Leita í fréttum mbl.is

Thedda hættir á þingi

og gerir athyglisverða grein fyrir ástæðunum.

Hún segir hreint út eins og til dæmis Davíð Oddsson hefur margoft bent á áður, að embættavaldið og faglegir álitsgjafar hafi dregið allt vald úr höndum hinna lýðræðislegu fulltrúa á Alþingi. Alþingi sé orðið að stimpilpúða framkvæmdavaldsins og embættakerfisins. Ekkert mál komi annars staðar frá og Alþingi sé einungis orðið að málstofu. Fyrir löngu hefur Alþingi gengið fram af kjósendum með blindandi afgreiðslu á ESB tilskipunum þar sem hverskyns vitleysu er ausið yfir þjóðina hvort sem það gengur i berhögg við hagsmuni hennar eður ei. Oftar til mikils kostnaðarauka fyrir þjóðina þar sem um er að ræða algert óþarfa aukið flækjustig málaflokka, sem ekki eiga við á Íslandi vegna smæðarinnar eins og til dæmis aðskilnað framleiðslu og sölu í orkumálum og fleira mætti nefna til.

Lágur þröskuldur inn á Alþingi hefur skilað þangað inn allskyns ruslaraliði úr smáflokkum sem ekkert hafa til málanna að leggja nema einskisnýtan kjafthátt. Það er virkilega fátt um alvörufólk orðið á Alþingi en mun meira af innantómu glamurliði sem engu skilar nema kostnaði og tímasóun.

Allt þetta sér Theódóra Þorsteinsdóttir lögfræðingur úr Kópavogi og segir af sér þingmennsku fyrir bæjarmálin þar sem henni finnst að einhver verk séu að vinna.

Þetta eru athyglisverð tíðindi og íhugunarverð. Við Íslendingar verðum virkilega að huga að því á hvaða braut æðsta stjórn ríkis okkar er. Nýjustu tíðindi úr Framsóknarflokknum til dæmis staðfesta það sem marga hefur grunað, að frjáls hugsun eigi víða undir högg að sækja og skoðanakúgun fárra úr rétttrúnaðarhópum ráði allt of miklu um framkvæmd málaflokka. Til dæmis er líklegt að rekstur málflokksins um hælisleitendur og flóttamenn sé að verulegu leyti framkvæmdur í andstöðu við meirihluta kjósenda, sömuleiðis Schengen aðildin , vegabréfaeftirlitið  og fleiri regluverk.

Þetta eru vissulega tíðindi að fá þessa einkunnagjöf til Alþingis að Thedda skuli bara hætta þar sisona. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Lágur þröskuldur inn á Alþingi hefur skilað þangað inn allskyns ruslaraliði úr smáflokkum sem ekkert hafa til málanna að leggja nema einskisnýtan kjafthátt."

Hvaða vitleysa er þetta, ég veit ekki betur en að Svandís Svavarsdóttir sé yfir 20% flokki,þar þyrfti aldeilis háan þröskuld!   ;-) 

Bjarni Bjarnason (IP-tala skráð) 26.8.2017 kl. 11:37

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Upphrópanir um "ónýtt" Alþingi og "eitthvað nýtt" hefur auðveldað embættismönnum að taka yfir löggjafarvaldið. Grænjaxlar, sem aðeins kunna að hrópa og heimta fyrir sérhóp sinn, hafa í krafti glórulausar gagnrýni komist á þing og jafnvel í ráðherraembætti án þess að hafa grundvallar kunnáttu í stjórnun eða lagasetningu.

Fólk sem aldrei hefur haft stjórn á sjálfu sér er ekki líklegt til að geta stjórnað öðrum. Við erum nú að sjá afleiðingarnar.

Ragnhildur Kolka, 26.8.2017 kl. 12:10

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Bjarni, þú hefur lög að mæla, það eru sannarlega undantekningar.

Ragnhildur, já þú sérð þetta líka.

Halldór Jónsson, 26.8.2017 kl. 12:15

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í grein í Morgunblaðinu í dag er ágætis ábending varðandi það að framkvæmdavaldið tekur sér allt að hálft dómsvald. 

Í frumvarpi stjórnlagaráðs eru ákvæði sem skerpa á löggjafarvaldinu meðal annars með auknum áhrifum þingnefnda til að draga úr ofurvaldi framkvæmdavaldsins. 

Ráðherrar megi til dæmis ekki gegna þingmennsku meðan þeir eru í ráðherrastóli.  

Ómar Ragnarsson, 26.8.2017 kl. 14:26

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Spurning þetta með ráðherrana og setu þeirra á þingi. Ef það fyrirkomulag virkaði rétt þá eru þeir góðir tengiliðir löggjafans inní ráðuneytin þar sem embættismenn stjórna sennilega oft of miklu.  Sbr. "Yes-Minister".

Kolbrún Hilmars, 26.8.2017 kl. 15:11

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Það sem ég las út úr þessu viðtali var að flokkarnir semdu um það sín á milli hvaða frumvörp færu í gegn og hver ekki. Það væri þýðingarlaust fyrir einstaka þingmenn að leggja fram frumvörp ef  þau hafi ekki fengið blessun þingflokksins. Ég sá ekkert minnst á álitsgjafa og embættismenn hjá henni. 

Jósef Smári Ásmundsson, 26.8.2017 kl. 15:53

7 identicon

"Lágur þröskuldur inn á Alþingi hefur skilað þangað inn allskyns ruslaraliði úr smáflokkum sem ekkert hafa til málanna að leggja nema einskisnýtan kjafthátt. Það er virkilega fátt um alvörufólk orðið á Alþingi en mun meira af innantómu glamurliði sem engu skilar nema kostnaði og tímasóun."

Einu sinni voru thad kommunistar sem einkum gripu framfyrir hendur lydraedisins og kaefdu thad oft i blodugu ofbeldi. En ad ihaldsmadurinn ur Kopavogi skipi ser i thaer radir er gratlegt.
Thetta er lydraedid i hnotskurn hvort sem okkur likar thad eda ekki.

Maria (IP-tala skráð) 26.8.2017 kl. 17:17

8 identicon

Ég held að það sé borðliggjandi að enginn núverandi þingmanna lesi öll þau skjöl sem er dreift á Alþingi.Hugmyndin var að þingmenn deili með sé verkum en það virðist ekki ganga upp í núverandi kerfi. Enda mun líklegra til vinsælda i Fésbókarfréttasamfélaginu að vera með upphlaup í frímúnutum (Fundarstjórn Forseta) en að fræðast um lög og reglugerðir sem samþykktar eru á færibandi.

Grímur (IP-tala skráð) 27.8.2017 kl. 10:21

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er rétt hjá þér Jósef, þetta er ekki allt eftir henni haft 

Halldór Jónsson, 27.8.2017 kl. 13:34

10 Smámynd: Halldór Jónsson

María, gleymir þú ekki misvægi atkvæða þegar þú horfir á Alþingi?

Halldór Jónsson, 27.8.2017 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband