Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðismaður talar

 þegar Óli Björn skrifar í Mogga í dag:

"Hafi einhver efast um trygglyndi Vinstri grænna við sósíalismann hefur efinn örugglega horfið líkt og dögg fyrir sólu um liðna helgi.

Boðskapur Katrínar Jakobsdóttur, formanns flokksins, á flokksráðsfundi var skýr og ágætlega meitlaður. Hækka skal skatta og auka umsvif ríkisins undir slagorðum réttlætis og aukins jöfnuðar: „Vaxandi misskipting gæðanna sprettur beinlínis af því efnahagskerfi og þeim pólitísku stefnum sem hafa verið ráðandi undanfarna áratugi og nú er svo komið að sí- fellt fleira fólk er farið að finna fyrir því.“ Katrín Jakobsdóttir kemur hreint fram. Hún vill bylta þjóð- félagsgerðinni – stokka upp efnahagskerfið í takt við kennisetningar sósíalista.

Mælikvarði réttlætis og velferðar

Á flokksráðsfundinum undirstrikaði Katrín stefnu Vinstri grænna í skattamálum sem birtist í tillögum hennar við afgreiðslu fjárlaga yfirstandandi árs. Vinstri græn voru andvíg því að fella niður milliþrep í tekjuskatti, sem komu fyrst og fremst óbreyttu launafólki til góða. Endurvekja átti eignarskatt undir hatti auðlegðarskatts, sem vinstri stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna setti á tímabundið og lagðist þungt á eldri borgara og sjálfstæða atvinnurekendur. Tillögur Vinstri grænna fólu í sér hækkun ýmissa annarra gjalda og skatta, sem einstaklingar og fyrirtæki hefðu þurft að bera. Hugmyndafræði vinstri manna – sósíalista – gefur ekkert fyrir þjóðfélag frjálsra einstaklinga sem eru fjárhagslega sjálfstæðir.

Mælikvarði velferðar og réttlætis mælir umsvif ríkisins. Íslenskir vinstri menn – líkt og skoðanabræður þeirra í öðrum löndum – byggja á þeirri bjargföstu trú að ríkið sé upphaf og endir allra lífsgæða. Aukin umsvif ríkis og annarra opinberra aðila er markmið í sjálfu sér en ekki aðeins æskileg.

Öfundsverð einföld svör

Á margan hátt eru sanntrúaðir vinstri menn öfundsverðir. Svörin eru alltaf einföld – lausnarorðið er ríkið. Á meðan við hægri menn leitum leiða til að stækka þjóðarkökuna hafa sósíalistar engar áhyggjur, aðrar en þær að tryggja að ríkið taki stærstu sneiðina. Hlutfallsleg stærð kökusneiðarinnar skiptir vinstri menn meira máli en stærð kökunnar. Í huga þeirra er mikilvægara að ríkið taki 50% af 2.000 milljarða landsframleiðslu en 40% af 3.000 milljarða köku.

Hinn sósíalíski mælikvarði velferðar er einfaldur. Í sósíalísku þjóðskipulagi er velferðin talin meiri ef sneið ríkisins er 50% og 1.000 milljarðar en þegar sneiðin er „aðeins“ 40% og 1.200 milljarðar. Með öðrum orðum: Velferð, réttlæti og jöfnuður er meiri eftir því sem hlutfallsleg stærð kökusneiðar ríkisins er stærri. Engu skiptir þótt kakan sé minni. Hugmyndafræði Vinstri grænna og annarra sannfærðra sósíalista leggur áherslu á að „jafna“ lífskjörin, jafnvel þótt lífskjör allra versni. Jöfnuður eymdarinnar er betri en misskipting velmegunar.

Góðhjartaðir auðmenn

Velviljaðir auðmenn hafa tileinkað sér mælikvarða sósíalista í baráttu sinni fyrir öflugra og betra heilbrigðiskerfi. Krafan um að 11% af landsframleiðslu renni til heilbrigðismála er gerð á grunni hins sósíalíska mælikvarða.

Góðhjartaðir efnamenn hafa sannfært sjálfa sig og marga aðra um að heilbrigðiskerfið sé betra og öflugra þegar til þess renna 11% af 2.000 milljarða landsframleiðslu en 8,3% af 3.000 milljarða köku. Það virðist aukaatriði – raunar verra – að heilbrigðiskerfið fái 30 milljörðum meira ef kakan er stærri og hlutfallið lægra. Á mælikvarða hlutfallsins skiptir engu hvort almenningur – skattgreiðendur – fær betri þjónustu í samræmi við aukna skattheimtu.

Gæði þjónustu eru aukaatriði – allt snýst um stærð kökusneiðarinnar. Með sama hætti skiptir litlu hvernig farið er með eignir ríkisins, og áhyggjur af því hvernig þær nýtast landsmönnum eru taldar merki um annarlegan tilgang.

Kannski?

Ég skal viðurkenna að ég hef og mun líklega aldrei skilja hugmyndafræði sósíalista.En það er aðdáunarvert að enn sé til fólk sem af einlægni berst fyrir þjóð- skipulagi sósíalismans. Það er eitthvað heillandi við þrautseigju og staðfestu þeirra sem neita að horfast í augu við söguna.

Kannski hafa þeir rétt fyrir sér. Kannski hefur ekki verið staðið rétt að innleiðingu sósíalismans fram til þessa og því hafa lönd sem eru rík af náttúruauðlindum verið gerð gjaldþrota – síðast Venesúela.

Þau mistök ætla íslenskir sósíalistar ekki að endurtaka heldur byggja upp fyrirmyndarríkið sem engum hefur tekist.

Kaldhæðnari menn en ég gætu auðvitað haldið því fram að allt sé þetta innihaldslaust hjal – umbúðastjórnmál með safni fallegra orða og frasa. Íslendingar fengu að kynnast jöfnuði og réttlæti vinstri manna árið 2009, þegar eitt fyrsta verk hreinræktaðrar vinstri stjórnar var að skerða lífeyrisgreiðslur eldri borgara og öryrkja. Launafólk þurfti að sætta sig við að skattmann færi dýpra í vasa þeirra og lífskjörin þannig rýrt meira en orðið var.

En þessari sögu er ef til vill jafn auðvelt að afneita og sögu sósíalista og þjóðfélagstilrauna þeirra í öðrum löndum. Alveg eins og vinstri menn lifa í þeirri von að allir séu búnir að gleyma tilraun þeirra til að láta verkamanninn, kennarann, bóndann, afgreiðslukonuna og aðra launamenn, standa undir skuldum einkabanka, enda verið að „bera burt syndir heimsins, eins og sagt var um Jesú Krist“. 

Óli Björn er Sjálfstæðismaður samkvæmt því sem Sjálfstæðisstefnan lagði fyrir 1929. Því fylgdum  við Sjálfstæðismenn lengi vel af sauðtryggð.  En skyldi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins velja forystumenn í nóvember samkvæmt innri sannfæringu þeirra eða bara þá sem prédika popúlísma feminísta, fatlaða, fátæklinga,hælisleitenda,alþjóðahyggju,unglinga og lántakenda?

Munu  Sjálfstæðismenn á þeim fundi kjósa eftir sannfæringu eða samrændum fyrirskipunum forystumanna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þegar stórt er spurt svo sem um val forystumanna Landsfundarins,er það þá gefið að innri sannfæring þeirra sé stefnan frá 1929,megin inntak hennar stendur alltaf,en á breyttum tímum þegar við eigum í höggi við þessa fáránlegu alþjóðahyggju og nær óheftan innflutning samfara þeirri stefnu,eru að mínum dómi okkar seinustu forvöð að kjósa rétt: Það þýðir íslandi allt.  
                        

Helga Kristjánsdóttir, 23.8.2017 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband