, veiði-og drápstækið sem er talið hið besta af vestrænum sérfræðingum.

Frumgerðin CH-5 flaug fyrst í August 2015. Dróninn er úr plasti og hefur vænghaf sem er 21 metri. Tvöfalt stærri ern fyrirrennarar hans úr CH fjölskyldunni. Hann getur verið á lofti í 60 klukkustundir eða þrefalt lengur en fyrirrennarar hans. Flugdrægi hans er 10.000 kílómetrar 

Arðfarmur hans er 1-metra-tonn sem leyfir honum að hafa 24 flugskeyti í ferð sem er nóg til að taka út heila herdeild af skriðdrekum.

 

Auk þessa getur  CH-5 numið neðansjávar skotmörk eins og kafbáta þegar slíkur búnaður er viðfestur.

Hvað skyldi nú KimJong Un segja um þetta? Er hann ekki örugglega einn af kaupendunum?  Er þetta ekki einmitt það sem hann vantar til að hóta heiminum með? Hann getur sent svona græjur hvert á land sem er. Hvað getur ekki ISIS gert með svona snilldar apparöt eða arabavillimannaríki eins og SaudiArabía?

Er að verða friðvænlegra í heiminum með þessari drónatækni?

Geta Bandaríkjamenn eða Nato látið  sem ekkert sé? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er hrikalega háskaleg þróun, Halldór, um það verður ekki efazt. Þú spyrð, hvað Bandaríkjamenn geti gert. Efst á blaði ætti að vera að tryggja það með öllum ráðum, að Kínverjar selji ekki þetta hættulega loftfar til Norður-Kóreu.

Jón Valur Jensson, 17.7.2017 kl. 13:28

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sem betur fer Jón Valur þá er þetta dót hægfleygt og líklega álíka auðvelt fyrir tæknivæddan her að skjóta þá niður eins og Piper Cub. En það er sama, í höndum á óvitum eins og KimJonUn er þetta hættulegt. Og Kínverjar eru algerlega samviskulausir þegar kemur að peningum.

Halldór Jónsson, 17.7.2017 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband